Skessuhorn


Skessuhorn - 15.03.2017, Side 45

Skessuhorn - 15.03.2017, Side 45
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 45 Óska eftir í Borgarnesi Hjón með 4 börn óska eftir húsnæði til langtímaleigu í Borgarnesi. Reglusöm, heiðar- leg, snyrtileg og allur pakkinn. Halli s: 821-5283. Íbúð óskast til leigu í Borgarnesi Hjón með eitt barn óska eftir 3-4 herbergja íbúð til leigu í Borgarnesi, helst langtíma- leigu. Erum reglusöm og skilvís. Svar óskast í síma 848-2318 Þórir, 849-2835 María, eða á net- fangið majahrund@simnet.is. Viltu losna við bjúg, sykurþörf og léttast? Þá er Oolong- og Pu-erh teið eitt það albesta. Pakki með 100 te- pokum er á 4.300. Ef keyptir eru 2 pk. er verðið 7.800. Sykurþörfin minnkar og hverfur oftast eftir stuttan tíma og bjúgurinn fer mjög fljótt. Gott fyrir líkamlega og andlega heilsu. S: 845-5715 Nína. Tjaldvagn Til sölu Camp let concord tjaldvagn árg. 2005. For- tjald tjaldast með, eldhús með 3 hellum, yfirbreiðsla, geymslukassi. Er í geymslu, losnar um miðjan maí. Uppl. í s. 866-2151. Markaðstorg Vesturlands LEIGUMARKAÐUR Borgarbyggð - miðvikudagur 15. mars Skallagrímur - Haukar mætast í Domino‘s deild kvenna kl. 19:15 í íþróttahúsinu í Borgarnesi. Borgarbyggð - miðvikudagur 15. mars Kvæðamannafélagið Snorri í Reykholti. Opin æfing og fundur kl. 20. Allir velkomnir. Kvæða- mannafélagið Snorri í Reykholti var stofnað í Reykholti 18. maí 2016 og heldur opna fundi og æfingar í Bókhlöðu Snorrastofu þriðja miðvikudag hvers vetrar- mánaðar. Borgarbyggð - fimmtudagur 16. mars Ungmennafélagið Dagrenning kynnir Hafið, margverðlaunað leikrit eftir Ólaf Hauk Símon- arson. Sýnt í félagsheimilinu Brautartungu kl. 20:30 fimmtu- dag og föstudag. Pantanir í síma: 892-9687 / 868-7996. Grundarfjörður - fimmtudagur 16. mars Aðalfundur Listvinafélags Grund- arfjarðarkirkju verður haldinn í Safnaðarheimili Grundarfjarðar- kirkju kl. 20. Á dagskrá eru: 1. Skýrsla stjórnar, 2. Ársreikningur, 3. Kosning nýrrar stjórnar, 4. Önnur mál. Léttar veitingar í boði og allir hvattir til að mæta. Stjórn Listvinafélags Grundar- fjarðarkirkju. Borgarbyggð - fimmtudagur 16. mars Rauða Kross deild Borgarfjarðar heldur aðalfund sinn í húsa- kynnum björgunarsveitarinnar Brákar í Brákarey kl. 20. Dagskrá fundar er svohljóðandi: 1. Fundur settur, 2. Kosning fundarstjóra, 3. Skýrsla stjórnar, 4. Reikningar lagðir fram, 5. Stjórnarkosning, 6. Önnur mál. Allir velkomnir. Borgarbyggð - laugardagur 18. mars Skallagrímur - Njarðvík mætast í Domino‘s deild kvenna kl. 16:30 í íþróttahúsinu í Borgarnesi. Borgarbyggð - sunnudagur 19. mars Messa á þriðja sunnudegi í föstu í Borgarneskirkju. Organisti Steinunn Árnadóttir. Prestur Þor- björn Hlynur Árnason. Borgarbyggð - sunnudagur 19. mars Helgihald á Gilsbakka kl. 11. 3.sd. í föstu. Borgarbyggð - sunnudagur 19. mars Guðsþjónusta í Hvanneyrarkirkju kl. 11. 3. sunnudagur í föstu. Reykhólahreppur - mánudagur 20. mars Til stendur að halda námskeið í jarðræktarforritinu jörð.is ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið verður haldið í Reykhólaskóla kl. 13 - 17 (athugið að tímasetning gæti breyst). Sendið skráningu á netfangið bekka@simnet. is eða hringið í Rebekku í síma 894-9123. Stykkishólmur - þriðjudagur 21. mars Snæfell - Keflavík mætast í Domino‘s deild kvenna kl. 19:15 í íþróttamiðstöðinni í Stykkis- hólmi. Nýfæddir Vestlendingar TIL SÖLU Á döfinni 26. febrúar. Drengur. Þyngd 3.306 gr. Lengd 50 sm. Foreldrar: Sara Katrín Benediktsdóttir og Fjalar Örn Sigurðsson, Akranesi. Ljósmóðir: Hafdís Rúnarsdóttir. 11. mars. Drengur. Þyngd 3.180 gr. Lengd 48 sm. Foreldrar: Gunnþórunn Valsdóttir og Gísli Freyr Brynjarsson, Akranesi. Ljósmóðir: Elísabet Harles. Drengurinn hefur fengið nafnið Brynjar Logi Gíslason. 13. mars. Drengur. Þyngd 4.484 gr. Lengd 55 sm. Foreldrar: Aníta Rún Guðnýjardóttir og Daníel Þór Hafsteinsson, Hafnarfirði. Ljósmóðir: Elísabet Harles. Pennagrein Reiði almennings er eðlileg þar sem gífurleg uppsöfnuð þörf er í við- haldi vega og nýframkvæmdum og á það sama við um hafnir landsins og flugvelli. Álag á vegi landsins heldur áfram að aukast með gríðarlegri auk- inni umferð og til landsins streyma ferðamenn sem aldrei fyrr. Áætlað er að á þessu ári komi 2,3 milljón- ir ferðamanna til landsins sem mun þýða enn frekara álag á vegakerfi landsins sem víða stenst ekki lág- marks öryggiskröfur og uppsöfnuð viðhaldsþörf orðin mikil. Og fólki er sannarlega nóg boðið yfir ástandinu. Fjárveitingar og geð- þóttaákvarðanir Fyrir síðustu kosningar töluðu allir flokkar um að nú þyrfti virkilega að spýta í lófana og setja meiri fjármuni í fjársveltar samgöngur og innviði al- mennt. Samgönguáætlun til fjögurra ára var loks afgreidd eftir mikið þóf. Þar var horfst í augu við vandann og forgangsraðað í þágu þeirra land- svæða þar sem þörfin var brýnust. Að kosningum loknum afgreiddi þingið fjárlög sem endurspegluðu ekki samgönguáætlun en niðurstaðan byggðist á því að ný ríkisstjórn myndi taka upp fjárlögin og fullfjármagna samþykkta samgönguáætlun. Það varð nú aldeilis ekki raunin heldur tók samgönguráðherra með ábyrgð ríkisstjórnarinnar sér það geðþótta- vald að gjörbreyta þeirri forgangs- röðun sem Alþingi hafði samþykkt með samgönguáætlun sinni sem hef- ur að sjálfsögðu lögformlegt gildi. Það vantar 10 milljarða til að fjár- magna samgönguáætlun og menn geta ekki boðið almenningi upp á þann málflutning að engir fjármun- ir séu til framkvæmda þegar upplögð tækifæri til að afla nægra fjármuna til framkvæmda blasa við. Það þarf stefnufestu, vilja og einurð til uppbygg- ingar Ferðaþjónustan, sem er orðin stærsti atvinnuvegur þjóðarinnar, þarf að leggja meira til sameiginglegra verk- efna á borð við samgöngur, enda er uppbygging á þessu sviði beinlínis í þágu þessarar starfsgreinar. En stjórn- völd skortir vilja og einurð til að afla meiri tekna eins og hægt væri að gera t.d. með komugjöldum á flugfarseðla, álagi á veiðigjöld stórútgerðarinnar eða með auðlegðarskatti. Markaðir tekjustofnar til vegamála hafa ekki ver- ið færðir upp til samtímaverðlags en ríkið hefur þess í stað aukið hlut sinn í hinu almenna bensíngjaldi sem renn- ur beint í ríkissjóð og er ekki skylt að verja til vegamála enda hefur því ver- ið varið til ýmissa verkefna sem ekkert hafa með samgöngumál að gera. Rúmlega 20 milljarða vantar til að mæta uppsafnaðri fjárfestingaþörf í vegakerfinu. Vestfirðir finna mest fyr- ir niðurskurðarhnífnum á Vestfjarð- arvegi og á Dynjandisheiði er skorið niður um 1,6 milljarð. Næstmest er skorið niður á sunnanverðum Aust- fjörðum, í Berufjarðarbotni og vegna brúar yfir Hornafjarðarfljót. Fjölda annarra framkvæmda mætti nefna eins og Skógarstrandarveg, Vatnsnes- veg, Strandirnar, vegi í uppsveitum Borgarfjarðar, Kjalarnesveg, Skaga- strandarveg og Dettifossveg. Áfram mætti telja í langan lista því viðhald vega hefur verið vanrækt lengi og hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu til samgöngumála dregst stöðugt saman; hefur farið úr 1,5% niður í 1% sem er sögulegt lágmark. Sveitastjórnir og íbúar hafa mót- mælt harðlega niðurskurði til sam- gangna og undirskriftarsöfnun er í gangi þar sem skorað er á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að standa við vega- bætur á Vestfjarðarvegi 60 um Gufu- dalssveit þar sem byggð á sunnanverð- um Vestfjörðum á allt sitt undir því að þar byggist upp heilsársvegur. Sá dráttur sem hefur verið á samgöngu- bótum á því svæði er ekki boðlegur. Það þýðir ekkert að flagga því fram- an í almenning að skoða eigi fjármögn- un með auknum álögum á almenning í formi vegatolla eða selja ríkiseignir sem er einskiptisaðgerð og er eins og að pissa í skóinn sinn. Nú er lag, notum það Hvenær í ósköpunum höfum við efni á að taka til hendinni í fjársvelt- um samgöngum ef ekki nú þegar all- ar efnahagslegar aðstæður eru hag- stæðar þannig að nú ætti að vera lag. Það verður enn dýrara að takast á við vandann ef honum er áfram ýtt á und- an sér og varla gerist mikið ef efna- hagsástandið versnar. Stjórnvöld verða að taka upp fjár- lögin og koma til móts við háværar kröfur almennings um stóraukið fé til vegamála og gera þarf átak í sam- göngubótum almennt bæði til hafna- framkvæmda og viðhalds flugvalla ef ekki á illa að fara því við erum komin yfir öll þolmörk og þolinmæði lands- manna á þrotum. Lilja Rafney Magnúsdóttir. Höf. er alþingismaður VG í Norð- vesturkjördæmi. Fólki er nóg boðið! Það logar allt í samfélaginu yfir sveltistefnu stjórnvalda í samgöngumálum Umræðan síðastliðnar vikur hefur beinst að samgönguáætlun og hvern- ig eigi að fjármagna öll þau mikil- vægu verkefni sem þar eru. Það er ljóst að það vantar fjármagn og það þarf að finna það á einhvern hátt og sýnist mér á umræðunni að vegtoll- ar verði fyrir valinu í einhverjum til- fellum a.m.k. Ég spyr af hverju er ekki sett komugjald á ferðamenn sem hingað koma? Hætta þeir allir við að koma? Dæmi um vegtoll og komugjald. Ferðamenn (4 saman í bíl) aka í gegnum Hvalfjarðargöng í mars 2017 og greiða fyrir það 1.000 kr .og ætla má að þau taki Hvalfjörð- inn aðra leiðina eða fara hring- inn í kringum landið og greiða þar af leiðandi ekki frekari gjöld. Niðurstaða: Spölur ehf. fær 1.000 kr. í kassann frá ferða- mönnunum í mars 2017. Íslendingur sem sækir nám eða vinnu í Reykjavík fimm daga vik- unnar kaupir fyrirfram 100 ferð- ir á 28.300 kr. og fær ferðina á 283 kr. eða 566 kr. fram og til baka. Niðurstaða: Spölur ehf fær 13.018 kr í kassann frá Ís- lendingnum í mars 2017. Komugjald 5.000 ISK pr. ferðamann (4 saman í bíl) Niðurstaða: Ríkissjóður fær 20.000 kr. í kassann frá ferðamönnunum í gegnum komugjöld í mars 2017. Mín persónu- lega skoðun er sú að hætta með vegtolla og leggja á komugjald sem yrði 5.000 kr. pr. ferðamann sem kemur til Íslands hvort sem það sé með flugi eða sjóleiðina. Ýmsar útfærslur er hægt að hafa s.s. börn greiða ekkert komugjald, komu- gjaldið gildir í ákveðinn tíma o.s.frv. Ef þetta gjald hefði verið sett á 2011, á sama tíma og samgönguáætlun var gefin út og gildir fyrir árin 2011-2022, má gera ráð fyrir 22.682.439 ferða- mönnum sem gerir tekjur af komu- gjaldi rúmlega 113 milljarðar króna, með fyrirvara þó um að einhver hluti af þessum ferðamönnum eru börn yngri en 18 ára og myndi þetta þá lækka eitthvað ef börn fá afslátt af gjaldinu. Við getum ekki lagt þetta gjald á afturvirkt, en gætum byrjað í dag og þá má gera ráð fyrir að árin 2017-2022 komi u.þ.b. 16,5 milljón ferðamenn til landsins sem skila þá tæpum 83 milljörðum í komugjöld sem mætti nýta í uppbyggingu á ferðamanna- stöðum og í vegaframkvæmdir. Árið 2017 eru settir 17 milljarð- ar í vegaframkvæmdir. Þó vantar 10 milljarða til að uppfylla samgön- guáætlun sem samþykkt var á þingi fyrir áramót. Það fjármagn væri hægt að fá með komugjöldum þar sem spár gera ráð fyrir 2,4 milljónum ferða- manna árið 2017 sem gera 12 millj- arða íslenskra króna í komugjöld árið 2017. Björn Fálki Nei vegtollar – Já komugjöld Pennagrein

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.