SSFblaðið - dec 2015, Qupperneq 35

SSFblaðið - dec 2015, Qupperneq 35
35 þÚ erT á leið inná bílasölu. þar sTanda bílarnir í röðum, sTíFbónaðir og glansandi. Þú finnur titring í vasanum. Skilaboð frá Moven appinu: „Ertu að hugsa um að kaupa bíl?“ Þú svarar já og færð ráðleggingar frá appinu um hvaða bíl væri sniðugast fyrir þig að kaupa. Appið sendir þér einnig yfirlit yfir mánaðarlegan kostnað við bílkaupin og hvaða áhrif þessi auknu útgjöld munu hafa á fjárhag þinn. Hversu mörgum kvöldverðum á veitingastöðum þarftu að fórna? Hvað með að sleppa Spánarferðinni og kíkja frekar til tengdamömmu á Patreksfirði og leggja fyrir 20.000 krónum minna á mánuði? Allt þetta til þess eins að njóta nýju bílalyktarinnar í nokkrar vikur. Ef þú ákveður engu að síður að kaupa bíl mun Moven finna besta bílalánið fyrir þig. Þetta er ekki raunhæft dæmi enn sem komið er en þetta er markmiðið og það er ekki svo langt undan. Margt af þessu býðst nú þegar. öll aThyglin á viðskipTavininn Viðskiptavinurinn ætlast til þess að vandamál hans séu leyst um leið og hann stendur frammi fyrir þeim og það á líka við um fjármálaþjónustu. Hefðbundin bankastarfsemi byggir á óvirkum neytendum, fólk fer til bankans til að fá ráð. „Við (Moven) erum virkir. Á hverjum degi hjálpum við viðskiptavininum að öðlast heilbrigðari fjárhag. Við veitum þeim svör við eftirfarandi spurningum; Hvernig á ég að spara meira? Hvað þarf ég að gera til að geta keypt mér íbúð? Hef ég efni á því að fara út að borða? Hvað á ég að kaupa o.s.frv.“ segir Mohammed Khalil, vöru- og markaðsstjóri Moven. Við hittum Khalil á SPENN! ráðstefnunni, þar sem bankastarfsmenn víðsvegar að úr Noregi sátu þöglir og hlýddu á hann. Þessi frekar auðmjúki gaur í gallabuxum og hettupeysu er talsmaður nýrra tíma. Hann stendur bæði fyrir ógn og tækifæri. Nýja vínið, sem kannski er örlítið súrt. Allir vita að fyrirtæki eins og Moven spretta upp sem illgresi á vori. Með því að einblína á þarfir viðskiptavinarins ætla þeir að taka sér stöðu á markaðinum. „Upplifun viðskiptavinarins er lykillinn að því hvort þér tekst vel til eða ekki. Hagur viðskiptavinarins er okkar verkefni. Allt sem við gerum byggir á þörfum viðskiptavinarins, ekki á okkar þörf til að græða á einni vöru eða annarri,“ segir Khalil. sTöðugar Fjárhagsupplýsingar Hvað er Moven? Við skulum byrja á því einfaldasta; Moven er ekki banki. Moven skilgreinir sig sem lífstíls-app sem er ætlað að bæta fjárhagslega heilsu viðskiptavinarins. Eins konar líkamsræktar-app fyrir peninga. Þegar notandinn skráir sig veitir hann Moven aðgang að öllum fjárhagsupplýsingum sínum og bankareikningum, sama í hvaða banka þá er að finna. Notandinn fær eigið greiðslukort, ásamt því að hægt er að greiða með appinu. Neysla, greiddir reikningar og önnur eyðsla er skráð í appið. Við hverja færslu breytist mat á fjárhagslegri heilsu þinni, en appið inniheldur eigin neyslumæli. Þessi mælir sýnir fjárhagslega heilsu og ef eytt er um of breytist staðan úr því að vera græn yfir í gula og þar á eftir yfir í rauða. Ef þér tekst alltaf að halda þig á grænu, þýðir það að þú ert að leggja fyrir 5% af tekjum þínum. „Þú færð beinar upplýsingar um hversu heilbrigður fjárhagur þinn er. Þú getur einnig séð hvaða áhrif mismunandi valmöguleikar hafa á fjárhag þinn. Fyrir mörgum verður þetta að eins konar leik þar sem þeir leitast við að halda sig á grænu og þannig verður fjárhagurinn sífellt betri,“ segir Khalil. Grunnurinn liggur í greiningu á neysluvenjum almennra neytenda og þannig er hægt að spá fyrir um framtíðar neyslu. Jólainnkaup og ferðalög eru tekin með í reikninginn og því er það ekki bara núverandi staða á reikningnum sem ræður því hvort staðan er græn, gul eða rauð. „En það er notandinn sem ræður hvað telst gott. Það er til dæmis allt í lagi að eyða miklum peningum í ferðalög einn mánuðinn ef tekjur og útgjöld aðra mánuði ársins gera það að verkum að maður er grænn þegar á heildina er litið. Við tökum mið af sjónarhorni notandans og markmiðið er að eiga alltaf fé á reiðum höndum. Við viljum skapa jákvæða upplifun þannig að viðskiptavinurinn skynji að við erum á hans bandi“,“ segir Khalil. Notendur Moven nýta sér appið oft, eða allt að fjórum til sex sinnum á dag og það er auðvelt að taka í notkun. Skráningin tekur um tvær mínútur. Takmarkið er að minnka þennan tíma um helming. Fyrirtækið eyðir engu í markaðssetningu en fjölgun viðskiptavina er fólgin í því að notendur appsins mæla með því. Það, ásamt því að fyrirtækið byggir eingöngu á upplýsingatækni, veldur því að kostnaður við rekstur þess er mjög lítill. Það kostar fyrirtækið milli 10 og 20 dollara að bæta við viðskiptavini, eða einn tíunda af því sem það kostar venjulega banka. 30 lönd á 3 árum Fjármálageirinn stendur nú frammi fyrir því að fjöldi fyrirtækja vill næla sér í sneið af kökunni. Maðurinn er vanadýr og vill helst halda sig við fáa og staðlaða hluti. Moven þarf að verða einn af þessum útvöldu hlutum til að enda ekki sem neðanmálsgrein í sögunni. „Þeir, þrír eða fjórir stærstu munu skara framúr og við ætlum okkur að vera einn af þeim. Til þess þurfum við að horfa út fyrir Bandaríkin. Við búum að því að geta brugðist hratt við og vera vel skipulögð auk þess að byggja á tækni sem auðvelt er að aðlaga breyttum aðstæðum. Við byggjum á vefþjónustu Amazon og gætum í raun tekið til starfa innan klukkustundar frá því að við höfum gert samning við erlenda banka“, segir Khalil. Moven er háð samningum við önnur fjármálafyrirtæki til að þjónusta sína notendur. Fyrirtækið sýslar ekki með peninga sjálft en virkar sem notendavænn milliliður. „Við vinnum með bönkunum að því að bjóða viðskiptavinum okkar bestu kjörin. Við erum í sambandi við okkar notendur daglega og þekkjum þarfir þeirra“, segir Khalil, sem vill gjarnan eiga í samstarfi við norræna banka. „Endilega. Við erum að leita að samstarfsaðilum um alla Evrópu, þar á meðal á Norðurlöndunum. Markmiðið er að hefja starfsemi í 30 löndum á næstu þremur árum.“ Aðspurður að því hversu langan tíma það taki að hefja starfsemi svarar hann því að það velti allt á samstarfsaðilum þeirra. „Við getum gert hlutina mjög hratt. Það eru yfirleitt bankarnir sem þurfa lengri tíma“ bætir hann við. Það á eftir að koma í ljós hvort norrænir bankar taki þessu boði Khalil, eða hvort þeir haldi áfram að betrumbæta sín eigin heimabanka öpp. grunnurinn liggur í grEiningu á nEySluvEnjum almEnnra nEytEnda og Þannig Er Hægt að SPá fyrir um framtíðar nEySlu

x

SSFblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.