Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Síða 22
22 27. desember 2019ANNÁLL - MAÍ
Hatur í Tel Aviv og hákarladráp
Einn stærsti viðburður ársins fer fram í maí hvert
ár, sjálf Eurovision-keppnin. Að þessu sinni var
hún haldin í Tel Aviv í Ísrael og skiptar skoðanir
voru um atriði Hatara þar í landi. Voru einhverj-
ir sem töldu að Hatari þyrfti að vara sig þar sem
þeir breiddu út pólitískan áróður, sem brýtur í
bága við reglur keppninnar. Ferð Hatara til Ísr-
ael var fróðleg og forvitnileg, svo ekki sé meira
sagt, og hafði þjóðin slíka tröllatrú á slagaran-
um Hatrið mun sigra að fjölmargir voru fullvissir
um að Íslandi myndi sigra. Hatari komst upp úr
undanriðlinum en bar ekki sigur úr býtum, held-
ur Hollendingurinn Duncan Laurence. Sjaldan
hefur verið jafn mikið fjölmiðlafár í kringum
Eurovision-atriði frá Íslandi eins og Hatara
og skilar það sér í metfjölda innsendra laga í
Söngvakeppnina 2020.
Myndband af tveimur sjó-
mönnum Bíldseyjar SH 65
fór eins og eldur í sinu um
internetið í lok maí. Vakti það
mikinn óhug. Sjómennirn-
ir Halldór Gústaf Guðmunds-
son og Gunnar Þór Óðinsson
pyntuðu Grænlandshákarl
til dauða og deildu mynd-
bandi af verknaðinum á Face-
book. Þeir skáru sporðinn af
skepnunni og hlógu sig mátt-
lausa. Stuttu eftir að mynd-
bandið leitaði í fréttir voru
sjómennirnir reknir. Þriðji
skipverjinn, Árni Valgarð
Stefánsson, sem virðist yfir-
leitt kallaður Árni Biddu, var
einnig rekinn þótt hann kæmi
ekki fyrir í myndbandinu.
Ein spaugilegasta frétt maí snerist um forláta
gólfmottur í IKEA, mottur sem komu í tak-
mörkuðu upplagi. Motturnar voru hluti af
línunni IKEA Art Event, allar ólíkar og hannað-
ar af heimsþekktum hönnuðum. Þar á meðal
voru Off-White mottur úr smiðju Virgils Aboh,
listræns stjórnanda Louis Vuitton. Viðskipta-
vinir, sem mættu fyrir opnun IKEA þann dag
sem motturnar fóru í sölu, voru ekki sáttir. Sex
Off-White mottur voru auglýstar til sölu en
þegar viðskiptavinur númer tvö í röðinni ætl-
aði að næla sér í eina voru þær uppseldar. Kom
í ljós að starfsmenn höfðu keypt hinar fimm
motturnar og ekki farið að reglum. Málið end-
aði vel þar sem tveir starfsmenn skiluðu mott-
um sínum til að gleðja mottuóða neytendur.
Landsréttur mild-
aði dóm Héraðsdóm
Reykjaness yfir Þor-
steini Halldórssyni
niður í fimm og hálft
ár en héraðsdómur
dæmdi hann í sjö ára
fangelsi. Ástæðan
var sú að Landsréttur
taldi aðeins búið að
sanna eina nauðgun
af þeim þremur sem
hann var dæmd-
ur fyrir. Þorsteinn
var sakaður um að
hafa borið fíkniefni
í átján ára pilt með
þeim afleiðingum
að hann var nánast
meðvitundarlaus í
viku. Þorsteinn braut
ítrekað á piltinum í
um tvö ár og hófust
brot þegar drengur-
inn var fimmtán ára.
Um miðbik maí fréttist af því að Félag íslenskra
leikara, FÍL, hefði sent Þjóðleikhúsráði og
mennta- og menningarmálaráðherra, form-
lega kvörtun vegan hegðunar Ara Matthíassonar
þjóðleikhússtjóra. Sagði Birna Hafstein, formað-
ur FÍL, að málið snerist um ósæmilega hegðun
Ara gagnvart listamönnum. Ari sakaði Birnu
um að vinna gegn hagsmunum Þjóðleikhússins
með ómaklegum hætti. Leiklistarheimurinn log-
aði í kjölfar deilnanna. Í byrjun sumars sagði
leiklistar ráð af sér svo að ekki yrði hætta á að
ráðning nýs þjóðleikhússtjóra yrði undirorpin
vafa um hæfi ráðsmanna. Ari hætti sem þjóð-
leikhússtjóri og Magnús Geir Þórðarson, fyrrver-
andi útvarpsstjóri, hreppti þann stól fyrir ekki
svo löngu.
Í maí var líka byrjað að
fabúlera um að Bjarni Bene-
diktsson væri á leið út úr
stjórnmálum. Hann situr enn
sem fastast í fjár-
málaráðu-
neytinu en
sögusagn-
irnar verða
sífellt há-
værari.
Viðtal New York Times við
tónlistarkonuna Björk kom
landsmönnum á óvart en í því
afhjúpaði hún að hún hefði
ekki þénað krónu síðustu tvo
áratugina. „Ég á nokkur hús
og bústað uppi í fjöllum. Ég
hef það allt í lagi. En ég hef
sennilega ekki þénað krónu
síðustu, ég veit
ekki, tutt-
ugu ár.
Það fer
allt aftur
í vinnuna
mína og
mér líkar
það.“
Leikkonan og aktífistinn
Pamela Anderson og Krist-
inn Hrafnsson, ritstjóri
WikiLeaks, voru fyrstu
gestirnir til að heimsækja
blaðamanninn Julian
Assange í fangelsið í Bel-
marsh í London síðan hann
var handtekinn þann 11. apr-
íl og dæmdur í fimmtíu vikna
fangelsi fyrir að svíkjast und-
an tryggingu. Bæði Pamela
og Kristinn hafa verið ötul-
ir stuðningsmenn Assange
og gagnrýndu handtökuna
harðlega.
Mottumanía í IKEA n Sögusagnir um Bjarna Ben n Leiklistarheimurinn logar
Pynting
á sjó
Logandi leiklistarheimur
Hatarahiti
Barnaníðingur slapp billega
Should I stay
or should I go?
Óvænt par
Á flæðiskeri
Barist um mottu