SSFblaðið - Dec 2015, Page 14

SSFblaðið - Dec 2015, Page 14
14 eftir vinnu. Þá fjölgaði mjög kennslugreinum og framhaldsnám var tekið upp. Skólastjóri var ráðinn Þorsteinn Magnússon, viðskiptafræðingur. NBU þing á Íslandi Norræna bankamannasambandið, NBU hélt þing sitt í fyrsta sinn á Íslandi sumarið 1978. Þingfulltrúar voru ríflega sjötíu frá öllum Norðurlöndunum en félagsmenn í öllum samböndum voru þá 116.338 talsins. Aftur var NBU þing haldið í Reykjavík 9.-11. september 1992 og sóttu það tæplega 90 erlendir þingfulltrúar auk hinna íslensku. Áður hafði verið haldin fræðsluráðstefna á vegum NBU í Reykjavík dagana 24.-26. ágúst 1988 undir einkunnarorðunum „Góð starfsmenntun – besta atvinnuöryggið.“ Tímans tækniundur Á ráðstefnu SÍB um tækniþróun í desember 1978 var m.a. rakin þróun í Landsbankanum frá tímum pennastanga og bleks í upphafi og kom fram að bankinn hefði tekið ritvélar í notkun 1905, NCR bókhaldsvélar árið 1934 og margföldunarvélar árið eftir. NCR gjaldkeravélar komu í Landsbankann árið 1958, veðdeildin tók skýrslugerðarvélar af IBM gerð í notkun 1961 og Kinzle bókhaldsvélar með vaxtaútreikningi komu í bankann árið 1962. Rafreiknideild Landsbankans tók til starfa árið 1966 og ári síðar fær bankinn IBM tölvu af gerðinni 360/20. Fleiri kostagripir áttu eftir að halda innreið sína í íslenska banka og í Reiknistofu bankanna eftir að hún var sett á laggirnar árið 1972 – allt tímans tækniundur. Samstaða og baráttuandi Fyrsta allsherjarverkfall bankamanna skall á 8. desember 1980 og stóð til 12. desember. Reyndu átökin mjög á samstöðu bankamanna og skipulag samtakanna. Aðdragandi verkfallsins var sá að kjarasamningur, er var undirritaður 3. október þá um haustið, var felldur í almennri atkvæðagreiðslu með 60% greiddra atkvæða. Á fundi stjórnar SÍB, samninganefndar og formanna starfsmannafélaganna, 17. nóvember, var ákveðið að boða til verkfalls 3. desember en ríkissáttasemjari lagði fram sáttatillögu á fundi samningsaðila og frestaði verkfallinu til 8. desember. Sáttatillagan var felld í atkvæðagreiðslu og verkfall skall á. Að loknum miklum fundahöldum hjá ríkissáttasemjara tókust loks samningar og bankamenn komu til vinnu 12. desember, reynslunni ríkari. Árangurinn var m.a. umtalsverð kjarabót í krónum og aurum auk ýmissa félagslegra réttinda. Ávinningurinn var þó mest fólginn í lærdómi samstöðu og baráttuanda, sem einkenndi þetta fyrsta verkfall SÍB. Þrjátíu og einn lá fyrir Kortsnoj! Vorið 1981 kom stórmeistarinn heimskunni, Viktor Kortsnoj og tefldi fjöltefli við bankastarfsmenn í samkomusal Búnaðarbankans við Austurstræti. Alls tefldi Kortsnoj við þrjátíu og fimm bankamenn og fóru leikar svo að hann sigraði þrjátíu og einn en gerði fjögur jafntefli. Þeir sem þeim árangri náðu voru Björgvin Á. Ólafsson, Útvegsbanka, Hilmar S. Karlsson, Búnaðarbanka og Landsbankamennirnir Vilhjálmur Þór Pálsson og Jóhann Örn Sigurjónsson. Í fæðingarstað forsetans Vorið 1982 flutti SÍB skrifstofur sínar frá Laugavegi 103 að Tjarnargötu 14, en þar hafði sambandið keypt húsnæði af Félagi íslenskra stórkaupmanna. Flutningnum fylgdi bylting í félagsstarfi og skapaðist gott rými til hvers kyns fundahalda. Húsnæðið var á tveim hæðum, ris og kjallari, um 95 fermetrar að grunnfleti. Húsið var nýuppgert þegar SÍB festi á því kaup. Í boði, sem forseti Íslands gekkst fyrir að Bessastöðum í tilefni af stjórnarfundi NBU hér á landi, kom frú Vigdís Finnbogadóttir viðstöddum á óvart með því að tilkynna að hún hefði fæðst og búið um skeið í Tjarnargötu 14, húsinu þar sem SÍB hafði nýlega flutt starfsemi sína. Færði hún sambandinu nokkur póstkort og bréf er hún hafði fengið send er hún dvaldi þar í foreldrahúsum. Hefur þeim gögnum verið komið fyrir á viðeigandi hátt á skrifstofu SÍB. SÍB í hálfa öld Þegar Samband íslenskra bankamanna hélt upp á hálfrar aldar afmæli sitt í ársbyrjun 1985 voru félagsmenn orðnir 3.200 talsins og aðildarfélögin 17. Sveinn Sveinsson, þáverandi formaður SÍB, segir í leiðara Bankablaðsins skömmu fyrir afmælið á þessa leið: „Síðustu 15 árin í starfsemi SÍB hafa mjög einkennst af baráttu fyrir bættum kjörum til handa bankamönnum. Langþráður áfangi náðist með tilkomu samnings- og verkfallsréttarins árið 1977, sem mikla vinnu var búið að leggja í til að ná fram. Við það lagðist niður einhliða réttur bankaráðanna til að ákvarða kaup og kjör bankastarfsmanna. Á móti hefur vinna við kjarasamningsgerð margfaldast, sérstaklega á tímum þegar stutt er á milli samninga.“ Bankamenn hvöttu samningamenn sína til dáða í verkfallinu í desember árið 1980. Hér kemur Björgvin Vilmundarson, formaður samninganefndar bankanna, af samningafundi. Björgvin reyndist félagsmönnum SÍB afskaplega vel í allri kjara- og hagsmunabaráttu.

x

SSFblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.