SSFblaðið - dec 2015, Qupperneq 8

SSFblaðið - dec 2015, Qupperneq 8
8 Dýrtíðin eins og ófreskja Verðbólga magnaðist mjög þegar líða tók að lokum fimmta áratugarins og kaupmáttur launa minnkaði ár frá ári. Bjarni G. Magnússon, ritstjóri Bankablaðsins skrifar grein í lokahefti ársins 1948: „Þeir sem stjórna verða að gera sér ljóst, að ekki er hægt að una til lengdar, að kjör almennings séu skert, en alls konar óhóf og eyðsla skipar öndvegi hjá hinu opinbera. Það fyrirheit, sem gefið var á sínum tíma, þegar vísitalan var bundin, um að verðlag færi ekki hækkandi og kaupmáttur launanna yrði aukinn, hefur því miður ekki enn orðið að veruleika.“ Bankatúr Útvegsbankans Starfsmenn Útvegsbankans gerðu sér glaðan dag 25. júní 1949 en þá var farin hópför þeirra um Krísuvíkurveg og m.a. áð í Herdísarvík þar sem menn snæddu kost sinn „í bílunum eða úti undir berum himni“ eins og segir í stuttri klausu. Í lok hennar segir á þessa leið: „Veður er ekki sem best, en þrátt fyrir það var glatt á hjalla og fólkið skemmti sér konunglega. Jók það á ánægju manna að bankastjórar voru allir með í förinni.“ Leikarar í bankamannastétt Þjóðleikhúsið var vígt árið 1950 og af því tilefni var rifjað upp í Bankablaðinu hversu margir leikarar væru í stétt bankamanna. Í ljós kemur að margir af helstu leikurum þjóðarinnar reyndust vera í hópnum og eru m.a. nefndir til sögunnar þeir Jens B. Waage og sonur hans Indriði Waage, Þorsteinn Jónsson, Einar Viðar, Jakob Möller, Ragnar E. Kvaran, Brynjólfur Jóhannesson, Valur Gíslason, Pétur Pétursson, Steindór Hjörleifsson, Sigfús Halldórsson og Indriði Einarsson. Bönkunum fjölgar Sunnudaginn 26. október 1952 var stofnfundur fjórða viðskiptabankans, Iðnaðarbankans, haldinn í Oddfellowhúsinu í Reykjavík en áður voru starfandi Landsbankinn, Útvegsbankinn og Búnaðarbankinn auk Framkvæmdabankans. Á fundinum var kosið fimm manna bankaráð en formlega hóf bankinn starfsemi að Lækjargötu 2 hinn 25. júní árið eftir. Í tengslum við stofnfundinn var rætt um að sameina hinn nýja banka Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis. Þau áform urðu sem kunnugt er ekki að veruleika og róið á önnur mið í þeim efnum. Fleiri bankar fylgdu svo í kjölfarið: Starfsemi Seðlabankans var aðskilin frá Landsbankanum 1961, Verslunarbankinn var stofnaður 1961, Samvinnubankinn 1963 og Alþýðubankinn 1970, auk sparisjóðanna er fjölgaði ár frá ári. Fjörugt íþróttalíf Bankamenn hafa ávallt iðkað íþróttir mikið og gildir það jafnt um listina að keppa til sigurs á andlegu sviði jafnt sem líkamlegu. Starfsmannafélög bankanna mynduðu snemma með sér knattspyrnufélög, skákklúbba og ferðafélög sem skipulögðu bankatúrana víðfrægu. Ekki er hægt að telja upp öll nöfn afreksmanna á íþróttasviðinu hér en þó má nefna nöfn Ara Guðmundssonar, Helga Eiríkssonar, Björns Tryggvasonar, Guðmundar Gíslasonar, Svavars Markússonar, Þórðar B. Sigurðssonar, Jóhanns Arnar Sigurjónssonar og Margeirs Péturssonar. Úr banka í forsetastól Ásgeir Ásgeirsson var sem kunnugt er kjörinn forseti Íslands árið 1952 en hann hafði þá um þrettán ára skeið gegnt starfi bankastjóra Útvegsbanka Íslands. Skömmu áður en hann tók við hinu nýja embætti var honum haldið veglegt kveðjusamsæti í bankanum og við það tækifæri sagði Adolf Björnsson, formaður starfsmannafélagsins m.a. þetta: „Ásgeir Ásgeirsson kom hingað flestum persónulega ókunnugur, en í ljós kom brátt hvern mann hann hafði að geyma, góðan og göfugan dreng, sem frá upphafi veru sinnar hér í bankanum hefir verið vaxandi í hugum okkar.“ Frá starfstíð Iðnaðarbankans; Styrkafhending frá starfsmönnum Iðnaðarbankans. Ásgeir Ásgeirsson, forseti, undirritar eiðstaf við innsetningu árið 1960. www.forseti.is.

x

SSFblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.