Skessuhorn - 15.03.2017, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 29
Landsbankinn landsbankinn.i s 410 4000
Spara u og vi
hvetjum ig áfram
Landsbankinn grei ir 6.000 kr. mótframlag egar fermingarbörn
leggja 30.000 kr. e a meira inn á Framtí argrunn e a í ver -
bréfasjó . Ef bá ir kostir eru n ttir leggur Landsbankinn ví
til 12.000 kr. í mótframlag. annig viljum vi hvetja til sparna ar.
landsbankinn .is4 10 4000Landsbankinn
JÓ
N
SS
O
N
&
L
E’
M
A
CK
S
•
j
l
.is
•
SÍ
A
Spurningin
„Hvers vegna valdir
þú að fermast?“
(Spurt á Akranesi)
Árni Salvar Heimisson:
„Því mér finnst þetta áhugavert
og langaði að styrkja trú mína
á Jesú.“
Guðmunda Freyja Guðráðs-
dóttir:
„Af því að ég trúi á Guð.“
Friðbert Óskar Þorsteinsson:
„Það er bara allt svo skemmti-
legt við þetta.“
Sólrún Lilja Finnbogadóttir:
„Til að staðfesta trú mína á
Jesú.“
Þuríður Ingibjörg Tryggvadóttir er
fædd árið 1939 og er búsett á dvalar-
heimilinu Jaðri í Ólafsvík. Skessuhorn
hitti hana að máli og bað hana að rifja
upp fermingardaginn sinn. „Já, ég
man þann dag eins og hann hafi verið
í gær,“ sagði Þuríður kampakát. „Ég
var fermd þann 10. júní árið 1954 á
Borg á Mýrum, af séra Leó Gunnars-
syni,“ rifjar hún upp. Hún segist þó
ekki muna hversu mörg börn fermd-
ust þann dag en segir að þau ferm-
ingarbörnin hafi verið mörg. Ferm-
ingarveislan sjálf var síðan haldin í
heimahúsi, líkt og tíðkaðist á þess-
um tíma. „Veislan var haldin á heim-
ili mínu sem var á Syðri - Haukadal
og voru aðeins mínir nánustu í veisl-
unni. Hálfsystir mín, Unnur Ólafs-
dóttir, sá um veisluna og bakaði hún
gómsætar kökur.“ Þuríður man vel
hvað hún fékk í fermingargjöf. „Ég
fékk 250 krónur í fermingargjöf og
bókina „Ung og saklaus,“ sem ég á
enn.“ Auk þess fékk Þuríður fjögur
fermingarkort. „Ég hef alltaf þurft
að vinna fyrir mínu,“ segir Þuríður
og þykir henni að börn nú til dags
fái alltof miklar og verðmætar gjafir
í fermingargjöf. Hún segir að ef börn
kunni betur að meta hlutina, fái þau
ekki of mikið. „Núna dunda ég mér
við að prjóna föt fyrir Rauða krossinn
og finnst gaman að geta glatt aðra,“
segir hin lífsglaða Þuríður. Að lokum
segir hún að þrátt fyrir að vera orðin
77 ára gömul, geymi hún vel barnið í
sér og lífsgleðina.
Fékk 250 krónur í fermingargjöf
Fermingarbörn liðinna ára í máli og myndum - Framhald