SSFblaðið - des. 2015, Blaðsíða 32
32
við greindum Frá því hér í blaðinu í upphaFi árs að nokkrar
góðhjarTaðar konur Úr íslandsbanka og handavinnuklÚbbi
sTarFsmannaFélags íslandsbanka heFðu Tekið sig saman og prjónað
ungbarnaFöT Úr ull Fyrir nýFædd börn í suður-aFríku. Verkefnið
var unnið í samvinnu við Kvennasamtökin Agora Club á Íslandi en
þau samtök eru systursamtök Ladies Circle Ísland. Bæði samtökin
eru alþjóðleg samtök kvenna sem sinna góðgerðarverkefnum enda
eru einkunnarorð Agora club „Hjálpsemi og umburðarlyndi“ og
einkunnarorð Ladies Circle eru „Vinátta og hjálpsemi“.
Verkefnið gekk vonum framar og þann 16. apríl sl. var formanni
alþjóðlegu kvennasamtakanna Agora Club á Íslandi, Dagnýju Kaldal
Leifsdóttur, afhent 152 prjónadress úr ullargarni (vesti, hosur og
húfa) ásamt 3 teppum og 33 aukahúfum. Fatnaðinum kom hún
áleiðis á fæðingarstofur í Suður-Afríku með aðstoð erlendra kvenna
úr samtökunum.
Ingibjörg Birna Ólafsdóttir, upphafsmaður verkefnisins, hafði
samband við handavinnuklúbb bankans í byrjun ársins og óskaði eftir
aðstoð við að prjóna barnaföt fyrir nýbura í Afríku eftir uppskriftum
sem hún hafði undir höndum frá Dagnýju, formanni Agora Club.
Erindinu var mjög vel tekið og fleiri konur í bankanum fréttu af
þessu. Það myndast mikil prjónamenning og stemming, sérstaklega
á starfsstöð Útibúaþjónustu upp á Lynghálsi þar sem var prjónað
í öllum matar- og kaffitímum og einnig var gripið í prjóna heima
við. Einnig var samstarfsverkefni í gangi hjá Útibúaþjónustu,
Þjónustuveri, Seðlaveri, Skilvirkri starfssemi og stefnumótun og
Lögfræðiinnheimtu. Starfsmenn í VÍB, Viðskipaveri, útibúum og
fleiri deildum ásamt starfsmönnum sem komnir eru á eftirlaun komu
einnig sterkir inn. Margir keyptu og notuðu eigið garn en einnig
fékkst styrkur frá starfsmannafélagi Íslandsbanka og bankanum til
Gjafmildar oG atorkusamar
konur í íslandsbanka
Frá vinstri: Ingibjörg Birna Ólafsdóttir, Auður Ingólfsdóttir, Þórdís Björnsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Þórlaug
Guðbjörnsdóttir, Rósa Hanna Gústafsdóttir, Dagný Kaldal Leifsdóttir, formaður Agora Club, Björg Lárusdóttir,
Helga Einarsdóttir, Guðrún Elísdóttir, Inga Guðný Hauksdóttir, Svandís Óskarsdóttir, Ásdís Hannesdóttir,
Fríða Ágústsdóttir og Bára Guðmannsdóttir.
Ingibjörg Birna, upphafsmaður prjónaverkefnisins í Íslandsbanka og Dagný Kaldal,
formaður Agora Club.