Skessuhorn - 15.03.2017, Page 41
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 41
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Laus störf hjá Akraneskaupstað
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar hjá Akraneskaupstað
Leikskólinn Garðasel
Starf leikskólakennara
Sumarstörf
Starf bókavarðar á Bókasafni Akraness
Störf á tjaldsvæðinu í Kalmansvík
Störf flokkstjóra (100% og 50% störf) við Vinnuskólann,
fyrir 20 ára og eldri.
Starf verkstjóra við almennt viðhald og umhirðu á opnum
svæðum, fyrir 20 ára og eldri.
Störf við almennt viðhald og umhirðu á opnum svæðum,
fyrir 18 ára og eldri.
Starf í þjónustuveri Akraneskaupstaðar
Nánari upplýsingar um fyrrgreind störf er að finna á
heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is en þar skal
jafnframt sækja um störfin rafrænt á þar til gerðum eyðublöðum.
Umsóknarfrestur er til og með 26. mars.
Undankeppnin Skólahreysti grunn-
skólanna hófst í gær. Nemendur frá
ellefu skólum á Vesturlandi kepptu í
fyrsta riðli keppninnar sem fram fór
í TM höllinni í Garðabæ. Þar réð-
ist hvaða skóli verður fulltrúi Vest-
urlands í lokakeppninni sem fram
fer í Laugardalshöllinni 26. apríl
þar sem tólf skólar keppa til úrslita.
Úrslit úr Vesturlandsriðlinum urðu
þau að Grunnskóli Stykkishólms bar
sigur úr býtum með 38,5 stig og er
því verðugur fulltrúi Vesturlands að
þessu sinni. Í öðru sæti, með ein-
ungis hálfu stigi minna, var Brekku-
bæjarskóli á Akranesi. Í þriðja til
fjórða sæti urðu Grunnskóli Húna-
þings vestra og Grunnskóli Snæ-
fellsbæjar með 36 stig hvor skóli. Í
sætum þar á eftir komu (í réttri röð):
Heiðarskóli, Grundaskóli, Grunn-
skóli Borgarfjarðar, Grunnskólinn í
Borgarnesi og Auðarskóli.
mm
Grunnskólinn í Stykkishólmi
sigraði í Skólahreysti
Lið Grunnskólans í Stykkishólmi skipa: Birta Sigþórsdóttir, Heiðrún Edda Páls-
dóttir, Tinna Alexandersdóttir og Ari Bergmann Ægisson sem öll koma úr 8. bekk
og þau Einar Bergmann Daðason og Ayushtseren Khash-Erdene úr 10. bekk.
Ljósm. Stykkishólmspósturinn.
Brekkubæjarskóli á Akranesi varð í öðru sæti, einungis hálfu stigi á eftir sigurvegur-
unum. Ljósm. Grundaskóli.
Mikill munur er á reglum sveitarfé-
laga um niðurgreiðslu vegna gæslu
ungra barna hjá dagforeldrum í
heimahúsum. Í nýrri könnun verð-
lagseftirlits ASÍ í fimmtán stærstu
sveitarfélögunum kemur fram að
kostnaður foreldra er mjög mis-
jafn eftir búsetu og er víða á bilinu
50.000-70.000 krónur á mánuði
auk fæðiskostnaðar. Einungis fjögur
af 15 stærstu sveitarfélögum lands-
ins eru með reglur um hámarks-
gjald fyrir þjónustu dagforeldra. Í
öðrum sveitarfélögum er gjaldtaka
dagforeldra með þjónustusamning
við sveitarfélögin frjáls.
Mjög takmarkaðar upplýsingar
er hægt að nálgast af heimasíðum
sveitarfélaganna varðandi heildar-
kostnað fyrir gæslu hjá dagforeldr-
um. Þessar upplýsingar voru ein-
ungis tiltækar á heimasíðum fjög-
urra af 15 stærstu sveitarfélagum
landsins og var þá um gjald án fæð-
is að ræða. „Það má gera ráð fyrir
að þjónustusamingar sem sveitar-
félögin geri séu jafn mismunandi
og þau eru mörg. Það sama má
segja um niðurgreiðslur sem sveit-
arfélögin veita af þessari þjónustu.
Borgarbyggð niðurgreiðir mest eða
65.270 kr. á mánuði en Sveitar-
félagið Árborg minnst; 30.000 kr.
Engar upplýsingar var að finna á
heimasíðum sveitarfélaganna varð-
andi kostnað foreldra vegna fæðis,“
segir í frétt ASÍ.
Forgangshópar
Viðbótarniðurgreiðsla er veitt til for-
gangshópa hjá sveitarfélögunum,
en ekki var tilgreint á Akranesi og í
Reykjanesbæ hvort um viðbótar nið-
urgreiðslur væri þar að ræða. Sveit-
arfélagið Árborg og Borgarbyggð
greiða viðbótar niðurgreiðslu til þess-
ara hópa en ekki var tilgreint hvert
viðmiðið væri eða hve há viðbótar-
greiðslan er. Hæsta niðurgreiðsla hjá
þeim sveitarfélögum sem birta upp-
hæð niðurgreiðslna fyrir forgangs-
hópa er 87.200 kr. í Hafnarfirði og
lægst 43.440 kr. í Vestmannaeyjum.
„Sveitarfélögin bera ábyrgð á að
umsjón og eftirlit sé haft með starf-
semi dagforeldra sem sjá um dag-
gæslu barna í heimahúsum sam-
kvæmt reglugerð frá félagsmálaráðu-
neytinu. Reglugerðin tekur á grund-
vallar umgjörð varðandi daggæslu
í heimahúsum og hvernig bregð-
ast skuli við ef skilyrði sem þar eru
sett fram eru ekki uppfyllt. Sveitar-
félögin setja sér reglur varðandi nið-
urgreiðslur á gjaldi fyrir þessa þjón-
ustu og gera þjónustusamninga við
dagforeldra. Þessar reglur geta ver-
ið mjög mismunandi eftir sveitarfé-
lögum og þar af leiðandi mjög mis-
jafnt hversu stóran hluta af dagvist-
argjaldi foreldrar bera. Fjölskyldu-
gerð og aldur barns geta haft áhrif
á hversu mikil niðurgreiðslan er, en
mörg sveitarfélög veita auka niður-
greiðslu eftir að barn er orðið átján
mánaða.“ mm
Niðurgreiðsla sveitarfélaga með
daggæslu er afar mismunandi
Sveitarfélögin í þessari úttekt ASÍ greiða frá 30.000 kr. og upp í 65.270 krónur með
hverju barni í daggæslu. Mest er greitt með barni í Borgarbyggð.
Pauline McCarthy á Akranesi hef-
ur hrundið af stað söfnun fyrir vin-
konu sína, Anítu Gunnarsdóttur og
fjölskyldu hennar. Pauline greinir
frá því á söfnunarsíðunni gofundme.
com að mikil veikindi hafi hrjáð fjöl-
skylduna. Aníta er sex barna móðir.
Tvær elstu dætur hennar eru komn-
ar yfir tvítugt, eru báðar með sérþarfir
og búa á Akranesi ásamt Anítu, Bene-
dikt manni hennar og yngstu dætrum
þeirra þremur, sem eru tíu ára gaml-
ar. Þríburarnir fæddust löngu fyr-
ir tímann og tvær þeirra hafa glímt
við heilsufarsvandamál frá fæðingu.
Sonur Anítu er námsmaður og býr í
Reykjavík.
Aníta greindist með góðkynja heila-
æxli árið 2015. Læknar afréðu að grípa
ekki til aðgerðar, þar sem æxlið væri
góðkynja og nálægt mjög viðkvæm-
um hreyfi- og sjónsvæðum í heil-
anum. Síðar þetta sama ár uppgötv-
aðist að æxlið var farið að stækka og
valda skemmdum og Anítu óbærileg-
um verkjum, svo slæmum að nokkr-
um sinnum þurfti hún að leggjast inn
á spítala til verkjameðferðar. Til stóð
að senda Anítu í uppskurð, en það var
talið of áhættusamt og þá var afráðið
að senda hana til London í laser-að-
gerð í október á síðasta ári.
Aníta átti að fara aftur til London í
svokallaðan jáeindaskanna, eða PET-
skanna, í febrúar síðastliðnum til að
kanna áhrif aðgerðarinnar, en vegna
niðurskurðar í íslenska heilbrigðis-
kerfinu voru ekki til peningar til að
borga fyrir PET-skönnun fyrir Anítu
í London. Þess í stað þarf hún að bíða
fram í ágúst, eða þar til eftir að PET-
skanninn sem Íslensk erfðagreining
ákvað árið 2015 að gefa Landspítal-
anum, hefur verið afhentur og tekinn
í notkun. Þangað til veit enginn hvort
laser-aðgerðin í haust hafi heppnast
sem skyldi. „Verkir hennar hafa aukist
síðan þá og ef laser-aðgerðin heppn-
aðist ekki þá þarf hún að gangast und-
ir heilaskurðaðgerð með allri þeirri
áhættu sem henni fylgir. Hún hefur
miklar áhyggjur af því að blindast eða
lamast í aðgerðinni. Þess vegna lang-
ar hana að komast með þríburana í
frí í Lególand í Danmörku, drauma-
áfangastað þeirra, áður en hún þarf að
leggjast undir hnífinn, svo þær geti átt
góðar stundir og skapað skemmtilegar
minningar saman,“ skrifar Pauline á
söfnunarsíðuna.
„Aníta hefur átt við ýmis heilsu-
farsleg vandamál að stríða í mörg ár
en engu að síður hefur hún aðstoð-
að og litið til með svo mörgum öðr-
um,“ skrifar Pauline, en Aníta veitti til
dæmis Mæðrastyrksnefnd Vesturlands
forstöðu oftar en einu sinni og oftar
en tvisvar. „Fjölskyldan er því miður
skuldsett og laun eiginmannsins og
örorkulífeyrir hennar nægja aðeins
fyrir helstu nauðsynjum. Þess vegna
langar mig að hjálpa henni að safna
því sem til þarf svo fjölskyldan kom-
ist í frí,“ skrifar Pauline. Hún áætlar
að safna þurfi rétt tæplega átta hundr-
uð þúsund krónum svo fjölskyldan
geti farið í vikufrí til Danmerkur og
heimsótt draumastað þríburanna, Le-
góland. Söfnunin mun standa yfir þar
til í byrjun ágústmánaðar. Leggja má
söfnuninni lið á síðunni gofundme.
com, undir slóðinni: https://www.gof-
undme.com/family-holiday-before-
brain-surgery. kgk
Sex barna móðir á Akranesi
gæti þurft í heilaskurðaðgerð
Söfnun í gangi svo fjölskyldan komist í frí fyrir aðgerðina
Þríburadætur Anítu sem fæddust árið 2007.Söfnun Pauline McCarthy er fyrir Anítu
Gunnarsdóttur og fjölskyldu hennar.