SSFblaðið - des. 2015, Síða 7

SSFblaðið - des. 2015, Síða 7
7 hausTið 1945 áTTi landsbanki íslands 60 ára aFmæli og er þess að nokkru geTið í bankablaðinu það ár. Í grein eftir Klemens Tryggvason kemur m.a. fram að mjög lítil fjölgun hafi orðið í starfsliði bankans áratuginn á undan þrátt fyrir stóraukin umsvif. Starfsmenn Landsbankans árið 1945 voru aðeins 87 talsins en þá hafði útibúum fjölgað og gjaldeyriseftirlitsdeild og hagfræðideild verið settar á stofn. Í tilefni af afmælinu ákvað bankaráðið að gefa 50.000 kr. í námssjóð starfsmanna er hafði verið stofnaður áratug áður. Þá var einnig ákveðið að innrétta efsta loft bankahússins sem samkomusal fyrir starfsmenn. Af ýmsum ástæðum varð þó ekki úr framkvæmdum fyrr en sumarið 1950. Skilningur – réttlæti – víðsýni Með vísan í þessi hugtök þakkar frú Sigríður Brynjólfsdóttir yfirmönnum Landsbankans aukna upphefð kvenna í bankanum og öra þróun í átt til jafnræðis í launamálum á við karlana. Hún ræðir kröfur Landsbankakvenna um sömu laun fyrir sömu vinnu og segir í grein í Bankablaðinu árið 1947: „Höfum við nú fengið þessar óskir okkar uppfylltar þannig, að laun flestra okkar eldri hafa verið færð til samræmis við laun karlmannanna og vonum við að hér verði ekki staðar numið. Einnig hefur ein okkar verið skipuð fulltrúi...“ „Ég sé þig...“ Halldór Stefánsson, sá ágæti rithöfundur og starfsmaður Landsbankans, slær á léttari strengi og birtir í þessu sama hefti ljóðið Skrifstofustúlka. Síðasta erindið er á þessa leið: Ég sé inn um gluggann þinn, á hvíta fagra fingur þú fengið hefur blekklessu, ég veit það ergir þig. Ég vorkenni þér innilega og vil þig láta kyssa, því kannski varstu þá að skrifa reikninginn á mig. Fulltrúaráð tekur við Fljótlega eftir stofnun SÍB fóru að koma fram annmarkar á því fyrirkomulagi að sambandið skyldi vera sameiginlegt starfsmannafélagi þeirra tveggja banka sem í upphafi áttu hlut að máli. Þegar kom fram á eftirstríðsárin hafði þeim svo fjölgað í ellefu og því óhægt um vik að halda svo fjölmenna fundi. Varð því að ráði að SÍB var breytt í fulltrúaráð starfmannafélaganna á aðalfundi haustið 1948 og jafnframt að félögin kysu einn fulltrúa fyrir hverja tíu félagsmenn. „Eins og kýr í fjósi“ Höfuðborgin þandist mjög út á stríðsárunum og hélt sú þróun áfram eftir að kom fram á síðari hluta fimmta áratugarins. Ein afleiðingin varð sú að frá stjórnarráðinu bárust þau tilmæli að bankarnir tækju upp rekstur mötuneytis þar sem starfsmenn hefðu ekki tíma til að ganga til síns heima í hádeginu. Um þetta voru að vonum skiptar skoðanir og Guðmundur R. Ólafsson skrifar í 1. tbl. Bankablaðsins 1948: „Ég tel það vafalaust í verkahring landlæknis ef honum er skýrt frá þessu máli, að vara við því að byrgja starfsfólkið inni í vinnustofunum allan daginn, eins og kýr í fjósi, án nauðsynlegrar útigöngu um miðjan daginn. Væri fróðlegt að leita álits landlæknis og læknadeildar Háskólans á áhrifum þess að heilsu starfsmanna.“ Þrátt fyrir andmæli Guðmundar og eflaust margra fleiri bankamanna varð þróunin sem kunnugt er sú að mötuneytin spruttu upp í bönkunum – og starfsmenn urðu af hressingargöngu í hádeginu. Sænsku húsin rísa Eftir að Byggingarsamvinnufélag bankamanna í Reykjavík hóf starfsemi risu hin svokölluðu „sænsku hús“ af grunni eftir að ófriðnum lauk. Um var að ræða tilsniðin hús frá Svíþjóð og því byggingartíminn stuttur. Bankarnir reyndu að hlaupa undir bagga með byggjendum og m.a. veitti Búnaðarbankinn starfsmönnum sínum hagstæð lán til 35 ára á 5,7% vöxtum. Síðar opnuðust frekari möguleikar til fjármögnunar húsa bankamanna því að eftirlaunasjóðir hófu að veita lán til íbúðabygginga. Mestur þróttur var í Byggingarsamvinnufélagi starfsmanna Landsbankans er var stofnað 1949 og byggði allmargar íbúðir á næstu árum. Myndatexti: Landsbankinn studdi vel við bakið á sínu fólki og m.a. var innréttaður salur á efsta lofti aðalbankans í Reykjavík. Mikill húsnæðisskortur var í Reykjavík fyrir styrjöldina. Hér leggja starfsmenn hitaveitulagnir árið 1945. Mynd: Orkuveita Reykjavíkur. www.or.is VELTIÁR AÐ LOKNU STRÍÐI – 1945-1955 –

x

SSFblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.