Skessuhorn - 15.03.2017, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 31
Á leið í knattspyrnu-
skóla Bobby Charlton
Þórunn Sara Arnarsdóttir fermist í
Borgarneskirkju á pálmasunnudag,
9. apríl. Hún segir fermingarund-
irbúninginn hafa gengið vel. „Við
byrjuðum síðasta haust í ferm-
ingarfræðslu hjá Þorbirni Hlyni.
Fræðslan hefur farið fram í safnað-
arheimili Borgarneskirkju og höf-
um við hist einu sinni í viku. Fyr-
ir áramót fórum við síðan í ferð í
Vatnaskóg og gistum eina nótt.
Þetta var skemmtileg ferð þar sem
boðið var upp á ýmsa fræðslu,“ seg-
ir Þórunn en önnur fræðsluferð er
líka á döfinni í Reykholt fljótlega.
„Það er þó bara einn dagur en von-
andi verður það skemmtileg ferð.“
Þórunn kveðst fermast út af hefð-
inni en flestir í hennar árgangi í
Borgarnesi ætlar að fermast. Hún
tekur þátt í undirbúningi fyrir
fermingarveisluna með foreldrum
sínum, þeim Guðjóni Arnari Sig-
urðssyni og Ragnhildi Hallgríms-
dóttur, og er skipulagningin kom-
in vel á veg. „Veislan verður heima
hjá mér. Það eru um 50 manns á
gestalistanum. Við ætlum að bjóða
upp á mat og verður hamborgar-
hryggur eldaður.“
Svo vill til að Þórunn er búinn að
fá fermingargjöfina frá foreldrum
sínum sem er ekki af verri endan-
um. „Þau gáfu mér ferð í fótbolta-
skóla Bobby Charlton í Manches-
ter í Bretlandi og er ég mjög glöð
með gjöfina. Ég æfi fótbolta með
Skallagrími og hef mikinn áhuga á
íþróttinni. Þess vegna er ég mjög
spennt fyrir ferðinni sem verður í
lok júlí,“ segir Þórunn að lokum.
Sushi og kökur í
fermingarveislunni
Birta Sigþórsdóttir nemandi í
Grunnskólanum í Stykkishólmi
fermist í Stykkishólmskirkju þann
23. apríl næstkomandi. Birta er
full af tilhlökkun fyrir ferming-
ardeginum. „Ég trúi á guð og svo
fermdist bróðir minn líka,“ svar-
ar Birta aðspurð um hversvegna
hún ákvað að láta ferma sig. Veisl-
an hjá Birtu verður haldin á Hót-
el Stykkishólmi. „Ég er að halda
veislu með frænku minni þannig að
það verða örugglega svolítið marg-
ir,“ segir Birta sem ætlar að bjóða
upp á sushi og kökur í veislunni.
„Mér finnst sushi bara svo gott. Ég
ætla samt að hafa pottrétt líka til
vara, það eru kannski ekki allir sem
borða sushi. Hótelið sér um veit-
ingarnar en við verðum örugglega
með eitthvað heimabakað.“ Birta
tekur virkan þátt í undirbúningn-
um og segir mikið þurfa að skipu-
leggja. Hún hefur ekki hugmynd
um hvað hún fær í fermingargjöf
en viðurkennir að hún væri nú al-
veg til í nýja tölvu eða rúm, annars
yrði hún ánægð með hvað sem er.
Fermingardagurinn sjálfur er þétt
skipulagður og nóg að gera fyrir
athöfnina. „Ég fer á Hárstofuna í
greiðslu og svo fer ég í pínu förð-
un sem vinkona mín sér um. Eftir
athöfnina fer ég í myndatöku með
frænku minni áður en veislan byrj-
ar,“ segir Birta. Fötin hafa reynst
mörgum mikill höfuðverkur á dög-
um sem þessum en það virtist ekki
eiga við Birtu „Ég er löngu búin að
velja fötin, það var ekkert mál. Ég
gerði það í haust.“
Tvær utanlandsferðir
í fermingargjöf
Elvar Áki Ingason er nemandi
við Grunnskólann í Stykkishólmi.
Hann fermist í Stykkishólmskirkju
um hvítasunnuna. Elvar ákvað
að láta ferma sig til staðfesting-
ar á trú sinni. Veisluna ætlar hann
hins vegar að halda í Reykjavík þar
sem megnið af ættingjum hans býr
þar. Veitingarnar hafa ekki ver-
ið ákveðnar en þó finnst honum
súpa koma sterklega til greina.
Veislan verður haldin daginn eft-
ir fermingu og reiknar Elvar með
100-150 gestum. Aðspurður hvort
hann taki sjálfur þátt í undirbún-
ingi fyrir veisluna svarar Elvar:
„Já, örugglega eitthvað. Ég raða
kannski stólum og svona.“ Eft-
ir athöfnina sjálfa ætlar hann þó
að bjóða nánustu fjölskyldu í smá
kaffiboð í Hólminum. Elvar er
sonur Inga Þórs þjálfara Snæfells
og hefur, líkt og faðir hans, brenn-
andi áhuga á körfubolta. Hann veit
að hann fær tvær utanlandsferð-
ir í fermingargjöf. Aðra þeirra fær
hann að gjöf frá foreldum sínum,
ferð til Finnlands á EM í körfu-
knattleik. En með honum í för
verða bróðir hans og faðir. „Hin
utanlandsferðin er frá ömmu, hún
á að koma á óvart.“ Þegar Elvar
er spurður hvað hann dreymi um
að fá í fermingargjöf er fátt sem
kemur upp í hugann, þó peningur
kæmi sér alltaf vel. Elvar er hin ró-
legasti yfir þessu öllu saman, ferm-
ingardaginn sjálfan hefur hann lít-
ið skipulagt og fötin á hann eftir
að kaupa. „Við förum núna á næst-
unni og kaupum föt,“ segir hann
og bætir við að hann ætli að fá sér
jakkaföt. Líklegast verða hefð-
bundnir spariskór ekki fyrir val-
inu, Elvar vill frekar skó sem nýt-
ast betur og segir líklegt að hann
fái sér Jordan skó.
grþ/sm/tfk/jse/hlh/af
Þórunn Sara
Arnarsdóttir
fékk ferð í
fótboltaskóla
Bobby Charlton
frá for-
eldrum sínum í
fermingargjöf.
Ljósm. hlh.
Birta Sigþórs-
dóttir er löngu
búin að velja
fermingarfötin.
Ljósm. jse.
Elvar Áki
Ingason fermist
í Stykkishólms-
kirkju en
veislan
verður haldin í
Reykjavík þar
sem meirihluti
ættingja hans
býr.
Ljósm. jse.
#GOSHCOPENHAGEN #MAKEYOURIMPRESSION #URBANNATURE Join us @goshcopenhagen | www.goshcopenhagen.com
BEAUTY SILHOUETTES
MAKE YOUR I M P R E S S I O N
#BEAUTIFULYOU
& NO NORMS FOR A
URBAN NATURE CCC STICKS · Mikil þekja · Mjúk og jöfn áferð
·Svitaholur verða minna áberandi
· Endist lengi á húðinni · Án ilmefna og parabena
· Án parabena
· Mattir · Djúpir litir
· Haldast lengi á vörunum
NÝTT