Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Side 34
34 27. desember 2019ANNÁLL - NÓVEMBER
Samherjaskjölin skekja samfélagið
iPhone viðgerðir
facebook.com/biladursimi
780 7459
www.biladursimi.com
n Ásdís Rán og fjársvikahringurinn n Undarlegt kynlífstæki n Borgarafundurinn ógurlegi
Samherjaskjölin
Mál málanna í nóvember, og raunar enn, eru Sam-
herjaskjölin sem skóku þjóðina. Uppljóstranir Kveiks
og Stundarinnar hreyfðu við landanum í nóvember-
mánuði þegar uppljóstrarinn Jóhannes Stefánsson,
fyrrverandi starfsmaður Samherja, steig
fram og sakaði Samherjamenn um
stórtækar mútugreiðslur og spillingu
í Namibíu til að komast yfir dýrmæt-
an kvóta. Wikileaks birti tugi þús-
unda gagna þessu til staðfestingar og
þjóðfélagið fór á hliðina. Þorsteinn
Már Baldvinsson steig til hliðar sem
forstjóri Samherja og Jóhannes opn-
aði sig um líflátshótanir í sinn garð og
ófrægingarherferð. Málið vakti heims-
athygli og er ekki aðeins til rannsóknar
hér á landi heldur víða um heim.
Fyrirsæta og fjársvik
Önnur stórfrétt í nóv-
ember var um fyrir-
sætuna Ásdísi Rán
Gunnarsdóttur, Ís-
drottninguna sjálfa.
Hún er flækt í eitt
stærsta fjársvikamál
síðari ára sem teygir
sig til 175 landa. Sam-
kvæmt bandarísku al-
ríkislögreglunni, FBI,
náði besta vinkona Ás-
dísar Ránar, búlgarska
athafnakonan Ruja
Ignatova, að svíkja út tæpa þúsund milljarða íslenskra
króna á heimsvísu áður en hún hvarf sporlaust í
október árið 2017. Ekkert hefur spurst til hennar síðan
þá og hafa lögregluyfirvöld víða um lönd reynt að hafa
uppi á henni, líkt og vinkona hennar Ásdís Rán en hún
er andlit fyrirtækisins sem talið er að standi á bak við
svikamylluna. DV sagði fyrst frá málinu sem leitaði síð-
ar í alla helstu fréttamiðla Íslands.
Umdeild Erna
Borgarafundur RÚV um loftslagsmál vakti
mikla athygli en það má með sanni segja
að Erna Ýr Öldudóttir hafi stolið senunni.
Erna Ýr er það sem kallað hefur verið
afneitunarsinni og hélt því fram í þættin-
um að þeir sem héldu loftslagsvánni
hvað mest á lofti ættu fjárhagslegra
hagsmuna að gæta. Erna Ýr var bæði
gagnrýnd og ausin lofi eftir þáttinn.
Leiðinlegi flokkurinn
Jón Gnarr boðaði nýtt stjórn-
málaafl. Meðal stefnumála
voru hærri skattar, boð og
bönn. Ekki er ljóst hvort um
grín eða alvöru er að ræða en
aflið heitir Leiðinlegi flokk-
urinn.
Það mál sem vakti hvað mesta reiði í samfélaginu, fyrir
utan Samherjamálið, var þegar að kasóléttri konu frá
Albaníu var vísað úr landi. Málið hefur verið harðlega
gagnrýnt úr ýmsum áttum og margir hafa kallað á að
útlendingalög verði endurskoðuð.
Trefill í brennidepli
Svo var það Katrín Jakobsdóttir sem mætti með Liver-
pool-trefil í sal Alþingishússins sama dag og stór-
leikur Liverpool og Napoli fór fram í Meistaradeild
Evrópu. Ekki voru allir á eitt sáttir við þetta uppátæki
en hún útskýrði mál sitt stuttu síðar: „Mér þykir mjög
vænt um þennan trefil, eiginmaðurinn minn gaf mér
hann.“
Hart mætir hörðu
Aktífistinn Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og leikkonan
Steinunn Ólína Þorvarðardóttir háðu mikla ritdeilu
vegna úrskurðar í máli Atla Rafns gegn Borgarleikhús-
inu. Gengu hnúturnar á milli þeirra eins og enginn
væri morgundagurinn þótt engin niðurstaða fengist í
málið.
Upp úr sauð í Silfrinu þegar Atli Þór Fanndal, fyrrver-
andi ráðgjafi Pírata, tók Jón Gunnarsson, þingmann
Sjálfstæðisflokksins, sérstaklega fyrir í beinni út-
sendingu og nefndi mörg dæmi um hvers vegna það
væri full ástæða til að tala um Sjálfstæðisflokkinn og
spillingu í sömu setningu. Jóni blöskraði en orðið var
tekið af Atla þegar hann ætlaði að telja upp fleiri dæmi.
Í skásta falli heimskulegt
RÚV ákvað að auglýsa stöðu útvarpsstjóra lausa til
umsóknar en vildi ekki birta lista yfir umsækjendur.
Það hleypti illu blóði í marga, meðal annarra Pál
Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóra, sem
hafði þetta um málið að segja: „Þessi
ákvörðun stjórnar RÚV er í skásta
falli heimskuleg en jaðrar þó líklega
frekar við að vera hreint hneyksli.
Staða útvarpsstjóra er þeirrar
gerðar að um hana, og þá sem
sækja um hana, getur ekki og má
ekki ríkja nein leynd.“ Svan-
hildur Hólm hefur verið
orðuð við starfið en
enginn ráðinn enn.
Piss and Play
Furðufrétt mánaðarins fjall-
aði um nýtt kynlífstæki sem
kostar tæplega 17 þúsund
krónur. Kynlífstækið sem
um ræðir heitir „Piss to Ass Plug“ en eins og nafnið
gefur til kynna þá gerir tækið fólki kleift að pissa upp í
rassinn á sér. Já, það er margt skrýtið í kýrhausnum.
Mannvonskan
Spillingarstríð