Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 14
Það ætlaði allt um koll að keyra þegar fyrirlesarinn
Alda Karen Hjaltalín mætti í Kastljós um miðjan
janúar. Þar gagnrýndi Hafrún Kristjánsdóttir sál-
fræðingur málflutning Öldu Karenar, möntru henn-
ar í rauninni, um að „þú ert nóg“. Þessi mantra átti
að vera allra meina bót, jafnvel virka gegn kvíða og
sjálfsvígshugsunum. „Í fyrsta lagi, það er ekki lausn
við sjálfsvígsvanda að segja „ég er nóg“ eins og Alda
Karen hélt fram. Því fer fjarri,“ sagði
Hafrún, en umræðan spratt í
kringum fyrirlestra sem Alda
Karen hélt í Hörpu. Margir
í þjóðfélaginu höfðu Öldu
Karen að háð og spotti
fyrir furðuleg ráð og
töldu hana gera lítið úr
sjálfsvígum. Alda Karen
stóð storminn af sér,
en lítið hefur heyrst
til hennar síð-
an.
14 27. desember 2019ANNÁLL - JANÚAR
Blakkát, barnaníð og glápararnir
Mest lesna frétt dv.is í janúar, og jafnframt ein mest
lesna frétt ársins, snerist um umkvartan-
ir áhrifavaldsins og athafnakonunnar
Manuelu Óskar Harðardóttur. Manuela
byrjaði árið með hvelli og sagði fylgjend-
um sínum til syndanna fyrir að glápa á
myndir af henni og „læka“ ekki. „Þetta
er svo shitty,“ sagði Manuela í „story“
á Instagram og hélt áfram. „Ef ég fylgi
þér þá mun ég læka myndirnar þínar!
Fylgjendur ættu ekki að vera bara
fylgjendur heldur stuðningsmenn.
Þegar ég horfi á „pages insight“ þá
stemma ekki tölurnar,“ sagði hún.
Manuela hefur ekki borið upp
þessa kvörtun aftur.
Sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson er
óhræddur við að blanda sér í þjóðfélagsumræðuna.
Frétt um lista hans yfir ríkustu „bótaþegana“ fór
á flug um miðbik janúar og espaði upp reiði ein-
hverra. Á þeim lista var að finna tekjuhæstu 330 Ís-
lendingana og miðaði Gunnar Smári skatta þessara
einstaklinga við þá sem skatta sem þeir hefðu þurft
að greiða í Danmörku. „Til að sjá hvernig bylting
hinna ríku hefur leikið ríkisreksturinn ættum við
að gera kröfu um að fá blaðsíður fremst í fjárlögin,
sem sýna styrki til auðugasta fólksins. Til dæmis
með því að bera skattheimtuna hér við skattheimtu
landa, sem gengu ekki jafn langt inn blindgötu ný-
frjálshyggjunnar,“ sagði Gunnar Smári en bætti við
þeim fyrirvara að á listann vantaði margt auðugt
fólk því fólkið á listanum ætti það sameiginlegt að
vera með há laun, hafa greitt sér mikinn arð eða selt
eignir. Meðal þeirra sem vermdu sæti listans voru
Guðmundur Kristjánsson í Brimi, Samherjinn Þor-
steinn Már Baldvinsson og athafnamaðurinn Róbert
Wessman.
Harmleikurinn á Litla-Hrauni
er fanginn Þorleifur Haralds-
son, eða Leifi, svipti sig lífi skók
samfélagið í byrjun árs. Leifi var
44 ára gamall þegar hann lést og
lætur eftir sig eina dóttur. Heim-
ildarmaður DV sagði kerfið hafa brugðist Leifa því fangelsið hefði
ekki verið staður fyrir hann, en Leifi sati nni fyrir ítrekuð brot á
umferðarlögum undir áhrifum vímuefna. „Hann átti ekki að vera
í fangelsi heldur í einhverju meðferðarúrræði. Það er skömm að
því að slík úrræði séu ekki til hér á landi,“ sagði heimildarmaður.
Leifi var þriðji fanginn sem féll fyrir eigin hendi innan veggja ís-
lenskra fangelsa á tveimur árum.
Mál Ólafs Williams Hand, fyrrverandi
markaðsstjóra Eimskipa, kom upp á yfir-
borðið í janúar en um miðjan desember
var hann fundinn sekur um alvarlegt of-
beldi gegn barnsmóður sinni. Ólafur var
ákærður fyrir að hafa tekið barnsmóður
sína hálstaki og þrengt ítrekað að hálsi
hennar, hrint henni þannig að hún féll í
gólfið, rifið í hár hennar og ýtt henni utan í vegg. Í kjölfarið missti
Ólafur vinnuna hjá Eimskipum. Ólafur hefur haldið sakleysi sínu
fram statt og stöðugt og sakað barnsmóðurina um umgengnistálm-
un, meðal annars í viðtali við Stöð 2 í febrúar árið 2017. Ólafur hef-
ur áfrýjað úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur til Landsréttar.
Ásakanir í garð Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi ráðherra og sendi-
herra, um barnaníð og kynferðislegt áreiti náðu hámarki í janúar. Fjöldi
kvenna gekk í #metoo-hóp á Facebook sem sneri að Jóni Baldvini og margar
konur stigu fram og lýsti meintu ofbeldi hans. Svipaðar ásakanir á hendur
Jóni komu fram fyrir fjölmörgum árum og sem fyrr var það dóttir Jóns, Al-
dís Schram, sem var mest áberandi kvennanna. Aldís hefur haldið því fram
að faðir hennar hafi misnotað hana barnunga. Jón hefur staðfastlega haldið
fram sakleysi sínu.
Venja er að skiptar skoðanir um áramótaskaupið gefi tóninn fyrir
árið. Það var hins vegar annar þáttur sem olli enn meiri usla en
skaupið og það var Ófærð úr smiðju Baltasars Kormáks. Í einum
þætti, sem sýndur var um miðjan janúar, vakti þessi textabútur
reiði: „Ég skil þetta með Skúla, hann er svona korter í Downs en ég
hélt í alvöru talað, það verða að vera allavega tvær fokkin heilasell-
ur í hausnum á þér!“ Foreldrar og ættingjar fólks með Downs stigu
fram og lýstu vandlætingu sinni á þessu orðfæri og svo fór að lok-
um að handritshöfundurinn Sigurjón Kjartansson baðst afsökunar.
Svo voru það blessuð pálmatrén sem
borgar meirihlutinn ákvað að gróðursetja
í Vogabyggð, austan við Sæbraut. Pálma-
trén eiga að vera í upphituðum glerhjúpi
en kostnaðurinn við hríslurnar tvær met-
inn 140 milljónir. Það er skemmst frá því að
segja að hugmyndin vakti ekki lukku meðal
borgarbúa og lét minnihlutinn mikið í sér
heyra. En hvar eru trén?
Eitt magnaðasta viðtal ársins var á Hring-
braut í lok janúar. Gunnar Bragi Sveins-
son, þing- og Klaustursmaður, hélt því þar
fram að hann myndi ekkert frá örlagaríka
kvöldinu á Klaustri bar og að hann hefði farið
í „blakkát“ í 36 klukkutíma. „Ég ekki veit hvað
ég gerði, ég þurfti að hlusta á upptökurnar.
Ég týndi fötunum mínum þessa nótt. Það er
algjört „blakkát,“ algjört minnis-
leysi,“ sagði Gunnar Bragi.
Síðar sýndi DV fram á, með
vísan í upptöku af viðtali DV
við Gunnar Braga, að hann
mundi eftir kvöldinu, upp
á hár. Þórarinn Tyrfingsson,
fyrrverandi formaður SÁÁ og
yfirlæknir á Vogi, sagði
mögulegt að fara
í 36 klukkutíma
óminni.
n Harmleikur á Litla-Hrauni n Endalok snapparanna n „Ég týndi fötunum mínum þessa nótt“
„Þetta er svo shitty“
Sólrún Diego tikynnti það með pomp og
prakt að hún væri hætt á Snapchat. Vin-
kona hennar, Camilla Rut, fylgdi í fótspor
hennar. Þetta markaði endalok gríðarlegra
vinsælda Snapchat meðal áhrifavalda og
Instagram tók við sem nýr auglýsingamiðill
þess góða fólks.
Harmleikur
Dæmdur
Korter í Downs
Barnaníð og ofbeldi
Hríslur á 140 milljónir
Þú ert nóg
Gunnar Smári og
„bótaþegarnir“
Minnisleysið
Endalok snapparanna