Skessuhorn - 15.03.2017, Qupperneq 43
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 43
Pennagrein
Nú þegar síðustu leikmenn Íslands-
meistara ÍA árið 1951 eru fallnir frá
langar mig að rifja upp minningar
mínar um þetta lið sem mér finnst
vera merkilegasta knattspyrnulið Ís-
lands fyrr og síðar. Ég var reyndar
ekki nema tveggja ára strákpjakk-
ur í Reykjavík þegar ÍA varð fyrsta
liðið utan Reykjavíkur til að vinna
Íslandsmótið, samt finnst mér ég
hafa upplifað þessi merku tímamót
í knattspyrnusögunni svo margt hef
ég heyrt og lesið um þau.
Árið 1951 er á ýmsan hátt tíma-
mótaár í íslenskri knattspyrnu. Þar
komu Akurnesingar mikið við sögu.
Knattspyrnan á Íslandi breyttist.
Nýr leikstíll var innleiddur af Akur-
nesingum. Á þessu ári vann íslenska
landsliðið einn sinn fræknasta sigur
þegar það lagði sænska landsliðið 4
– 3. Í byrjunarliðinu voru tveir Ak-
urnesingar, þeir Ríkharður Jónsson
og Þórður Þórðarson. Auk þess kom
Guðjón Finnbogason inn á í leikn-
um og Helgi Daníelsson var vara-
markvörður. Eins og frægt er skoraði
Ríkharður öll mörkin fjögur fyrir Ís-
land í þessum sögulega sigri. Á árinu
unnu Akurnesingar Íslandsmótið,
fyrstir liða af landsbyggðinni og gáfu
þar með Reykjavíkurliðunum, sem
höfðu einokað Íslandsmótið allt frá
upphafsárinu 1912, langt nef.
Valinn maður
í hverju rúmi
Þetta lið var á margan hátt ein-
stakt. Það var valinn maður í hverju
rúmi. Aðalmaðurinn á bak við lið-
ið var Ríkharður Jónsson (lands-
liðsmaður 1947 – 1965). Hann var
besti leikmaðurinn, að margra mati
sá besti sem Ísland hefur átt. Hann
var þjálfari liðsins, nýkominn heim
frá Þýskalandi þar sem hann æfði
um skeið og sótti þjálfaranámskeið.
Þar fékk hann nýjar hugmyndir um
hvernig ætti að æfa og spila fót-
bolta. Þessar hugmyndir urðu að
veruleika undir hans stjórn með frá-
bærum árangri. Hann var auðvitað
ekki einn. Á Akranesi voru ótrúlega
margir góðir fótboltamenn á þess-
um tíma. Tveir léku með landslið-
inu árið 1951 og enn fleiri áttu eft-
ir að spila fyrir Íslands hönd í fjölda-
mörg ár og mynda kjarnann í lands-
liðinu allan 6. áratuginn. Í ÍA-liðinu
sem varð Íslandsmeistari voru auk
Ríkharðs eftirtaldir: Þórður Þórð-
arson (landsliðsmaður 1951 – 1958),
einn albesti senter sem hefur spilað
fyrir Akranes og Ísland, grjótharður
og fylginn sér. Guðjón Finnbogason
(landsliðsmaður 1953 – 1958), sjén-
tilmaðurinn á miðjunni með afburða
leikskilning. Sveinn Teitsson (lands-
liðsmaður 1953 – 1964), þindarlaus
baráttujaxl, alltaf með gamanyrði
og bros á vör. Halldór Sigurbjörns-
son¸ Donni, (landsliðsmaður 1954 –
1957), með fágæta boltatækni, elsk-
aði að plata og „setja hann“ í vink-
ilinn. Dagbjartur Hannesson (lands-
liðsmaður 1953 – 1954) varnar-
jaxl og Pétur Georgsson (landsliðs-
maður 1953 – 1954), sterkur fram-
línumaður. Auk landsliðsmannanna
léku með liðinu þeir Guðmundur
Jónsson, Jakob Sigurðsson, Jón S.
Jónsson, Kristján Pálsson, Magnús
Kristjánsson, Ólafur Vilhjálmsson
og Sveinn Benediktsson. Allir góðir
knattspyrnumenn og mikilvægir fyr-
ir liðið.
Sterkir í framlínunni
Þetta lið kom með nýjan, ferskan
blæ í knattspyrnuna. Strax í fyrsta
leik mótsins þegar liðið gjörsigraði
ríkjandi Íslandsmeistara KR 5-2 var
ljóst að eitthvað nýtt var að gerast í
fótboltanum. Mig langar að vitna í
það sem Þjóðviljinn sagði um leik-
inn, en það var lengi vel mikið að
marka Þjóðviljann, ekki síst það sem
skrifað var um fótbolta í því ágæta
blaði. Það var Frímann Helgason
Valsari og landsliðsmaður sem sá um
íþróttaskrifin. Hann skrifaði m.a.
eftirfarandi um leikinn:
„Það var með nokkurri eftir-
væntingu, að menn fjölmenntu til
þessa leiks. Fólk varð ekki fyrir von-
brigðum, því að Akurnesingar gerðu
hvorki meira né minna en 5 mörk
á 45 mínútum, öll óverjandi. Leik-
ur Akurnesinga var oft mjög góður,
stuttur samleikur, meiri en maður
á að venjast og spyrnur nákvæm-
ari. Það var mikill hraði í leik þeirra
og mikill vafi að nokkur framlína
Reykjavíkurfélaganna sé skipuð eins
jafnsterkum leikmönnum.“
Þarna var tónninn gefinn og gull-
öld knattspyrnunnar á Akranesi haf-
in.
Allt þetta fyrir hendi í
litlu bæjarfélagi
Ég hef velt því fyrir mér hvað það
var sem varð til þess að þetta gerð-
ist. Ég tel að þarna hafi spilað sam-
an allir þeir þættir sem þurfa að
vera til staðar svo árangur náist.
Það er í rauninni stórmerkilegt að
allt það sem til þurfti skuli hafa ver-
ið fyrir hendi í svona litlu bæjar-
félagi eins og Akranes var á þess-
um tíma. Í fyrsta lagi var hér hópur
mjög góðra knattspyrnumanna sem
stóðu vel saman og þeir vissu að til
að ná árangri þurfti að leggja hart að
sér. Menn voru vanir því í hinu dag-
lega lífi. Í öðru lagi voru hér mjög
dugmiklir forystumenn. Í þriðja lagi
var áhuginn og samstaðan í bænum
mjög mikil og hafði örugglega hvetj-
andi áhrif. Það er ótrúlegt að hugsa
til þess að þegar Íslandsbikarinn var í
höfn hafi verið nokkur hundruð Ak-
urnesingar á vellinum til að fagna
sigrinum og enn fleiri á bryggjunni
þegar liðið kom með bikarinn heim.
Í fjórða lagi var stuðningurinn sem
leikmennirnir fengu hjá eiginkon-
um sínum mikilvægur, þeirra þátt-
ur í velgengninni á vellinum hefur
sennilega aldrei verið fullþakkaður.
Í fimmta lagi var ný þekking sótt til
útlanda og hún nýtt með góðum ár-
angri.
Allt þetta var til staðar og allt
það starf sem var unnið, var unnið
í sjálfboðavinnu að loknum löngum
vinnudegi, það hefur líklega aldrei
hvarflað að neinum að ætlast til þess
að fá borgað fyrir að vera í fótbolta
eða stússast í kringum hann, líklega
hafa flestir borgað með sér.
Landbyggðin öll fagnaði
Sigurinn á Íslandsmótinu 1951 var
ekki bara sigur Akurnesinga, það má
öruggt telja að öll landsbyggðin hafi
fagnað, þarna hafði Reykjavíkur-
veldið verið lagt að velli. Þessi sigur
var mikil hvatning fyrir fólk um land
allt. Þarna var sýnt fram á það svart
á hvítu að litlir staðir úti á landi áttu
ýmsa möguleika þrátt fyrir fámenni.
Þessi sigur og allir sigrarnir sem
komu á eftir höfðu líka áhrif á litla
stráka sem voru að leika sér í fótbolta
um land allt, líka í Reykjavík.
Eins og ég gat um hér að framan
var ég ekki nema tveggja ára þeg-
ar sigurinn vannst 1951 og missti
þar af leiðandi af þessum merkis-
atburði. Karl faðir minn varð hins
vegar vitni að þessu og hreifst
mjög. Hann var úr Dölunum og
kunni auðvitað ekkert í fótbolta, en
hann hafði mikinn áhuga á íþrótt-
inni og hélt auðvitað með Akur-
nesingum, þeir voru hans menn.
Þegar ég óx úr grasi fékk ég að fara
á völlinn með pabba, gamla góða
Melavöllinn, það var mikil upplif-
un. Og auðvitað fórum við bara á
leiki þar sem Akurnesingar voru að
keppa og hrópuðum „Áfram Akra-
nes!“ Seinna gerðist ég Frammari
en var samt alltaf hrifinn af Akur-
nesingum og hélt með þeim, nema
þegar þeir spiluðu á móti Fram.
Það var ekkert sérstaklega merki-
legt að vera Frammari, en svo upp-
götvaði maður að Rikki hafði verið
í Fram, það var flott.
„Pant vera Rikki“
Á þessum árum byrjaði sumar-
ið með bæjarkeppni í fótbolta:
Reykjavík – Akranes. Það voru
skemmtilegir leikir, alltaf sólskin
og ég hélt með Akranesi. Þegar ég
lít til baka og rifja leikina upp þá
held ég að Akranes hafi alltaf unn-
ið. Eftir leikina var maður kominn
í ógurlegt stuð til að fara í fótbolta
og þegar heim var komið var skipt
í lið og svo var rifist um hver væri
hver, þeir sem voru frekastir voru
fyrstir að velja: „Ég er Rikki“, „ég
er Þórður“, „ég er Donni“, svona
gekk þetta þar til allir voru orðn-
ir einhver og þá var hægt að byrja
á leiknum. Ég man aldrei eftir að
neinn hafi viljað vera annað en Ak-
urnesingur. Svona virkaði ÍA-liðið
á litla Reykjavíkurstráka sem léku
sér í fótbolta og þá er nú auðvelt
að ímynda sér hvaða goðsagnir
þeir voru úti á landi.
Þau voru margvísleg áhrifin sem
Íslandsmeistaratitillinn 1951 hafði.
Mestu áhrifin hafði hann þó á þró-
un knattspyrnunnar á Akranesi.
Allar götur síðan 1951 hefur hlut-
ur Akraness í íslenskri knattspyrnu
verið mikill. Það hafa að vísu bæði
verið hæðir og lægðir en hæðirn-
ar hafa verið miklu fleiri. Íslands-
meistararnir 1951 ruddu brautina
og sýndu gott fordæmi og þó það
séu liðin 66 ár frá fyrsta titlinum
veit ég að þeir sem eru í fótbolt-
anum í dag geta sitthvað af þessu
liði lært.
Almennum íþrótta-
áhuga að þakka
Lengi vel voru aðalliðin á Íslandi
ÍA og KR. Þeir voru margir stór-
leikirnir sem þessi lið léku á 6. ára-
tugnum og fram á þann sjöunda.
Aðalmaðurinn í KR-liðinu á þess-
um árum var Ellert Schram, fyrr-
verandi formaður KSÍ. Mér finnst
mjög viðeigandi að ljúka þessari
grein með því að vitna í viðtal við
Ellert sem birtist í bókinni Skaga-
menn skoruðu mörkin, en þar seg-
ir hann m.a.:
„Þegar til þess er tekið að Akra-
nes er hvorki stór bær né fjöl-
mennur er það ævintýri líkast, að
knattspyrnulið staðarins geti gert
kröfu til stöðugrar forystu og sigra
í knattspyrnunni. Samt þykir öllum
sjálfsagt, að Akranes sé í fremstu
röð. Ár eftir ár, áratug eftir áratug,
tefla Skagamenn fram framúrskar-
andi liði og snjöllum einstakling-
um. Skýringanna er meðal ann-
ars að leita í miklum og almenn-
um íþróttaáhuga á Akranesi, þeirri
rækt sem lögð er við þjálfun og
stjórnun knattspyrnumála í pláss-
inu. En aðalskýringin er þó sú,
að eftir að gullaldarliðið frá 1951
gerði garðinn frægan, hefur mark-
ið verið sett hátt og kröfurnar eru
aldrei aðrar en þær að vera bestir,
sigursælir og efstir. Annað kemur
ekki til greina á Skaganum.“
Megi minningin um gullaldarliðið
frá 1951 lifa lengi enn.
Hörður Ó. Helgason
Í minningu Íslandsmeistara ÍA árið 1951
Fyrstu Íslandsmeistarar Skagamanna 1951. Nú hafa þeir allir kvatt. Aftari röð frá vinstri: Kristján Pálsson, Jón S. Jónsson, Pétur Georgsson, Þórður Þórðarson, Dag-
bjartur Hannesson, Ríkharður Jónsson fyrirliði og þjálfari, Guðmundur Jónsson og Halldór Sigurbjörnsson. Fremri röð frá vinstri: Sveinn Teitsson, Sveinn Benediktsson,
Jakob Sigurðsson, Magnús Kristjánsson, Ólafur Vilhjálmsson, sem þjálfaði liðið um veturinn eða þar til Ríkharður kom heim, og Guðjón Finnbogason. Ljósm. Ólafur
Árnason.
Hörður Ó Helgason.