SSFblaðið - des. 2015, Blaðsíða 45
45
Frá árinu 2002 heFur anna karen hauksdóTTir verið Formaður
sTarFsmannaFélags íslandsbanka (sí) og sTarFsmaður skriFsToFu
Félagsins. Þar hefur hún haft yfirumsjón með trúnaðarstarfi
félagsins, orlofshúsarekstri og almennu félagsstarfi. Hún er jafnframt
varaformaður SSF og sér um alþjóðasamskipti samtakanna.
samvinna og upplýsingamiðlun
heFur aldrei verið mikilvægari
„Eftir að ég byrjaði að starfa að starfsmannamálum bauð ég mig fram
í stjórn Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) enda starf
starfsmannafélags nátengt starfsemi SSF. Ég hef brennandi áhuga á
öllu sem viðkemur starfsumhverfi félagsmannsins. Ég byrjaði í stjórn
SSF á þingi samtakanna árið 2004 og er nú 1. varaformaður. Frá
árinu 2009 hef ég einnig setið í framkvæmdastjórn Nordic Financial
Unions (NFU), þar tók ég við góðu kefli af Friðberti Traustasyni,
formanni SSF, sem hafði sinnt því til fjölda ára“ segir Anna Karen.
Í NFU eru félög frá fimm aðildarlöndum sem verja hagsmuni 150
þúsund félagsmanna.
Í stjórn NFU sitja 1-2 fulltrúar frá hverju norrænu félagi, eftir
félagafjölda og uppbyggingu, stjórnin fer með almennan rekstur
NFU og stýrir samtökunum á milli miðstjórnarfunda. Miðstjórnin
fer með æðsta vald samtakanna og þar situr í stjórn ásamt Önnu,
Andrés Erlingsson, 2. varaformaður SSF. Innan miðstjórnar eru
teknar ákvarðanir um ramma starfseminnar, farið yfir ársreikninga
og stefnu og strauma samtakanna. Framkvæmdastjórn ber svo ábyrgð
á starfi og pólitísku samstarfi á milli miðstjórnarfunda. Arvid Ahrin,
framkvæmdastjóri NFU, og starfsmenn skrifstofu NFU bera ábyrgð
á að framfylgja daglegu starfi NFU og samskiptum við norðurlöndin,
félögin og ESB.
Anna Karen segir að það hafi verið mjög fræðandi og gefandi að
starfa að þessum málum og hún gerði sér fljótt grein fyrir mikilvægi
norræna samstarfsins. „Í kjölfar efnahagshruns árið 2008 hefur
samvinnan og upplýsingamiðlun aldrei verið mikilvægari og NFU
er góður vettvangur til að deila reynslu og skiptast á upplýsingum,
þá er ekki hægt að horfa fram hjá því hve mikilvægt bakland er í
öflugum verkfallssjóði NFU, ef til vinnustöðvunar kemur í aðildarríki
samtakanna.“
hagsmunavarsla og TengslaneT
„Norræna tengslanetið innan NFU er mjög verðmætt, hagsmunavarsla
gagnvart ESB reglugerðum og ein sterk norræn rödd er mikilvæg nú
þegar fleiri reglugerðar- og lagabreytingartillögur eru lagðar fram sem
snúa að fjármálamarkaðnum“ segir Anna.
Hún segir að NFU beiti sínum áhrifum með samræðum og með
umsögnum og tillögum að breytingum á frumvörpum sem lögð eru
fram. „Þar berum við öll sameiginlega ábyrgð að láta lagaramma og
kjarasamninga vinna saman á gagnsæjan og skilvirkan hátt til góðs
fyrir félaga okkar, fyrirtæki og samfélagið í heild.“
sTrandaglóparáðsTeFnan oFarlega í huga
NFU stendur fyrir ýmsum fundum og ráðstefnum á norðurlöndunum
og ein eftirminnilegasta ráðstefnan, að margra mati, var haldinn hér
á landi í samtarfi við SSF í apríl árið 2010. Viðfangsefni fundarins
voru nýjar áskoranir og breytt fjármálaumhverfi. Aðal ræðumaður
fundarins var Philip Jennings, framkvæmdastjóri UNI Global Union,
sem eru regnhlífasamtök stéttarfélaga sem NFU er aðili að og verja
þau hagsmuni 20 milljón starfsmanna í ýmsum starfsgreinum í öllum
heimsálfum. „Á seinni degi ráðstefnunnar hófst gosið í Eyjafjallajökli
sem varð til þess að flug raskaðist og urðu um 100 fundargestir
okkar strandaglópar í nokkra daga. Það var áhugavert að sjá hvernig
kollegar okkar tóku með ólíkum hætti á þeim óþægindum sem
náttúruhamfarirnar ullu. Sumir fylltust skelfingu á meðan aðrir
nutu þess að vera hér og kynntu sér betur land og þjóð. Nokkrir
ráðstefnugesta og þar með strandaglópar komu sem gestir mínir á
árshátíð starfsmanna Íslandsbanka sem haldin var tveimur dögum
eftir fundinn og skemmtu sér konunglega. Einn af þeim var Philip
Jennings sem gerði sér lítið fyrir og rissaði upp eftirminnilega ræðu
í snarheitum á servíettu sem fjallaði um 100 strandaglópa á vegum
SSF. Þessa strandaglópa yrðum við Íslendingar að ættleiða þar sem
ekkert flug væri fyrirhugað frá eyjunni. Enn í dag er ráðstefnan ofarlega
í huga Philip´s en hann eðli starfs síns samkvæmt ferðast víða um
heiminn, en þessi ferð ber ávallt á góma þegar ég hitti hann sem og
uppáhalds eyjan hans.“
NFU ER MIKILVÆGT
BAKLAND
Michael Budolfsen, formaður NFU, Anna Karen Hauksdóttir, alþjóðafulltrúi SSF og
meðstjórnandi NFU og Arvid Ahrin, framkvæmdastjóri NFU.
hversu lengi við yrðum hérna. Í hreinskilni sagt var ég farinn að sjá
fyrir mér að verða hér á landi jafnvel í talsverðan tíma og leiddi hugann
að því að setja hér upp skrifstofu, jafnvel lítið kaffihús. Á endanum
varð ég fyrir vonbrigðum með að þetta skyldu einungis verða fjórir
dagar, þar sem ég var farinn að venjast þeirri tilhugsun að dvelja hér
í eitthvern tíma og sá ekkert vandamál við það.“ Aðspurður hvort
þessi reynsla geri það að verkum að NFU hugsi sig tvisvar um þegar
Ísland kemur til greina sem ráðstefnustaður segir hann svo ekki vera,
„það kemur ekki til greina, þetta var frábært lífsreynsla og allir fóru
mjög glaðir héðan“.