Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Qupperneq 50
Sérblað 27. desember 2019KYNNINGARBLAÐ FRAMTÍÐARBÓKHALD UNICONTA: Það hefur aldrei verið ódýrara að skipta um bókhaldskerfi! Í Uniconta mætast nýjasta tækni og áratuga reynsla. Útkoman er eitt hraðasta, einfaldasta og hagkvæmasta bókhaldkerfi veraldar,“ segir Ingvaldur Thor Einarsson, framkvæmdastjóri Uniconta á Íslandi. Uniconta er sjötta bókhaldskerfið úr smiðju Eriks Damgaard sem hefur oft verið nefndur konungur bókhaldskerfanna. Uniconta kom fyrst á markað 2016 og hefur farið sigurför um heiminn síðan þá. „Erik hefur unnið í 35 ár við að hanna hið fullkomna bókhaldskerfi. Hann er maðurinn á bak við Concorde XAL og Axapta en það síðarnefnda er flaggskip hugbúnaðarrisans Microsoft,“ útskýrir Ingvaldur. „Eftir að hann lét af störfum hjá Microsoft sá Erik að með nýrra tækni myndi skapast sóknarfæri á bókhaldsmarkaði og hóf þróun á Uniconta. Það byggir á gömlum gildum en keyrir á nýjustu tækni. Önnur kerfi komast ekki með tærnar þar sem Uniconta er með hælana þegar kemur að virkni og hraða. Kerfið er skýjalausn þar sem öll gögn eru vistuð í ISO-vottuðu skýjaumhverfi en notandinn vinnur með gögnin í gegnum hugbúnað eða smáforrit á tölvu eða snjalltæki,“ upplýsir Ingvaldur um Uniconta sem er einstaklega notendavænt og getur sparað notendum hundruð vinnustunda á ári. Kerfi sem þú lagar að þínum þörfum Uniconta inniheldur fjölmargar kerfiseiningar og uppfyllir þannig kröfur fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum. Í grunninn er Uniconta fjárhagsbókhaldskerfi en við það bætast viðskipta- og lánardrottnakerfi, eignakerfi, birgða-, framleiðslu- og vörustjórnunarkerfi, verkbókhalds- og tímaskráningarkerfi, innheimtukerfi og CRM. Grunnáskrift að kerfinu inniheldur fjárhags-, birgða-, lánardrottna- og viðskiptavinakerfi með sölureikningum og svo er kerfiseiningum bætt við eftir þörfum. Einfalt er svo að tengja önnur kerfi við Uniconta. „Uniconta er frábær valkostur fyrir íslensk fyrirtæki, eykur skilvirkni í rekstri og bætir yfirsýn. Auðvelt er að flytja bóhaldsgögn úr eldri kerfum yfir í Uniconta sem gerir innleiðingu einfaldari og ódýrari en áður hefur þekkst. Kerfið hentar breiðum hópi viðskiptavina en á meðal fyrirtækja sem nota Uniconta sem heildarlausn í rekstri sínum eru fyrirtæki í smásölu og heildsölu, framleiðslufyrirtæki, ferðaþjónustufyrirtæki, fasteignafélög, félagasamtök, bókhaldsstofur og verktakafyrirtæki, svo eitthvað sé nefnt. Þarfir fyrirtækja eru afar ólíkar en Uniconta mætir þeim með skilvirkum hætti,“ segir Ingvaldur. Uniconta byggir á nýjustu tækni frá Microsoft og forritaskilum (API). Því er einfalt að láta gögn flæða á milli Uniconta annars vegar og til dæmis launakerfa, vefverslana og bókunarkerfa hins vegar. „Uniconta sem skýjalausn skilar gögnum mun hraðar en bókhaldskerfi sem eru á gagnaþjónum fyrirtækja. Gögnum er þjappað á snilldarlegan hátt þegar þau eru sótt eða send í skýið. Þá er mjög fljótlegt að setja upp gagnvirka tengingu t.d. í Excel sem keyrir á raungögnum úr Uniconta og í dag eru á annað hundrað lausnir sem bjóða upp á fullkomna samþáttun við Uniconta,“ upplýsir Ingvaldur. Fullkomið bókhaldskerfi frá 2.995 krónum á mánuði Ingvaldur segir stóra ákvörðun fyrir fyrirtæki að skipta um bókhaldskerfi enda hefur það til þessa reynst mörgum flókið, seinlegt og kostnaðarsamt. „Það þarf þó engum að vaxa í augum að innleiða Uniconta. Það tekur frá einni klukkustund fyrir minni fyrirtæki upp í fáeinar vikur fyrir stórfyrirtæki þar sem ráðgjafar frá okkur eða samstarfsaðilum okkar vinna með fyrirtækinu. Þá er farið yfir alla ferla og kerfið lagað að ferlunum, sem er töluverður munur frá stærri bókhaldskerfum þar sem innleiðing getur tekið frá þremur mánuðum upp í heilt ár, og kostnaður í samræmi við það.“ Uniconta er hugbúnaðarlausn í áskrift þar sem lægsta mánaðargjald er 2.995 krónur án virðisaukaskatts, en sú áskrift hentar einyrkjum og aðilum í einföldum rekstri. Fyrir stærri félög með um 100 notendur er áskriftargjaldið 7.995 á notanda en þá eru allar kerfiseiningar innifaldar. „Bókhaldskerfi hafa aldrei verið ódýrari. Viðskiptavinir sem skipta yfir í Uniconta ná að jafnaði fram 50 prósenta sparnaði í rekstrarkostnaði bókhaldskerfis og að auki ná fyrirtækin fram gríðarlegri hagræðingu með breyttu verklagi og aukinni sjálfvirkni. Við ætlum okkur ekki aðeins að lækka kostnað fyrirtækja við áskrift og innleiðingu viðskiptalausna heldur viljum við líka hjálpa þeim að spara dýrmætan tíma starfsmanna. Hjá meðalstóru fyrirtæki fara hundruð klukkustunda í innslátt og meðhöndlun fylgiskjala í hverjum mánuði, en nú bjóðum við lausn sem les upplýsingar af fylgiskjölum á stafrænu formi og færir inn í rétta reiti í kerfinu. Það sparar innsláttarvillur og fækkar mistökum,“ segir Ingvaldur um Uniconta sem er í stöðugri þróun. Í dag styður kerfið alla gjaldmiðla og les sjálfkrafa gengi á mörkuðum og gengismunafærslur færast sjálfkrafa sem sparar mikla yfirlegu. Frábærar viðtökur á Íslandi Uniconta kom á markað á Íslandi í byrjun árs 2017 og var strax tekið fagnandi enda viðskiptalausn á heimsmælikvarða sem styður nú þegar 30 tungumál og alla gjaldmiðla. Fjöldi notenda hér á landi er kominn vel á annað þúsund og íslensk fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum nota nú Uniconta til að halda utan um fjármál, rekstur, birgðir, framleiðslu og verk,“ upplýsir Ingvaldur. Uniconta er staðfært að íslenskum aðstæðum með tengingum við vefþjónustur RSK og banka, sendingu og móttöku rafrænna reikninga auk EDI samskipta fyrir smásölu- og heildsöluverslun. Ingvaldur segir mörg íslensk fyrirtæki enn nota gömul eða úrelt bókhaldskerfi með tilheyrandi kostnaði og takmörkun á framleiðni. „Mörg bókhaldskerfanna voru smíðuð á síðustu öld þegar tækniumhverfið var allt annað og nettengingar hægar og dýrar. Þau kerfi byggja því á gamalli tækni sem verður víða að flöskuhálsi og notendur þurfa að vinna í gegnum fjarvinnsluviðmót sem var ásættanlegt fyrir áratug en er ekki boðlegt í nútímaumhverfi,“ útskýrir Ingvaldur. Ljóslestur fylgiskjala Með ljóslestri fylgiskjala (OCR) veður innsláttarvinna að mestu sjálfvirk. Taka má mynd af fylgiskjali eða áframsenda fylgiskjöl á t.d. .pdf- eða .jpg-formi inn í kerfið. Gervigreind sér svo um að lesa inn upplýsingar af fylgiskjalinu, stofna lánardrottna, færa inn reikningsnúmer, dagsetningar, fjárhæðir og greiðsluskilmála. Þannig hverfur handavinnan og hætta á innsláttarmistökum. Fylgiskjalið vistast í kerfinu og tengist öllum færslum og hægt er að kalla það fram með skjótum og öruggum hætti án þess að þurfa að blaða í gegnum bréfabindi. Uniconta Ísland er í Hlíðarsmára 2. uninconta@uniconta.is. Sjá nánar á uniconta.is „Á hinum enda markaðarins eru svo stór kerfi, eins og Dynamics AX, sem einnig eru komin til ára sinna. Þau kerfi eru dýr í inn- leiðingu og uppfærslur dýrar og flóknar. Uniconta er hins vegar skýjalausn sem uppfærist sjálfkrafa og því skynsamlegasta lausnin fyrir íslensk fyrirtæki sem þurfa aldrei framar að ráðast í kostnaðarsamar uppfærslur.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.