SSFblaðið - des. 2015, Síða 46

SSFblaðið - des. 2015, Síða 46
46 ÚThluTað var Úr sjóðnum ForriTarar FramTíðarinnar Fyrir árið 2015 í upphaFi okTóber sl. í ár bárusT sjóðnum alls 42 umsóknir, FlesTar Frá grunnskólum. Virði styrkjanna er samtals ríflega ellefu milljónir króna. Styrkirnir eru í formi tölvubúnaðar og þjálfunar kennara til forritunarkennslu fyrir nemendur. Styrkirnir skiptast að þessu sinni á milli sextán skóla: Egilsstaðaskóla, Grunnskóla Reyðarf jarðar, Hrafnagilsskóla, Glerárskóla, Brekkuskóla, Árskóla, Grunnskólans austan Vatna, Hólabrekkuskóla, Hlíðaskóla, Laugalækjaskóla, Árbæjarskóla, Vættaskóla, Rimaskóla, Hagaskóla, Foldaskóla og Grunnskóla Ísafjarðar. Í skýrslu evrópska skólanetsins (European Schoolnet) frá því í október 2014 kemur fram að forritun er í auknum mæli að verða lykilfærni sem allir skólakrakkar ættu að tileinka sér á einn eða annan hátt. Auk þess sem þessi færni er orðin mjög mikilvæg á vinnumarkaði í hinum ýmsu greinum. Forritun er þar skilgreind sem rökhugsun sem er orðin ein mikilvægasta færni tuttugustu og fyrstu aldarinnar. Í skýrslunni kemur einnig fram að kennarar hafa almennt ekki verið nægilega vel undirbúnir fyrir að forritun sé sett á námskrá. Í þessari úthlutun fengu rúmlega 100 kennarar þjálfun til að kenna forritun og verða 75 tölvur afhentar. Þjálfun kennara skiptir miklu máli því þar styður sjóðurinn einna best við innviðina í skólunum þar sem hún ýtir undir áhuga á forritunar- og tæknimenntun innan skólanna auk þess að auka og byggja upp þekkingu. Þörf fyrir góðar tölvur er mikil í skólakerfinu en ekki er óalgengt að skólar landsins notist við 6-8 ára gamlar vélar í kennslu, jafnvel eldri, vélar sem segja má að séu orðnar úreldar. Þess ber að geta að skólarnir sem fengu styrk að þessu sinni skuldbinda sig til þess að setja forritun á námsskrá í að minnsta kosti 2 ár. Þessi skuldbinding tryggir að jafnt stúlkur og drengir fái kennslu í forritun sem vonandi skilar sér til lengri tíma í fjölgun kvenna í tæknigeiranum. Í skýrslu sem unnin var af starfshópi á vegum Mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Samtaka iðnaðarins kemur fram að Ísland stendur frammi fyrir skorti á tæknimenntuðu fólki en samkvæmt henni útskrifast um 500 manns á ári af raungreina- og tæknisviðum Háskóla landsins á meðan þörfin er um 1.000 manns. Sjóðurinn Forritarar framtíðarinnar var að hluta til stofnaður til þess að mæta þessari þörf en hann hóf starfsemi sína í byrjun árs 2014. Megin hlutverk sjóðsins að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Skólar og sveitarfélög geta sótt um styrki úr sjóðnum til að efla tæknikennslu og notkun á tækni í skólastarfi og fá til þess þjálfun og tækjabúnað, allt eftir þörfum hvers og eins. Þetta er í þriðja sinn sem úthlutað var úr sjóðnum. Árið 2014 var úthlutað styrkjum að verðmæti átta milljónir króna. Samtals hefur því sjóðurinn úthlutað virði tæpra 20 milljóna króna í styrki til skóla árin 2014 og 2015. Frábærar viðTökur Guðmundur Tómas Axelsson, stjórnarmaður í Forriturum framtíðarinnar, segist ánægður með viðtökurnar sem sjóðurinn hefur fengið og þann fjölda umsókna sem hafa borist. Við erum stolt af því að hafa náð að úthluta styrkjum að verðmæti 20 milljóna á fyrstu tveimur starfsárum hans. Við höfum fengið til samstarfs við okkur góða hollvini, bæði einkafyrirtæki sem og Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Samtök iðnaðarins sem sýnir okkur hvernig atvinnulífið og hið opinbera geta unnið saman á farsælan hátt. Starf sjóðsins skiptir skólana greinilega miklu máli. Styrkirnir hafa komið af stað snjóboltaáhrifum og má nefna að skóli á Vestfjörðum sem fékk úthlutað í fyrra og fór á fullt í að innleiða forritun í skólanum smitaði aðra skóla í nágrannabæjum sínum sem fóru líka af stað.“ ómeTanlegur sTuðningur Kjartan Kjartansson, skólastjóri Kirkjubæjarskóla, fékk úthlutað úr sjóðnum árið 2014. Hann segir að „fyrir Kirkjubæjarskóla er 11 MILLJÓNIR VEITTAR Í STYRKI TIL SKÓLA - FORRITARAR FRAMTÍÐARINNAR EFLA TÆKNI- OG FORRITUNARKENNSLU Í GRUNN- OG FRAMHALDSSKÓLUM Guðmundur Tómas Axelsson

x

SSFblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.