Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Side 50
Sérblað 27. desember 2019KYNNINGARBLAÐ
FRAMTÍÐARBÓKHALD UNICONTA:
Það hefur aldrei verið ódýrara
að skipta um bókhaldskerfi!
Í Uniconta mætast nýjasta tækni og áratuga reynsla. Útkoman er eitt hraðasta, einfaldasta og
hagkvæmasta bókhaldkerfi veraldar,“
segir Ingvaldur Thor Einarsson,
framkvæmdastjóri Uniconta á Íslandi.
Uniconta er sjötta bókhaldskerfið
úr smiðju Eriks Damgaard sem
hefur oft verið nefndur konungur
bókhaldskerfanna. Uniconta kom
fyrst á markað 2016 og hefur farið
sigurför um heiminn síðan þá.
„Erik hefur unnið í 35 ár við að
hanna hið fullkomna bókhaldskerfi.
Hann er maðurinn á bak við Concorde
XAL og Axapta en það síðarnefnda
er flaggskip hugbúnaðarrisans
Microsoft,“ útskýrir Ingvaldur.
„Eftir að hann lét af störfum hjá
Microsoft sá Erik að með nýrra
tækni myndi skapast sóknarfæri
á bókhaldsmarkaði og hóf þróun
á Uniconta. Það byggir á gömlum
gildum en keyrir á nýjustu tækni.
Önnur kerfi komast ekki með
tærnar þar sem Uniconta er með
hælana þegar kemur að virkni og
hraða. Kerfið er skýjalausn þar sem
öll gögn eru vistuð í ISO-vottuðu
skýjaumhverfi en notandinn vinnur
með gögnin í gegnum hugbúnað
eða smáforrit á tölvu eða snjalltæki,“
upplýsir Ingvaldur um Uniconta sem
er einstaklega notendavænt og
getur sparað notendum hundruð
vinnustunda á ári.
Kerfi sem þú lagar að þínum þörfum
Uniconta inniheldur fjölmargar
kerfiseiningar og uppfyllir þannig
kröfur fyrirtækja af öllum stærðum
og gerðum. Í grunninn er Uniconta
fjárhagsbókhaldskerfi en við það
bætast viðskipta- og lánardrottnakerfi,
eignakerfi, birgða-, framleiðslu- og
vörustjórnunarkerfi, verkbókhalds- og
tímaskráningarkerfi, innheimtukerfi og
CRM. Grunnáskrift að kerfinu inniheldur
fjárhags-, birgða-, lánardrottna- og
viðskiptavinakerfi með sölureikningum
og svo er kerfiseiningum bætt við eftir
þörfum. Einfalt er svo að tengja önnur
kerfi við Uniconta.
„Uniconta er frábær valkostur
fyrir íslensk fyrirtæki, eykur skilvirkni
í rekstri og bætir yfirsýn. Auðvelt er
að flytja bóhaldsgögn úr eldri kerfum
yfir í Uniconta sem gerir innleiðingu
einfaldari og ódýrari en áður hefur
þekkst. Kerfið hentar breiðum hópi
viðskiptavina en á meðal fyrirtækja
sem nota Uniconta sem heildarlausn
í rekstri sínum eru fyrirtæki í smásölu
og heildsölu, framleiðslufyrirtæki,
ferðaþjónustufyrirtæki,
fasteignafélög, félagasamtök,
bókhaldsstofur og verktakafyrirtæki,
svo eitthvað sé nefnt. Þarfir fyrirtækja
eru afar ólíkar en Uniconta mætir þeim
með skilvirkum hætti,“ segir Ingvaldur.
Uniconta byggir á nýjustu tækni
frá Microsoft og forritaskilum (API).
Því er einfalt að láta gögn flæða á
milli Uniconta annars vegar og til
dæmis launakerfa, vefverslana og
bókunarkerfa hins vegar. „Uniconta
sem skýjalausn skilar gögnum mun
hraðar en bókhaldskerfi sem eru á
gagnaþjónum fyrirtækja. Gögnum er
þjappað á snilldarlegan hátt þegar
þau eru sótt eða send í skýið. Þá er
mjög fljótlegt að setja upp gagnvirka
tengingu t.d. í Excel sem keyrir á
raungögnum úr Uniconta og í dag
eru á annað hundrað lausnir sem
bjóða upp á fullkomna samþáttun
við Uniconta,“ upplýsir Ingvaldur.
Fullkomið bókhaldskerfi frá 2.995
krónum á mánuði
Ingvaldur segir stóra ákvörðun
fyrir fyrirtæki að skipta um
bókhaldskerfi enda hefur það
til þessa reynst mörgum flókið,
seinlegt og kostnaðarsamt. „Það
þarf þó engum að vaxa í augum
að innleiða Uniconta. Það tekur frá
einni klukkustund fyrir minni fyrirtæki
upp í fáeinar vikur fyrir stórfyrirtæki
þar sem ráðgjafar frá okkur eða
samstarfsaðilum okkar vinna með
fyrirtækinu. Þá er farið yfir alla
ferla og kerfið lagað að ferlunum,
sem er töluverður munur frá stærri
bókhaldskerfum þar sem innleiðing
getur tekið frá þremur mánuðum
upp í heilt ár, og kostnaður í
samræmi við það.“ Uniconta er
hugbúnaðarlausn í áskrift þar sem
lægsta mánaðargjald er 2.995
krónur án virðisaukaskatts, en sú
áskrift hentar einyrkjum og aðilum
í einföldum rekstri. Fyrir stærri
félög með um 100 notendur er
áskriftargjaldið 7.995 á notanda en
þá eru allar kerfiseiningar innifaldar.
„Bókhaldskerfi hafa aldrei verið
ódýrari. Viðskiptavinir sem skipta
yfir í Uniconta ná að jafnaði fram 50
prósenta sparnaði í rekstrarkostnaði
bókhaldskerfis og að auki ná
fyrirtækin fram gríðarlegri
hagræðingu með breyttu verklagi
og aukinni sjálfvirkni. Við ætlum
okkur ekki aðeins að lækka kostnað
fyrirtækja við áskrift og innleiðingu
viðskiptalausna heldur viljum við líka
hjálpa þeim að spara dýrmætan
tíma starfsmanna. Hjá meðalstóru
fyrirtæki fara hundruð klukkustunda
í innslátt og meðhöndlun fylgiskjala
í hverjum mánuði, en nú bjóðum
við lausn sem les upplýsingar af
fylgiskjölum á stafrænu formi og
færir inn í rétta reiti í kerfinu. Það
sparar innsláttarvillur og fækkar
mistökum,“ segir Ingvaldur um
Uniconta sem er í stöðugri þróun.
Í dag styður kerfið alla gjaldmiðla
og les sjálfkrafa gengi á mörkuðum
og gengismunafærslur færast
sjálfkrafa sem sparar mikla yfirlegu.
Frábærar viðtökur á Íslandi
Uniconta kom á markað á Íslandi í
byrjun árs 2017 og var strax tekið
fagnandi enda viðskiptalausn
á heimsmælikvarða sem styður
nú þegar 30 tungumál og alla
gjaldmiðla. Fjöldi notenda hér
á landi er kominn vel á annað
þúsund og íslensk fyrirtæki af
öllum stærðum og gerðum nota
nú Uniconta til að halda utan um
fjármál, rekstur, birgðir, framleiðslu
og verk,“ upplýsir Ingvaldur. Uniconta
er staðfært að íslenskum aðstæðum
með tengingum við vefþjónustur
RSK og banka, sendingu og
móttöku rafrænna reikninga auk
EDI samskipta fyrir smásölu- og
heildsöluverslun.
Ingvaldur segir mörg íslensk
fyrirtæki enn nota gömul eða úrelt
bókhaldskerfi með tilheyrandi
kostnaði og takmörkun á framleiðni.
„Mörg bókhaldskerfanna voru smíðuð
á síðustu öld þegar tækniumhverfið
var allt annað og nettengingar
hægar og dýrar. Þau kerfi byggja
því á gamalli tækni sem verður víða
að flöskuhálsi og notendur þurfa að
vinna í gegnum fjarvinnsluviðmót
sem var ásættanlegt fyrir áratug en
er ekki boðlegt í nútímaumhverfi,“
útskýrir Ingvaldur.
Ljóslestur fylgiskjala
Með ljóslestri fylgiskjala (OCR)
veður innsláttarvinna að mestu
sjálfvirk. Taka má mynd af fylgiskjali
eða áframsenda fylgiskjöl á t.d.
.pdf- eða .jpg-formi inn í kerfið.
Gervigreind sér svo um að lesa
inn upplýsingar af fylgiskjalinu,
stofna lánardrottna, færa inn
reikningsnúmer, dagsetningar,
fjárhæðir og greiðsluskilmála.
Þannig hverfur handavinnan og
hætta á innsláttarmistökum.
Fylgiskjalið vistast í kerfinu og tengist
öllum færslum og hægt er að kalla
það fram með skjótum og öruggum
hætti án þess að þurfa að blaða í
gegnum bréfabindi.
Uniconta Ísland er í Hlíðarsmára 2.
uninconta@uniconta.is.
Sjá nánar á uniconta.is
„Á hinum enda markaðarins eru
svo stór kerfi, eins og Dynamics
AX, sem einnig eru komin til ára
sinna. Þau kerfi eru dýr í inn-
leiðingu og uppfærslur dýrar
og flóknar. Uniconta er hins
vegar skýjalausn sem uppfærist
sjálfkrafa og því skynsamlegasta
lausnin fyrir íslensk fyrirtæki sem
þurfa aldrei framar að ráðast í
kostnaðarsamar uppfærslur.“