Skessuhorn - 15.03.2017, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 201730
Á þessu herrans ári fermast
tæplega tvöhundruð ung-
menni í landshlutanum í tólf
prestaköllum. Skessuhorn
fór á stúfana og hitti tólf
ungmenni sem ýmist undir-
búa fermingu eða taka sið-
festu. Þau voru meðal annars
spurð hvers vegna þau ætla
að fermast, hvað verði gert í
tilefni dagsins, hvort þau að-
stoði við undirbúninginn og
hver drauma fermingargjöfin
er. Það stóð ekki á svörum. Öll
hlakka þau til stóra dagsins og
eru sammála um að mikilvægt
sé að fermingardagurinn verði
ánægjulegur í faðmi fjölskyldu
og vina.
Heillaðist af trúnni í
fermingarfræðslunni
Soffía Meldal Kristjánsdóttir ferm-
ist 4. júní í Hjarðarholtskirkju í Döl-
um. Soffía valdi að fermast en ætlaði
í fyrstu að hafa annan hátt á. „Fyrst
var ég að hugsa um að láta ferma mig
í gegnum Siðmennt en svo ákvað ég
að prófa fermingarfræðsluna hér
heima og þótti það gott. Ég var ekki
viss með trúna en laðaðist að henni
í fermingarfræðslunni,“ segir Soffía.
„Við erum lítið farin að plana daginn
en förum fljótlega í bæinn að skoða
fermingarföt. Ég er ekkert búin
að ákveða mig hvernig ég vilji hafa
fötin. Við verðum örugglega með
veislu en það er ekki búið að ákveða
hvernig. Mig langar að bjóða mínu
nánasta fólki en það verða örugg-
lega einhverjir sem ég þekki lítið en
mamma og pabbi þekkja vel,“ segir
Soffía.
Soffía hefur áhuga á fermingar-
undirbúningnum og vill taka þátt
í honum og segist vera spennt fyr-
ir þeirri vinnu. „Ég er að læra söng
og er að velta fyrir mér að syngja í
veislunni. Það eru líka nokkrir sem
vilja að ég geri það. Svo langar mig
til að velja skrautið fyrir veisluna og
velja litina,“ segir Soffía. Þegar kem-
ur að spjalli um gjafirnar þá kemur í
ljós að Soffía er ekki búin að mynda
sér miklar skoðanir. „Það er ekkert
komið á óskalista, ég hef lítið verið
að pæla í því. Ef ég þyrfti að nefna
eitthvað þá held ég að ég myndi
vilja pening. Þá gæti ég notað hann í
framtíðinni, t.d. þegar ég fer í fram-
haldsskóla eða eiga framtíðarsjóð.
Ég veit ekkert hvað ég fæ í ferming-
argjöf en grunar einhverja mögu-
leika,“ segir Soffía að lokum.
Finnst þetta allt
skemmtilegt
Jóhann Margeir Guðmundsson
fermist á skírdag, 13. apríl, í Snóks-
dalskirkju í Dölum. Hann fermist
einn og segir það leggjast vel í sig.
„Það er gaman að fermast og öll eldri
systkini mín eru búin að láta ferma
sig. Ég trúi á Guð og finnst þetta allt
skemmtilegt. Það er gaman að hitta
alla í veislunni og fá gott að borða og
það er líka alltaf gaman að fá gjafir,“
segir Jóhann. Hann hefur skoðanir
á því hvað skuli vera á boðstólnum
í veislunni. „Ég er búinn að ákveða
að það verður hamborgarhryggur og
lambasteik og svo náttúrulega kök-
ur. Mamma þekkir mann sem sér um
matinn fyrir okkur.“ Það er farið að
styttast í ferminguna og greinilega
komin talsverð tilhlökkun í Jóhann.
„Ég er spenntur fyrir þessu. Mamma
er að kaupa skyrtu á mig og svo fæ
ég fermingarbuxur bróður míns, það
þarf aðeins að stytta þær. Mig lang-
ar til að vera með bindi, nema ég fái
bara slaufuna hans Sindra bróður
líka. Ég tek kannski þátt í undirbún-
ingi. Ég myndi vilja raða borðum og
hjálpa til við að leggja á borð,“ seg-
ir Jóhann en veislan verður í félags-
heimilinu Árbliki. Margir hafa lita-
þema í fermingarveislum og Jóhann
er löngu búinn að velja sinn lit: „Ég
ætla að hafa rauðan. Það er af því að
fótboltaliðið mitt er með rautt í sínu
merki en það er Manchester Uni-
ted. Og Manchester United verður
líka á kökunni minni. Það er verst
að ég held að pabbi minn vilji ekki
kökuna,“ segir Jóhann og glottir ei-
lítið. Þegar hann er beðinn um skýr-
ingu segir hann: „Pabbi heldur með
Liverpool. En það verður örugglega
nóg af öðrum kökum líka. Hann er
líka ekki svo mikill kökukarl.“
Jóhann hlakkar mjög til að hitta
frændsystkini sín og hafa gaman með
þeim á fermingardaginn. Hann segir
að það sé örlítið stressandi að þurfa
að halda ræðu en hann heldur að það
gangi vel fyrir framan fólk sem hann
þekkir vel. „Draumafermingargjöfin
mín er fartölva og ég held að á fái
hana frá mömmu og pabba. Ef ég
ætti að velja hvort ég fengi gjafir eða
peninga þá væri það ábyggilega pen-
ingur því mig langar til að safna fyrir
fjórhjóli,“ bætir Jóhann við.
Fermist á Selfossi
Katrín Súsanna Björnsdóttir er eitt
af fermingarbörnunum í Grunn-
skóla Grundarfjarðar en hún ferm-
ist 13. maí á Selfossi. „Ég er í ferm-
ingarfræðslu hérna í Grundarfirði
en ég bjó áður á Selfossi og fermist
þar,“ segir Katrín í stuttu spjalli við
fréttaritara Skessuhorns. „Við verð-
um á Selfossi viku fyrir ferminguna
við undirbúning. Ég var í grunnskól-
anum þar og þekki því þó nokkuð af
fermingarsystkinum mínum.“ Hún
segist sjálf taka mikinn þátt í und-
irbúningi fyrir stóra daginn. „Það
verður þokkalega stór veisla. Það er
búið að leigja sal nálægt Selfossi og
við verðum með mat og kökur á eft-
ir.“ Aðspurð um draumafermingar-
gjöfina stendur ekki á svörum: „Mig
dreymir um að fá utanlandsferð í
fermingargjöf og ég veit að ég fæ
svoleiðis frá pabba mínum, en hann
ætlar að bjóða mér í helgarferð. Svo
fer ég með mömmu og fósturföður
mínum til Portúgals í sumar,“ seg-
ir hún. „Og ef ég fæ pening, þá ætla
ég að spara hann,“ bætir hún við að
endingu.
Langar mest í
myndavél
Einar Bjarnason fermist á Hvíta-
sunnudag 4. júní í Grundarfjarðar-
kirkju. Eftir athöfnina verður haldin
veisla í Samkomuhúsi Grundarfjarð-
ar, þar sem ættingjar og vinir munu
samgleðjast með fermingarbarninu
og fjölskyldu hans. „Ég tek einhvern
þátt í undirbúningi veislunnar,“ seg-
ir Einar. Hann segist einnig hafa eitt-
hvað að segja um skreytingar og veit-
ingar í veislunni. „Það verður boðið
upp á kökur og jafnvel mat líka. Það á
samt eftir að taka ákvörðun um það,“
segir hann. Draumafermingargjöf
Einars tengist áhugamáli hans. „Mig
langar mest í stóra SLR myndavél en
ég hef verið að taka myndir á símann
minn. Annars hef ég ekki hugmynd
um hvað ég fæ í fermingargjöf,“ segir
Einar Bjarnason að lokum.
Hlakkar mikið til
Heiðar Páll Hilmisson fermist 26.
mars næstkomandi í Akraneskirkju.
„Ég ákvað að fermast því ég vildi
staðfesta skírnina,“ segir Heiðar Páll.
Hann segir að veislan sjálf verði ekki
haldin sama dag og athöfnin verður.
„Veislan verður haldin í Reykjavík 8.
apríl. Við ákváðum að halda veisluna
í sal í Reykjavík því að ég á marga ætt-
ingja þar. Það var hægt að fá þennan
sal þann dag og þá höfðum við lengri
tíma til undirbúnings,“ útskýr-
ir hann. Heiðar reiknar með mörg-
um gestum en yfir 70 manns er boð-
ið í veisluna. „Það koma samt örugg-
lega ekki allir, það eru alltaf einhver
forföll. Við ætlum að bjóða gestun-
um upp á kjúklingasúpu og ístertu.“
Heiðar segist ekki taka mikinn þátt
í undirbúningnum fyrir fermingar-
veisluna. „En ég mun alveg hjálpa
til þegar þar að kemur. Ég fékk líka
að velja litinn sem verður notaður
við skreytingar, ég valdi fjólubláan
af því að mér finnst það flottur lit-
ur og svo hvítan til að hafa með því
að hvítt passar við allt.“ Hann seg-
ist þó einnig fá að velja fermingar-
fötin sjálfur. „Við erum búin að vera
að skoða fermingarföt en erum ekki
búin að kaupa neitt. Mig langar að
vera í jakkafötum.“ Heiðar segist
ekki hafa hugmynd um hvað hann
fær í fermingargjöf en er alveg með
það á hreinu hvað er efst á óskalist-
anum. „Mig langar pottþétt í vespu.
Ég veit samt ekki hvað ég fæ, foreldr-
ar mínir hafa verið að hugsa um að
fara í utanlandsferð en það er ekk-
ert ákveðið.“ Heiðar Páll er spennt-
ur fyrir stóra deginum. „Ég hlakka
rosalega til fermingardagsins,“ seg-
ir hann.
Hrædd um að detta
Guðný Sigurrós Jóhannsdóttir býr á
Akranesi og fermist í Akraneskirkju
á Pálmasunnudag, 9. apríl næst-
komandi. Hún var í ekki í vafa um
að fermast. „Ég ákvað að fermast út
af því að ég trúi á Guð og langar að
fermast. Það er öll fjölskyldan búin
að láta ferma sig og ég vildi halda í
þessa hefð,“ útskýrir Guðný í samtali
við Skessuhorn. Hún hefur haft gam-
an af fermingarfræðslunni og seg-
ir hana hafa verið fróðlega. „Ég hef
lært mikið þar, maður fer líka að trúa
meira þegar maður lærir meira um
þetta.“ Fermingarveislan sjálf verður
haldin í heimahúsi á skírdag. Guðný
segist ekki vera búin að ákveða alveg
hvernig fermingardagurinn verður.
Hún ætlar þó að hjálpa til við und-
irbúninginn fyrir veisluna. „Það er
samt mikið að gera hjá mér, þannig
að mamma og pabbi gera mest. Við
erum búin að kaupa fullt af litlum
hlutum, kerti og alls konar smá-
hluti. Ég fékk að velja margt af því
og skrautið ætla ég að hafa ljósbleikt,
hvítt og svart. Boðið verður upp á litla
rétti í veislunni; pasta, salat og fleira
sem ég man ekki alveg. Mamma er
alveg með þetta á hreinu,“ segir hún
og brosir. Fermingarkjóllinn er kom-
inn í hús en Guðný segir að það hafi
tekið smá tíma að finna rétta dress-
ið. „Ég valdi hvítan kjól sem er með
gylltu hálsmáli og frekar þröngur. Ég
var búin að skoða frekar mikið en er
mjög ánægð með þennan kjól.“ Hún
segist ekki vita hvað hún fær í ferm-
ingargjöf og á enga sérstaka drauma-
gjöf. „Ég væri samt mjög mikið til
í að fá MacBook eða einhverja aðra
tölvu.“ Hún reiknar með því að fá
mest af peningum og ætlar að nota
hluta af þeim á árinu. „Ég fer til út-
landa tvisvar á þessu ári og ætla að
nota eitthvað af fermingarpening-
unum þar,“ segir hún. Guðný hlakk-
ar til fermingardagsins, þó að hún
sé örlítið kvíðin. „Ég er smá stress-
uð. Ég er hrædd um að ruglast í ein-
hverju eða um að detta eða eitthvað
vandræðalegt. En ég hlakka mik-
ið til, þetta verður örugglega mjög
skemmtilegt.“
Langar mest í rúm
Jason Jens Illugason er búsettur í
Ólafsvík. Hann er einn af níu börn-
um sem fermast á hvítasunnudag, 4.
júní, í Ólafsvíkurkirkju. „Ég ákvað
að fermast af því að allir aðrir í fjöl-
skyldunni hafa látið ferma sig,“ seg-
ir Jason Jens í samtali við Skessu-
horn. Fermingarveisla Jasonsar verð-
ur haldin í íþróttahúsinu í Ólafsvík
og á Jason von á því að margir vin-
ir og ættingjar mæti til að samgleðj-
ast með honum og fjölskyldunni, eða
um hundrað manns. Aðspurður um
hvort hann hjálpi til með undirbún-
ing fermingarinnar segist hann koma
til með að aðstoða lítið. Jason Jens
hlakkar til fermingardagsins og á sér
draumafermingargjöf. „Mig langar
að fá nýtt rúm,“ segir hinn hressi Jas-
on að lokum.
Á von á 100 manns
Tvær fermingarathafnir verða í Ólafs-
víkur- og Ingjaldshólsprestakalli í ár.
Önnur þeirra verður í Ingjaldshóls-
kirkju á skírdag 13. apríl næstkom-
andi. Margret Vilhjálmsdóttir verð-
ur fermd í þeirri athöfn. „Ég vil láta
ferma mig af því að ég trúi á Guð og
svo hafa allir í fjölskyldunni fermst og
ég vil halda í hefðina,“ segir Margr-
et. Veisla Margretar verður haldin
í björgunarsveitarhúsinu í Rifi sem
ber nafnið Von. Margret á von á því
að margir vinir og ættingjar mæti til
að samgleðjast henni á fermingardag-
inn. „Ég á von á því að um 100 manns
mæti í veisluna. Ég tek virkan þátt í
að undirbúa daginn, baka kökur og
mun hjálpa til við að leggja á borð
og skreyta salinn,“ útskýrir Margr-
et. Draumafermingargjöf Margret-
ar er utanlandsferð til Bandaríkjanna.
„En ég veit hvað ég fæ í fermingar-
gjöf frá mömmu og pabba og einn-
ig frá ömmu og afa í Ólafsvík,“ segir
Margret að endingu.
Meira spenntur
fyrir ásatrúnni
Snemma í júní komandi mun Elías
Andri Harðarson á Grímsstöðum í
Reykholtsdal í Borgarfirði taka sið-
festu hjá Ásatrúarfélaginu. Foreldr-
ar hans eru Hörður Guðmunds-
son og Jóhanna Sjöfn Guðmunds-
dóttir. Elías er sá eini í sínum bekk í
Grunnskóla Borgarfjarðar á Klepp-
járnsreykjum sem tekur siðfestu.
„Það er nokkuð síðan ég ákvað
að gera þetta. Þegar ég var svona
7-8 ára fannst mér kristin trú ekki
meika sens og var einfaldlega meira
spenntur fyrir ásatrúnni,“ segir Elí-
as. „Ég gekk svo að í Ásatrúarfélag-
ið í vetur og hef verið í undirbún-
ingi hjá Jónínu Berg í Borgarnesi,“
bæti hann við, en Jónína er Þórs-
nessgoði hjá Ásatrúarfélaginu og fer
með Vesturlandsgoðorð. Elías seg-
ir undirbúninginn hafa falist í því
að kynna sér vel ásatrúna og fræð-
ast um goðin. Hávamál skipa einn-
ig sérstak sess. „Ég mun velja tvö
erindi úr Hávamálum fyrir athöfn-
ina og lesa þau upphátt. Ég á eftir að
velja erindin en það er erfitt að velja
úr svona merkilegum texta,“ seg-
ir Elías. Athöfnin fer fram í félags-
heimlinu Logalandi og eftir hana
verður efnt til veislu. „Við ætlum að
bjóða gestunum upp á kjötsúpu og
svo verða kökur í eftirrétt. Það verð-
ur vonandi góð stemning en ég mun
bjóða fjölskyldu og ættingjum og
nánustu vinum.“ Elías hefur áhuga á
hestamennsku og því er hnakkur of-
arlega á blaði á óskalistanum þegar
hann er spurður út í fermingargjafir.
„Ég á eina meri heima á Grímsstöð-
um og finnst mér gaman að fara í út-
reiðatúra. Ég væri því mjög glaður
að fá hnakk. Síðan langar mig líka í
dróna. Það er ekki leiðinleg græja að
eiga,“ segir Elías að lokum.
Rætt við fermingarbörn á Vesturlandi um stóra daginn
Soffía Meldal
Kristjáns-
dóttir fermist
4. júní í
Hjarðarholts-
kirkju í
Dölum.
Ljósm. sm.
Jóhann Margeir
Guðmundsson
fermist á
skírdag.
Ljósm. sm.
Katrín
Súsanna
Björnsdóttir
ætlar að spara
fermingarpen-
ingana.
Ljósm. tfk.
Einar Bjarna-
son hefur ekki
hugmynd um
hvað hann fær
í fermingargjöf
en langar mest
í myndavél.
Ljósm. tfk.
Heiðar Páll
Hilmisson
hlakkar
til ferm-
ingardagsins.
Ljósm. grþ.
Guðný Sigur-
rós Jóhanns-
dóttir fermist í
Akraneskirkju
á Pálma-
sunnudag,
9. apríl.
Ljósm. grþ.
Fermingar-
veisla Jasons
Jens Illugasonar
verður haldin í
íþróttahúsinu í
Ólafsvík og er
von á mörgum
gestum.
Ljósm. af.
Margret Vil-
hjálmsdóttir
tekur virkan
þátt í að undir-
búa fyrir ferm-
ingardaginn.
Ljósm. af.
Elías Andri
Harðarson mun
taka siðfestu í
júní.
Ljósm. hlh.