Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Síða 45
Sérblað 27. desember 2019 KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is Íslendingar eru sífellt að verða meðvitaðri um umhverfið og sýna það í verki með því að minnka matarsóun, borða meira grænmeti, flokka flöskur, plast, málm og pappa, vera með moltu og jafnvel kjúklinga í garðinum og margt fleira. Barnaloppan í Skeifunni 11d er kærkomin bylting á íslenskum endursölumarkaði en hjónin Guðríði Gunnlaugsdóttur og Andra Jónsson hafði lengi dreymt um að fara í rekstur sem hjálpaði umhverfinu. Eftir að hafa fengið hugljómun á loppumarkaði í Danmörku fluttu þau aftur til Íslands, opnuðu Barnaloppuna og gjörbyltu hugmyndum Íslendinga um flóamarkaði. Fannst vanta íslenska loppu „Við vorum sjálf að selja fatnað og fleira af stelpunum okkar á loppumarkaði í Danmörku, stuttu áður en við fluttum aftur til Íslands. Þessi tegund markaðar er að finnskri fyrirmynd og því ekki á hverju strái á Norðurlöndunum. Fyrirkomulagið er þannig að fólk leigir bás hjá okkur, kemur með þær vörur sem það ætlar að selja, verðmerkir og hengir upp. Þar með er þeirra starfi nærri lokið og starfsmenn Barnaloppunar taka við. Þeir aðstoða þá viðskiptavini og selja vörurnar. Okkur fannst þetta ótrúlega þægilegt fyrirkomulag og algerlega vanta á Íslandi, enda vinna flestir foreldrar báðir úti og hafa takmarkaðan tíma til þess að sitja yfir sölunni heilu dagana. Í staðinn fylgist fólk með sölunni rafrænt í gegnum símann eða tölvuna. Við tökum 15% þóknun af heildarsölu og söluhagnaðurinn er greiddur út með millifærslu hvort sem það er á miðju tímabili eða í lokin. Þetta getur varla verið einfaldara!“ Janúar í Barnaloppunni „Janúar var stór mánuður í Barnaloppunni í fyrra og við búumst við svipuðu í ár. Fólk er að byrja að taka til í sínu lífi eftir jólahátíðina. Og eitt af því sem oft þarf að gera, er að losa sig við leikföng og fatnað sem börnin eru hætt að nota. Barnavörur eru margar hverjar notaðar í stuttan tíma í senn, sérstaklega fyrstu árin, því krílin stækka svo hratt. Það fer því gríðarlegt magn af barnavörum í góðu standi beint á haugana því fólk veit ekki hvernig það getur auðveldlega losað sig við þær. Það er alger synd því það fer svo ótal margt til spillis í dag og við þurfum öll að fara að hugsa betur um umhverfið. Þar kemur Barnaloppan til sögunnar.“ Eitt lítið flóarskref í einu Í Barnaloppunni er hægt að selja og kaupa allt fyrir barnið og nýbakaða foreldra. Allt frá fatnaði og leikföngum til barnavagna og bílstóla. „Nánast allar vörur hér eru endurnýttar og er það meginhugsjónin að bjóða eingöngu upp á endurnýttar vörur. Þannig erum við sterkur liður í því að minnka sóun hér á landi og sjáum til þess að fleiri fjölskyldur geti nýtt vörurnar til fullnustu. Einnig er í boði að selja meðgöngu- og gjafafatnað hjá okkur. Það er eiginlega galið að endurnýta ekki þessar vörur þar sem notkunargildið takmarkast oftar en ekki við nokkra mánuði. Við viljum trúa því að við höfum átt þátt í að breyta kúltúr og kauphegðun Íslendinga, bæði með því að bjóða upp á auðveldari leið til að endurnýta og losa sig við varning, og kaupa „second hand“-vörur á frábæru verði.“ Börnin elska Barnaloppuna. Svo má til gamans geta að Andri og Guðríður opnuðu einnig aðra loppu í sumar fyrir fullorðna, eða Extraloppuna í Smáralind, eftir mikla hvatningu. „Það ævintýri hefur farið fram úr öllum vonum og það er víst að Extraloppan fyllir í ákveðið gat í markaðnum. Endurnýting er enda góð fyrir budduna og enn betri fyrir umhverfið og móður jörð.“ Nánari upplýsingar á www. barnaloppan.is Fylgstu með okkur á Facebook og Instagram: Barnaloppan – Barnaloppan Barnaloppan, Skeifan 11d, 108 Reykjavík Sími: 620-2080 Vefpóstur: info@barnaloppan.is BARNALOPPAN: Flóarbyltingin er hafin á Íslandi Mynd: Eyþór
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.