Skessuhorn - 15.03.2017, Síða 44
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 201744
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Almennar bílaviðgerðir
Rúðuskipti
Smurþjónusta
Stjörnuviðgerðir á framrúðu
Dekkjaskipti og viðgerðir
Tölvulestur
Sólvellir 5 – Grundarfjörður – s: 438-6933 – kbbilav@simnet.is
Opnunartími 8-12 og 13-17 – Verið velkomin
Oft er maður spurður. Sem betur fer
hafa verið miklar umræður og skoð-
anaskipti um aðstöðu fyrir félagsstarf
og afþreyingu þriðju kynslóðarinnar
á Akranesi og nágrenni. Það er mín
skoðun að það væri mikið framfara-
skref að eiga samstarf við Golfklúbb-
inn Leyni um uppbyggingu og rekstur
frístundahúss. Það væri skaði og tjón
fyrir alla afþreyingu og félagslíf 60+
hér á svæðinu, ef því samstarfi væri
hafnað. FEBAN væri þar með að taka
forystu og starfa í anda þess sem lög
félagsins gera ráð fyrir. Slíkt samstarf
væri einstakt á landsvísu og öðrum til
eftirbreytni. Það hefur ekkert að gera
með skyldur sveitarfélaga varðandi
lögbundna þjónustu við aldraða og ör-
yrkja og þjónustumiðstöð eins og tal-
að er um í lögum um málefni aldraða.
Stjórn FEBAN hefur fjallað um
þessi mál, nánast á öllum fundum sín-
um í vetur og þann 2. mars sl. voru
gerðar eftirfarandi samþykktir:
„Stjórn FEBAN er í forsvari fyrir
tæplega 700 manna félag, þ.e. tæplega
10% af íbúum Akraness og nágrenn-
is og er fjölmennasta félagið hér um
slóðir. Við erum þó þess meðvituð
að þátttaka félaga í félagsstarfi mætti
vera meiri, en það getur verið spurn-
ing um, hvort kemur á undan áhug-
inn eða aðstaðan til að viðhafa félags-
lega virkni.“
Stjórn FEBAN vill af gefnum til-
efnum, minna á að þann 26. mars
2014 var undirritaður samningur um
kaup á húsnæði að Dalbraut 6, en í
bókum bæjarins þar um kemur fram
að: „Húsnæðið er hugsað sem þjón-
ustumiðstöð fyrir eldri borgara sem
bæði getur rúmað félagsstarf og við-
burði af ýmsu tagi fyrir þennan ört
stækkandi hóp auk þess sem starf með
eldri borgurum á vegum Akranes-
kaupstaðar verður þar til húsa.“
Þeirri ákvörðum bæjarstjórnar um
þjónustumiðstöð hefur ekki verið
hnekkt. Það er tilhlökkun í okkar huga
að sjá þá framkvæmd raungerast. Bú-
umst við því fyrr en seinna.
Lengi hafa verið umræður og við-
ræður um betri aðstöðu sem sæmdi
bæjarfélagi af stærðargráðu sem Akra-
neskaupstaður er og hjá sveitarfélög-
unum báðum á starfssvæði félagsins,
í þeim efnum sem þau sannarlega eru
og sem við íbúarnir megum vera stolt
af.
Félaginu barst bréf frá Golfklúbbn-
um Leyni þann 11. janúar 2017 um
félagsaðstöðu. Í nefndu bréfi golf-
klúbbsins kemur m.a. fram að; „GL
hefur átt í viðræðum við Akranes-
kaupstað um samstarf og stuðning
um verkefnið og miðar þeim viðræð-
um ágætlega áfram og er stefnt að því
að framkvæmdir
hefjist á þessu ári
og húsnæðið verði
tekið í notkun á
vormánuðum árs-
ins 2018 að öllu óbreyttu. Stjórn GL
vill bjóða stjórn FEBAN til viðræðna
um aðkomu að verkefninu og mögu-
legt samstarf um rekstur húsnæðisins
sem fyrirhugað er að byggja á skil-
greindum byggingarreit þar sem nú-
verandi golfskáli er staðsettur.“
Stjórnin fagnar uppbyggingar-
vilja golfklúbbsins og telur þær fram-
kvæmdir horfa til mikilla bóta fyrir
hag samfélagsins og allt frístundastarf
á Akranesi og ekki síst fyrir eldri borg-
ara, þar sem að gert er ráð fyrir stækk-
un hússins frá fyrri hugmyndum. Þar
er átt við 200 m2 stækkun frá upphaf-
legum teikningum, eingöngu vegna
hugsanlegs samstarfs við FEBAN.
Stjórn félagsins vill hvetja til fyrirhug-
aðrar uppbyggingar og lýsir vilja sín-
um til að gera samkomulag um nýt-
ingu hússins.
Að byggja upp annars vegar þjón-
ustumiðstöð fyrir aldraða og öryrkja
og hins vegar klúbbhús golfklúbbsins,
sem nýtist sem frístundahús fyrir íbúa
bæjarins og ekki síst eldri virðulega
borgara, er alls ekki ósamrýmanlegt.
Þegar um að ræða ört stækkandi
hóp, hinnar svokölluðu þriðju kyn-
slóðar, þarf að tryggja að sá hópur
viðhafi virkni og félagsskap. Við sem
samfélag, höfum efni á að bjóða þess-
um aldurshópi upp á hið allra besta.
Hann hefur að hluta, ásamt gengnum
kynslóðum, skapað núverandi auð.
Við hvetjum alla til að horfa til
lengri framtíðar og standa saman að
uppbyggingu samfélagsins, jákvæð,
bjartsýn og bær til að njóta lífsins.
„FEBAN ER FRAMTÍÐIN.“
Og þá var einnig gerð eftirfarandi
samþykkt um þjónustumiðstöð aldr-
aðra og öryrkja.
„Stjórn FEBAN vill koma því á
framfæri að fjöldi félagsmanna FEB-
AN hefur sett sig í samband við
stjórnina og er mjög óánægður með
framgöngu bæjaryfirvalda er varðar
hátíðleg loforð um innréttingu á hús-
næði Dalbraut 6 fyrir aldraða og ör-
yrkja. Kynnt hefur verið nýtt skipu-
lag, þar sem að gert er ráð fyrir að rífa
skuli það hús, til að byggja nýja þjón-
ustumiðstöð aldraðra og öryrkja í ein-
hverri óljósri framtíð á þessum stað.
Það geta eldri borgarar ekki sætt sig
við og vilja að staðið verði við gefin
fyrirheit og það sem fyrst.“
Þannig að það er alltaf eitthvað að
frétta.
Jóhannes Finnur Halldórsson
Höf. er form. stjórnar FEBAN.
„Er eitthvað að
frétta Jóhannes?“
Pennagrein
Fyrir sautján árum heilsaði mér ný
öld með símtali. Það var Gísli Ein-
arsson, þá búsettur á Lundi II, sem
átti fyrsta símtal aldarinnar til mín.
Eftir að hafa afsakað að hringja í
mig á nýarsdag bar hann upp er-
indið og óskaði eftir að ég leik-
stýrði Íslandsklukkunni í Lundar-
reykjadal.
Ekki vissi ég hvar dalinn væri að
finna en á þessum tíma var herra
Google ekki enn tekinn til starfa
svo að við ákváðum því að funda
á miðri leið. Þrátt fyrir að þekkja
Gísla ekki neitt tók ég sénsinn og
féllst á að við hittumst á mótel
Venusi. Þar átum sveitta hamborg-
ara og spjölluðum um Laxness og
leiksýningar. Eftir að hafa hand-
salað samning hófst öllu meira
áhættuatriði en að hitta ókunn-
ugan mann á mótel Venusi, nefni-
lega að setjast upp í bíl með téð-
um manni og aka með honum upp
í Lundarreykjadal. Strax í þess-
ari bílferð sá ég að maðurinn var
þúsundþjalasmiður þar sem hann
kveikti sér í sígarettu, skipti um
geisladiska, rúllaði niður rúðum
og hélt sér á veginum á sömu sek-
úndunni á hraða sem hvaða form-
úluökuþór væri stolltur af.
Ég fékk inni á Skarði II og átti
góða granna á báðar hendur þessa
tvo mánuði sem ég dvaldi þar.
Skemmst er frá því að segja að mér
var afskaplega vel tekið í dalnum.
Þrátt fyrir ýmsar skrýtnar hug-
myndir sem frá mér komu, og
ekki lá alltaf í augum uppi hvernig
skyldi útfæra, voru allir boðnir og
búnir að leggja sitt af mörkum svo
að sýningin yrði að veruleika og
sem best. Og Íslandsklukkan fór á
svið og vakti lukku.
Ég þurfti því ekki að hugsa mig
lengi um þegar í lok síðasta árs ég
fékk fyrirspurn frá leikdeild Umf.
Dagrenningar hvort ég vildi koma
og leikstýra.
Nú er það Hafið eftir Ólaf
Hauk Símonarson sem um tutt-
ugu manna hópur hefur undan-
farna tvo mánuð unnið hörðum
höndum að koma á fjalirnar. Sem
fyrr einkennir verk- og vinnugleði
Lunddælinga. Hvaða atvinnuleik-
hús gæti verið stolt af sköpunar-
og framkvæmdaorkunni sem ein-
kennt hefur vinnuferlið. Hér eru
verkin frekar unnin en að tala um
þau og engin verkáætlun lendir í
nefnd í Lundarreykjadal. Sviðs-
mynd og áhorfendapallar hafa ver-
ið smíðaðir, búningar saumaðir og
munir og erfðagóss fengið að láni
úr fleiri en einni sókn. Og leik-
arar hafa ekki eingöngu lært sinn
texta heldur sýnt hugrekki og þor
í sköpun sinni með því að stíga út
fyrir sinn eigin þægindaramma
og inn í ramma verksins þar sem
fjölskyldumynd Þórðar útgerðar-
manns er kannski ekki alveg jafn
slétt og felld og virðist á yfirborð-
inu.
Við hlökkum til að sjá ykkur
í Brautartungu. Næstu sýningar
verða fimmtu-
daginn 16. og
föstudaginn 17.
mars og hefjast
þær klukkan 20:30. Miða má panta
í símum: 892 9687 og 868 7996.
Halla Margrét Jóhannesdóttir,
leikstjóri
Ljósmyndir: Þór Þorsteinsson.
Frá Íslandsklukku til Hafsins
Pennagrein