SSFblaðið - dec 2015, Qupperneq 9

SSFblaðið - dec 2015, Qupperneq 9
9 árið 1955 var TímamóTaár í íslenskri bankasögu því þá varð bankablaðið og síb 20 ára, landsbanki íslands 70 ára, ÚTvegsbanki íslands 25 ára og bÚnaðarbanki íslands 25 ára. Útgáfa Bankablaðsins þessi tuttugu fyrstu ár þess reyndist brösótt á köflum en það kom þó að jafnaði út tvisvar til fjórum sinnum á ári. Ritnefnd stýrði blaðinu framan af en að því kom að Þorsteinn Jónsson úr Landsbankanum var ráðinn fyrsti ritstjóri Bankablaðsins. Bjarni G. Magnússon, sem var ritstjóri blaðsins í 28 ár, segir í grein í afmælisblaðinu 1955: „Bankablaðið er og verður sá vettvangur, sem líklegastur er að verði okkur drýgstur í baráttunni. Í gegnum það eigum við að kynna sjónarmið okkar, gera grein fyrir málefnum hverju sinni. Með hógværð og rökvísi. Samfara ákveðnum og réttmætum kröfum til betra og lífvænlegra lífs – betri starfsskilyrða – og aukinnar menntunar bankamanna – mun blaðið í framtíðinni sem hingað til verða bestur málsvari íslenskra bankamanna.“ Meiri ítök við samningsgerð Þegar Samband íslenskra bankamanna hélt upp á 20 ára afmælið árið 1955 voru félagar þess 300 talsins en höfðu verið 128 árið 1935. Einvarður Hallvarðsson ræddi m.a. launamál í afmælishófinu og taldi eðlilegt að SÍB færi ekki með þann þátt heldur einstök starfsmannafélög bankanna, „enda virðist það eðlilegt, þegar þess er gætt, að hver banki hefur sínar sérreglur um þessi mál, sem framkvæmdar eru af stjórn hvers banka fyrir sig.“ Þetta viðhorf átti þó eftir að breytast innan SÍB því nú fóru í hönd tímar þar sem sambandið þróaðist hraðfluga í átt til þess að verða raunverulegt stéttarfélag bankamanna í landinu. Síðla árs 1956 settu bankarnir sameiginlega reglugerð um störf og launakjör bankamanna í kjölfar nýrra laga um laun starfsmanna ríkisins. Og þótt ekki sé tekið fram í reglugerðinni að hún sé afrakstur viðræðna við samtök bankamanna, litu þau svo á að SÍB hafi í raun verið viðurkennt sem samningsaðili að nokkru leyti. „Elektronic“ kemur til sögu Í Bankablaðinu árið 1957 er viðtal við Ottó A. Michelsen og skýrir hann lesendum þar frá helstu nýjungum sem þá eru að ryðja sér til rúms í skrifstofutækni. Honum farast svo orð: „Ég get ekki skilið svo við þetta, að ég minnist ekki á þá gleðilegu frétt, að nú er farið að nota „Electronic“ í rafritvélar. Er það IBM sem ríður á vaðið og hefur sjálflesandi auga í sambandi við dálkafærslur. Þetta er að vísu nýlega komið á markaðinn en einmitt „Electronic“ á eftir að minnka vélarnar, gera þær hljóðari, fljótari og öruggari, en það er næsti áfanginn í skrifstofuvélatækninni.“ Óhætt er að segja að Ottó hafi þarna reynst sannspár þótt nokkur ár hafi átt eftir að líða uns tölvur urðu ómissandi í bönkum. Að bisa við bankastörfin Sverrir Thoroddsen, sem lengi starfaði í Útvegsbankanum, orti ljóðabálk um stúlkurnar í bankanum árið 1939 en birti í 25 ára afmælisriti ÚÍ árið 1958. Þar segir í fyrsta erindi: „Í bankanum okkar búa sprund, sem bisa við að reikna út pund; þola hungur, þreyta sund, þenja sig á alla lund: aðrir sofa í morgunmund, matast á við smalahund; og allt er þetta af einni grund: Ekki eru pundin sterling. Þau eru frekar þeirra und. Þið getið spurt hann Erling!“ Skóli bankanna settur á laggirnar Eins og áður hefur komið fram höfðu forystumenn SÍB lengi haft áhuga á að koma á fót skóla fyrir íslenska bankamenn. Málinu var hreyft margsinnis en verulegur skriður komst ekki á málið fyrr en eftir að Jóhannesi Nordal, þá starfsmanni Landsbankans, var falið á félagsfundi í SÍB í september 1958, að semja álitsgerð og tillögur DRAUMARNIR RÆTAST – 1955-1965 –

x

SSFblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.