Heimsmynd - 01.12.1993, Page 105

Heimsmynd - 01.12.1993, Page 105
n 0 ... fjallar bókin um homma sem eru reyndar - merkilegt nokk - báðir giftir. en það eru sjaldgæfar persónur í bókum. Það merkilega er kannski að það má túlka innihald sögunnar þannig að það eigi við okkur öll. Þá meina ég ástarlíf karlmannanna tveggja sem fer fram í kjallaraholu úti í bæ getur átt hliðstæður í kynferðislegum kjallara hvers og eins. Ég á við að hvort sem menn eru hommar, lesbíur eða gagnkynhneigðir, þá hafa þeir sína kynferðislegu kjallaraholu. Hvort sem við elskum konur eða karla þá förum við þegar upp er staðið í gegnum sama litróf tilfinninganna, það er að segja afbrýðissemina.spennuþörfina, eignarhaldsfysnina og svo framvegis. A: Þetta eru alla vega þau skilaboð sem má lesa út úr sögu Guðbergs. Það sem er nýstárlegt við þessa sögu er að hommarnir tveir eru ekki utangarðsmenn, heldur bara „venjulegt fólk”. I sambandi við það sem þú segir um tilfinningarnar, þá er ég ekki viss um að það sé hægt að setja öll þessi ólíku sambönd undir einn hatt. Ég held að það sé til dæmis ekki bara blæbrigðamunur, heldur líka eðlismunur á sambandi fólks af gagnstæðu kyni. Þá meina ég ekki þann mun sem þjóðfélagið sér, heldur þann sem býr á botni tilfinninganna, Eitt sem ég vil nefna og held að skipti máli er sú djúpa sektarkennd sem virðist ríkja hjá hommum og Guðbergur lýsir einmitt í þessari bók. Mig langar að nefna annað sem mér finnst mjög forvitnilegt í þessum pælingum Guðbergs: hann heldur því fram að það hafi verið gert svo mikið út úr eðli konunnar að karlmaðurinn með öllum sínum leyndardómum hafi fallið í skuggann. Hvað finnst þér sem konu um þetta sjónarmið? S: Þetta er stór spurning. Hvort mikið eða lítið hefur verið gert úr eðli konunnar fer eftir því hvaða tímaskeið við tölum um og hvaða samhengi er átt við. Hvort það er verið að tala um konuna í pólitík eða til dæmis listum. Ég hef oft undrast það að karlmenn skuli ekki tjá sínar eigin tilfinningar meira en þeir gera. Eg hef oft og iðulega setið spennt og beðið eftir að heyra meira um það hvernig þeim líður. A: Karlmaðurinn í sögu Steinunnar, Hans Orlygsson, er að líkindum dæmigerður tilfinningalegur þumbari. Hann veður inn til konunnar um miðja nótt, án þess að hún viti raunverulega | hvað hann vill. S: Ég held að það sé einmitt vegna þess að hann viti það ekki sjálfur. Hann er kannski dæmigerður karlmaður sem veður um í tilfinningum sem einhvers konar náttúruafli, það er að segja hann finnur sterkar kanndir sem hann bregst við, en hann skilur ekkert hvað þær þýða frekar en naut í flagi. A: Það er sjálfsagt mikið til í þessu. Og það sem gerir sögur eins og þessar og allan góðan skáldskap svo mikilvægan er það að hann afhjúpar þessa hluti fýrir okkur. Því um leið og skáldi tekst að búa til lifandi persónur eins og gersit í sögum Birgis, Guðbergs og Steinunnar, þá förum við að skilja okkur sjálf. Það er galdurinn. Þú nefndir áðan inngangskaflann í Hengifluginu og talaðir um að þar notaði Birgir mál kvikmyndarinnar. Mérfinnst það svolítið forvitnilegt að hvað myndmálið er farið að hafa mikil áhrif á okkur. Þegar ég las sögu Steinunnar sá ég til dæmis fýrir mér ágæta stuttmynd. S: Kostir sögunnar eða textans fram yfir myndmálið eru einmitt þeir að þegar við lesum bók sviðsetjum við sjálf atburðina í huganum. En það er hins vegar skondið ef þessar sviðsetningar eru allar orðnar á einn veg, það er háð bíómyndum eða sjónvarpi. A: Það er lóðið. Fyrir daga kvikmyndanna hlýtur fólk að hafa sviðsett sögur í huganum á allt annan og ólíkan hátt. Reyndar tvinnast bókmenntir og kvikmyndir víða saman. Mér dettur til dæmis í hug hvernig Guðbergur tengir hvað eftir annað kynlíf og dauða. Minnir það ekki dálítið á kvikmyndir. S:Jú, svo sannarlega. Menn hafa til dæmis haft gaman af að lesa þetta út úr myndum Hitchcocks, þar sem kynferðislegar nautnastundir renna sman við morð, þannig að líkindin verða augljós. Og af því Hitchcock var jafn áhrifamikill og hann var þá erum við enn að horfa á þetta sama í mörgum myndum þegar við förum í bíó. A: úr því að við erum farin að tala um bókmenntir og kvikmyndir langar mig að nefna af þessum þremur sögum átti ég erfiðast með að sjá sögu Guðbergs fýrir mér sem bíómynd. Kannski vegna þess að Guðbergur er ekki að segja sögu í venjulegri merkingu. Sú kvalda ást sem hugarfýlgsnin geyma er miklu frekar skýrsla um hugrenningar og sálarástand manns. Svona í lokin má segja að hluti af þeirri ánægju sem maður fær af því að böðlast á stuttum tíma í gegnum þessar þrjár sögur sé það hvað þær eru skemmtilega ólíkar, - jafn vel þótt þær fjalli um svipað efni. S: Það er akkúrat það bráðskemmtilega. Það er hægt að standa á hlaðinu á Hóli eða Sæbóli og segja sömu sögurnar með mismunandi áherslum eftri útsýni hvers og eins. A: En verðum við ekki svona í lokin að að gefa sögunum einkunnir? Það er alveg gríðarlega vinsælt núna. S: Æ, nei mér finnst öll einkunnagjöf svo takmörkuð og segja svo lítið. Það er til dæmis alveg út í hött að vera gefa skáldum stjörnur eins og íþróttamönnum. A: Mér dettur í huga að við getum sæst á að gefa öllum þessum þremur sögum þá einkunn að ef við værum strandaglópar einhvers staðar á eyðieyju þá myndu þær gera okkur einveruna bærilegri en annars. Desember Heimsmynd 1 0 5 Ljósmyndir/Stefán Karlsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.