Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Side 45
Sérblað
27. desember 2019
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Íslendingar eru sífellt að verða meðvitaðri um umhverfið og sýna það í verki með því að
minnka matarsóun, borða meira
grænmeti, flokka flöskur, plast,
málm og pappa, vera með moltu
og jafnvel kjúklinga í garðinum
og margt fleira. Barnaloppan í
Skeifunni 11d er kærkomin bylting
á íslenskum endursölumarkaði en
hjónin Guðríði Gunnlaugsdóttur
og Andra Jónsson hafði lengi
dreymt um að fara í rekstur sem
hjálpaði umhverfinu. Eftir að hafa
fengið hugljómun á loppumarkaði
í Danmörku fluttu þau aftur til
Íslands, opnuðu Barnaloppuna og
gjörbyltu hugmyndum Íslendinga um
flóamarkaði.
Fannst vanta íslenska loppu
„Við vorum sjálf að selja fatnað
og fleira af stelpunum okkar á
loppumarkaði í Danmörku, stuttu
áður en við fluttum aftur til Íslands.
Þessi tegund markaðar er að
finnskri fyrirmynd og því ekki á
hverju strái á Norðurlöndunum.
Fyrirkomulagið er þannig að fólk
leigir bás hjá okkur, kemur með
þær vörur sem það ætlar að selja,
verðmerkir og hengir upp. Þar
með er þeirra starfi nærri lokið og
starfsmenn Barnaloppunar taka
við. Þeir aðstoða þá viðskiptavini og
selja vörurnar. Okkur fannst þetta
ótrúlega þægilegt fyrirkomulag og
algerlega vanta á Íslandi, enda vinna
flestir foreldrar báðir úti og hafa
takmarkaðan tíma til þess að sitja
yfir sölunni heilu dagana. Í staðinn
fylgist fólk með sölunni rafrænt í
gegnum símann eða tölvuna. Við
tökum 15% þóknun af heildarsölu og
söluhagnaðurinn er greiddur út með
millifærslu hvort sem það er á miðju
tímabili eða í lokin. Þetta getur varla
verið einfaldara!“
Janúar í Barnaloppunni
„Janúar var stór mánuður í
Barnaloppunni í fyrra og við búumst
við svipuðu í ár. Fólk er að byrja að
taka til í sínu lífi eftir jólahátíðina. Og
eitt af því sem oft þarf að gera, er að
losa sig við leikföng og fatnað sem
börnin eru hætt að nota. Barnavörur
eru margar hverjar notaðar í stuttan
tíma í senn, sérstaklega fyrstu árin,
því krílin stækka svo hratt. Það fer
því gríðarlegt magn af barnavörum
í góðu standi beint á haugana því
fólk veit ekki hvernig það getur
auðveldlega losað sig við þær. Það
er alger synd því það fer svo ótal
margt til spillis í dag og við þurfum
öll að fara að hugsa betur um
umhverfið. Þar kemur Barnaloppan
til sögunnar.“
Eitt lítið flóarskref í einu
Í Barnaloppunni er hægt að
selja og kaupa allt fyrir barnið og
nýbakaða foreldra. Allt frá fatnaði
og leikföngum til barnavagna
og bílstóla. „Nánast allar vörur
hér eru endurnýttar og er það
meginhugsjónin að bjóða eingöngu
upp á endurnýttar vörur. Þannig
erum við sterkur liður í því að minnka
sóun hér á landi og sjáum til þess
að fleiri fjölskyldur geti nýtt vörurnar
til fullnustu. Einnig er í boði að selja
meðgöngu- og gjafafatnað hjá
okkur. Það er eiginlega galið að
endurnýta ekki þessar vörur þar
sem notkunargildið takmarkast
oftar en ekki við nokkra mánuði. Við
viljum trúa því að við höfum átt þátt
í að breyta kúltúr og kauphegðun
Íslendinga, bæði
með því að bjóða
upp á auðveldari leið
til að endurnýta og
losa sig við varning,
og kaupa „second
hand“-vörur á
frábæru verði.“
Börnin elska
Barnaloppuna.
Svo má til gamans
geta að Andri og
Guðríður opnuðu
einnig aðra loppu í
sumar fyrir fullorðna,
eða Extraloppuna
í Smáralind, eftir
mikla hvatningu.
„Það ævintýri hefur
farið fram úr öllum
vonum og það er
víst að Extraloppan
fyllir í ákveðið gat
í markaðnum.
Endurnýting er enda
góð fyrir budduna
og enn betri fyrir
umhverfið og móður
jörð.“
Nánari upplýsingar á www.
barnaloppan.is
Fylgstu með okkur á Facebook
og Instagram: Barnaloppan –
Barnaloppan
Barnaloppan, Skeifan 11d, 108
Reykjavík
Sími: 620-2080
Vefpóstur: info@barnaloppan.is
BARNALOPPAN:
Flóarbyltingin er
hafin á Íslandi
Mynd: Eyþór