Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Síða 14
Það ætlaði allt um koll að keyra þegar fyrirlesarinn Alda Karen Hjaltalín mætti í Kastljós um miðjan janúar. Þar gagnrýndi Hafrún Kristjánsdóttir sál- fræðingur málflutning Öldu Karenar, möntru henn- ar í rauninni, um að „þú ert nóg“. Þessi mantra átti að vera allra meina bót, jafnvel virka gegn kvíða og sjálfsvígshugsunum. „Í fyrsta lagi, það er ekki lausn við sjálfsvígsvanda að segja „ég er nóg“ eins og Alda Karen hélt fram. Því fer fjarri,“ sagði Hafrún, en umræðan spratt í kringum fyrirlestra sem Alda Karen hélt í Hörpu. Margir í þjóðfélaginu höfðu Öldu Karen að háð og spotti fyrir furðuleg ráð og töldu hana gera lítið úr sjálfsvígum. Alda Karen stóð storminn af sér, en lítið hefur heyrst til hennar síð- an. 14 27. desember 2019ANNÁLL - JANÚAR Blakkát, barnaníð og glápararnir Mest lesna frétt dv.is í janúar, og jafnframt ein mest lesna frétt ársins, snerist um umkvartan- ir áhrifavaldsins og athafnakonunnar Manuelu Óskar Harðardóttur. Manuela byrjaði árið með hvelli og sagði fylgjend- um sínum til syndanna fyrir að glápa á myndir af henni og „læka“ ekki. „Þetta er svo shitty,“ sagði Manuela í „story“ á Instagram og hélt áfram. „Ef ég fylgi þér þá mun ég læka myndirnar þínar! Fylgjendur ættu ekki að vera bara fylgjendur heldur stuðningsmenn. Þegar ég horfi á „pages insight“ þá stemma ekki tölurnar,“ sagði hún. Manuela hefur ekki borið upp þessa kvörtun aftur. Sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson er óhræddur við að blanda sér í þjóðfélagsumræðuna. Frétt um lista hans yfir ríkustu „bótaþegana“ fór á flug um miðbik janúar og espaði upp reiði ein- hverra. Á þeim lista var að finna tekjuhæstu 330 Ís- lendingana og miðaði Gunnar Smári skatta þessara einstaklinga við þá sem skatta sem þeir hefðu þurft að greiða í Danmörku. „Til að sjá hvernig bylting hinna ríku hefur leikið ríkisreksturinn ættum við að gera kröfu um að fá blaðsíður fremst í fjárlögin, sem sýna styrki til auðugasta fólksins. Til dæmis með því að bera skattheimtuna hér við skattheimtu landa, sem gengu ekki jafn langt inn blindgötu ný- frjálshyggjunnar,“ sagði Gunnar Smári en bætti við þeim fyrirvara að á listann vantaði margt auðugt fólk því fólkið á listanum ætti það sameiginlegt að vera með há laun, hafa greitt sér mikinn arð eða selt eignir. Meðal þeirra sem vermdu sæti listans voru Guðmundur Kristjánsson í Brimi, Samherjinn Þor- steinn Már Baldvinsson og athafnamaðurinn Róbert Wessman. Harmleikurinn á Litla-Hrauni er fanginn Þorleifur Haralds- son, eða Leifi, svipti sig lífi skók samfélagið í byrjun árs. Leifi var 44 ára gamall þegar hann lést og lætur eftir sig eina dóttur. Heim- ildarmaður DV sagði kerfið hafa brugðist Leifa því fangelsið hefði ekki verið staður fyrir hann, en Leifi sati nni fyrir ítrekuð brot á umferðarlögum undir áhrifum vímuefna. „Hann átti ekki að vera í fangelsi heldur í einhverju meðferðarúrræði. Það er skömm að því að slík úrræði séu ekki til hér á landi,“ sagði heimildarmaður. Leifi var þriðji fanginn sem féll fyrir eigin hendi innan veggja ís- lenskra fangelsa á tveimur árum. Mál Ólafs Williams Hand, fyrrverandi markaðsstjóra Eimskipa, kom upp á yfir- borðið í janúar en um miðjan desember var hann fundinn sekur um alvarlegt of- beldi gegn barnsmóður sinni. Ólafur var ákærður fyrir að hafa tekið barnsmóður sína hálstaki og þrengt ítrekað að hálsi hennar, hrint henni þannig að hún féll í gólfið, rifið í hár hennar og ýtt henni utan í vegg. Í kjölfarið missti Ólafur vinnuna hjá Eimskipum. Ólafur hefur haldið sakleysi sínu fram statt og stöðugt og sakað barnsmóðurina um umgengnistálm- un, meðal annars í viðtali við Stöð 2 í febrúar árið 2017. Ólafur hef- ur áfrýjað úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur til Landsréttar. Ásakanir í garð Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi ráðherra og sendi- herra, um barnaníð og kynferðislegt áreiti náðu hámarki í janúar. Fjöldi kvenna gekk í #metoo-hóp á Facebook sem sneri að Jóni Baldvini og margar konur stigu fram og lýsti meintu ofbeldi hans. Svipaðar ásakanir á hendur Jóni komu fram fyrir fjölmörgum árum og sem fyrr var það dóttir Jóns, Al- dís Schram, sem var mest áberandi kvennanna. Aldís hefur haldið því fram að faðir hennar hafi misnotað hana barnunga. Jón hefur staðfastlega haldið fram sakleysi sínu. Venja er að skiptar skoðanir um áramótaskaupið gefi tóninn fyrir árið. Það var hins vegar annar þáttur sem olli enn meiri usla en skaupið og það var Ófærð úr smiðju Baltasars Kormáks. Í einum þætti, sem sýndur var um miðjan janúar, vakti þessi textabútur reiði: „Ég skil þetta með Skúla, hann er svona korter í Downs en ég hélt í alvöru talað, það verða að vera allavega tvær fokkin heilasell- ur í hausnum á þér!“ Foreldrar og ættingjar fólks með Downs stigu fram og lýstu vandlætingu sinni á þessu orðfæri og svo fór að lok- um að handritshöfundurinn Sigurjón Kjartansson baðst afsökunar. Svo voru það blessuð pálmatrén sem borgar meirihlutinn ákvað að gróðursetja í Vogabyggð, austan við Sæbraut. Pálma- trén eiga að vera í upphituðum glerhjúpi en kostnaðurinn við hríslurnar tvær met- inn 140 milljónir. Það er skemmst frá því að segja að hugmyndin vakti ekki lukku meðal borgarbúa og lét minnihlutinn mikið í sér heyra. En hvar eru trén? Eitt magnaðasta viðtal ársins var á Hring- braut í lok janúar. Gunnar Bragi Sveins- son, þing- og Klaustursmaður, hélt því þar fram að hann myndi ekkert frá örlagaríka kvöldinu á Klaustri bar og að hann hefði farið í „blakkát“ í 36 klukkutíma. „Ég ekki veit hvað ég gerði, ég þurfti að hlusta á upptökurnar. Ég týndi fötunum mínum þessa nótt. Það er algjört „blakkát,“ algjört minnis- leysi,“ sagði Gunnar Bragi. Síðar sýndi DV fram á, með vísan í upptöku af viðtali DV við Gunnar Braga, að hann mundi eftir kvöldinu, upp á hár. Þórarinn Tyrfingsson, fyrrverandi formaður SÁÁ og yfirlæknir á Vogi, sagði mögulegt að fara í 36 klukkutíma óminni. n Harmleikur á Litla-Hrauni n Endalok snapparanna n „Ég týndi fötunum mínum þessa nótt“ „Þetta er svo shitty“ Sólrún Diego tikynnti það með pomp og prakt að hún væri hætt á Snapchat. Vin- kona hennar, Camilla Rut, fylgdi í fótspor hennar. Þetta markaði endalok gríðarlegra vinsælda Snapchat meðal áhrifavalda og Instagram tók við sem nýr auglýsingamiðill þess góða fólks. Harmleikur Dæmdur Korter í Downs Barnaníð og ofbeldi Hríslur á 140 milljónir Þú ert nóg Gunnar Smári og „bótaþegarnir“ Minnisleysið Endalok snapparanna
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.