SSFblaðið - des. 2015, Blaðsíða 26
26
jóhann jóhannsson, Fyrrverandi sTarFsmaður íslandsbanka á
akureyri, léT nýverið aF sTörFum vegna aldurs eFTir um 47 ára
sTarFsFeril í bankageiranum. Jóhann er fæddur 1949, kvæntur
Steinunni Eggertsdóttur, hárgreiðslumeistara og eiga þau þrjú
uppkomin börn og sex barnabörn. Jóhann hefur upplifað á sínum
starfsferli miklar breytingar í bankageiranum hvort sem litið er til
rekstrarforms, þjónustu eða viðhorfs almennings. Í dag nýtur hann
eftirlaunaáranna og hefur aldrei haft jafn mikið að gera, svo mikið
að erfitt var að finna tíma fyrir viðtalið vegna anna við m.a. að
gæta að barnabörnum, sjá um fjölskylduna, frístundaástundun og
fjölmargt fleira.
hóF sTörF hjá iðnaðarbankanum
Jóhann segir að upphafið að sínum bankaferli hafi borið brátt að.
„Það var um miðjan maí árið 1968 að Jóhann Tómas Egilsson,
skrifstofustjóri Iðnaðarbankans á Akureyri og síðar útibússtjóri,
kom að máli við mig þar sem ég var við störf í einni af verslun
KEA og spurði hvort ég væri til í að vinna í útibúi bankans. Þetta
kom mjög flatt upp á mig en ég var ekki lengi að hugsa mig um
og nokkrum dögum síðar eða 20. maí var ég hættur í minni fyrri
vinnu og tekinn til starfa hjá Iðnaðarbankanum við útibú bankans
sem þá var staðsett á jarðhæð Sjallans á Akureyri, í Geislagötu 15.“
sóTTi sér Fræðslu í bankamannaskólanum
„Við fyrsta tækifæri var svo farið í bankamannaskólann“ segir Jóhann
en sá skóli var stofnaður árið 1959 eftir miklar umræður innan raða
forystumanna Sambands íslenskra bankamanna. Skólinn starfaði
fram til ársins 1999 og útskrifaði um 800 bankamenn á þeim
þrjátíu árum sem hann starfaði. Eftir að rekstri skólans var hætt tók
Menntunarsjóður SSF við hlutverki hans. Jóhann segir að samhliða
bankaskólanum hafi verið öflug fræðsludeild innan bankans þar sem
kerfisbundið var farið í gegnum alla þjónustu og verkferla. Síðar
sótti Jóhann nám í leiðtoga- og mannauðsstjórnun í Háskólanum
í Reykjavík sem Íslandsbanki stóð fyrir auk þess að taka sölu- og
þjónustunámskeið sem haldin voru á vegum Dale Carnegie.
iðnaðarbankinn verður íslandsbanki
Jóhann starfaði fyrst um sinn í sparisjóðsdeild Iðnaðarbankans og var
þar til ársloka 1968. „Þá var ég gjaldkeri næstu sex árin þar á eftir
eða þar til ársins 1975 en þá var ég ráðinn sem aðalféhirðir útibúsins.
Þegar Iðnaðarbankinn fékk svo gjaldeyrisleyfi árið 1983 tók ég við
forstöðu gjaldeyrisdeildar útibúsins samhliða starfi aðalféhirðis þar
til sameining varð með útibúum Iðnaðarbankans, Útvegsbankans,
Alþýðubankans og Verslunarbankans í kjarnaútibú Íslandsbanka
hf. að Skipagötu 14 á Akureyri þann 25. september árið 1990.“
Í kjölfar sameiningar starfaði Jóhann sem fulltrúi í fyrirtækjadeild
Íslandsbanka og sá þar um erlend viðskipti auk almennrar þjónustu
fyrirtækja.
Í desember 1990 sótti Jóhann um stöðu þjónustustjóra einstaklinga
hjá Íslandsbanka á Akureyri og Jóhann man það vel að þann 16.
janúar 1991 barst honum bréf undirritað af Vali Valssyni, bankastjóra,
þess efnis að hann hefði verið ráðinn úr hópi umsækjenda sem
þjónustustjóri/viðskiptastjóri einstaklinga við útibúið á Akureyri.
Því starfi gegndi Jóhann til ársins 2011 er Íslandsbanki kaupir BYR
hf, „en þá tók ég við stöðu lánastjóra einstaklinga og gegndi því til
starfsloka þann 30. apríl 2015 og þar með lauk 47 ára starfsferli“
segir Jóhann.
ánægjulegur en bylTingarkenndur sTarFsFerill
„Á þessum langa og ánægjulega starfsferli mínum hafa orðið ótrúlegar
breytingar á vöruframboði og þjónustu við viðskiptavininn en í
fyrstu var einungis um út- og innlánaviðskipti að ræða sem breyst
HÆTTUR
EFTIR 47 ÁRA
STARF Í BANKA-
ÞJÓNUSTU
Jóhann Jóhannsson fyrir utan síðasta vinnustað sinn, Íslandsbanka, Skipagötu 14 á Akureyri. Mynd: Þórhallur Jónsson.