Heimsmynd - 01.12.1993, Page 90

Heimsmynd - 01.12.1993, Page 90
19 tillögur að áramótaheitum 1 Telja upp að tíu, þegar rifrildi virðist í aðsigi 2 Fara í heimsókn til tengdó 3 Drekka te í staðinn fyrir kaffi 4 Borða bara eitt prins póló á dag 5 Negla upp myndirnar í stofunni 6 Horfa minna á sjónvarp 7 Tala minna, hlusta meira 8 Vera bara í tveimur vinnum 9 Skilja bílinn eftir og ganga 10 Vera meira með makanum I I Hætta að naga neglurnar I 2 Hætta að reykja I 3 Leika við börnin 14 Nota minna smjör I 5 Hætta að drekka I6 Kaupasundkort I 7 Byrja í líkamsrækt 18 Taka til í bílskúrnum 19 Velja íslenskt 9 tfl yrkur ill ánuður Hvernig er hægt að þrauka af mánuð þar sem sólin skín innan við klukkustund á sólarhring, hitinn er fyrir neðan frostmark og það eru fjögur til fimm vindstig upp á hvern dag? Þegar þessir fáu jólafrfdagar eru búnir og vinna hefst aftur á mánudegi þann 3. janúar eru tæplega þrír mánuðir í næsta almenna frídag. Hann er skírdagur þrítugasta og fyrsta mars, eftir áttatíu og sjö daga. Og framundan er dimmur janúar. Ef veðurfarslegar tölur fyrir janúar eru skoðaðar, sést að af þeim sjöhundruð fjörutíu og fjórum klukkustundum sem hann hefur að geyma, eru að meðaltali þrjátíu sólarstundir. Sólin skín sem sagt innan við klukkutíma á dag samkvæmt mælingum liðinna ára. Frost, snjókoma, skafrenningur, rok og myrkur. Hvernig á að vera hægt að komast í gegnum þennan mánuð, þegar aukakílóin frá jólunum bætast við veðurmartröðina og maður veit að um næstu mánaðarmót berja kreditkortatimburmennirnir fast að dyrum? Hvernig er það hægt? Það er hægt ef maður lætur þessar dökku staðreyndir ekki ná heljartökum á sér. Janúar hefur líka sínar Ijósu hliðar ef grannt er skoðað. Kannski er sú fyrsta að þá eru dagarnir byrjaðir að lengjast aftur. Það gerist að vísu hægt. Hver dagur í janúar er rúmlega fimm og hálfri mínútu lengri en sá næsti á undan. Það mjakast þó. Janúar er líka rétti tíminn til að njóta jólagjafanna áður en maður fær leið á þeim. Lesa bækurnar, hlusta á plöturnar, renna sér á skíðunum og fara í nýju fötin, nota allt þetta dót sem maður fékk í jólagjöf. Og svo er janúar mánuðurinn til þess að einbeita sér að því að láta áramótaheitin byrja að rætast. Að vísu geta áramótaheit eins og að hætta að reykja og fara í megrun aukið á ömurieika mánaðarins, svo það er réttast að geyma slíkt til betri tfma. En það er hægt að láta margt annað rætast. Það er til dæmis upplagt að kaupa sundkort og byrja að stunda sundlaugarnar af krafti í janúar. Það skiptir engu máli hvernig veðrið er þegar maður er í laugunum. Að fara í sund í snjókomu og byl, synda nokkrar ferðir og fara svo í heita pottinn er einstaklega notalegt og hressandi. Það er fleira sem hægt er að hughreysta sig við í janúar. Að minna sig á að aðrir hafi það meira skítt en maður sjálfur er huggun sem hefur löngum dugað mönnum vel. Þótt veðrið sé slæmt hjá okkur þá er það verra hjá mörgum öðrum. Veturnir eru víst mun svakalegri f Síberíu og Alaska og það þarf ekki alltaf að fara svo langt. Stundum er hlýjast í veðri f allri Evrópu á íslandi. Fyrir nokkrum árum kom til dæmis enska fótboltaliðið Luton Town hingað í janúar og spilaði æfingaleik á gervigrasinu í Laugardal vegna þess að öll knattspyrna hafði legið niðri f nokkrar vikur á Bretlandseyjum út af kulda og snjókomu. Á sama tíma var auð jörð hér og þokkalegur hiti. Og fyrst farið er að minnast á fótbolta, þá er 1994 árið sem Heimsmeistara- keppnin í fótbolta verður í Bandaríkjunum. Á þeirri staðreynd einni eiga fótboltaáhugamenn að geta haldið sér á floti í gegnum janúar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.