Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Qupperneq 56
Spillingin er víða
Þótt náttúran verði stillt lætur almenn-
ingur ekki að sér hæða þegar kemur að
annars konar hamförum í þjóðfélaginu.
„Það verða miklar sviptingar í þjóðfé-
laginu. Almenningur er loksins búinn að
fá nóg og gripið verður til aðgerða sem
geta haft alvarlegar afleiðingar í för með
sér. Þar ber Samherjamálið hæst en það
er umfangsmikið þannig að margir drag-
ast inn í þá fléttu. Fleiri mál koma í kjöl-
farið og má kannski segja að um hreins-
anir verði að ræða, bæði í stjórnmálum og
lykilstöðum í þjóðfélaginu. Menn reyna
þó að klóra í bakkann í lengstu lög, en það
mun ekki ganga eins vel og oft áður, ekki
síst vegna umsvifa málanna, sem teygja
anga sína í bankakerfi og stjórnsýslu víða
um heim,“ segir völvan.
„Spillingin er víða – á stöðum sem
aldrei hefur verið leitað á, né nokkrum
dottið í hug að rannsaka. Til lengri tíma
litið reynist Samherjamálið gott að því
leyti að öllum steinum verður velt. Innan
Samherja sé ég fangelsisdóma falla, líkleg-
ast þó ekki á næsta ári þar sem rannsókn
málsins verður tímafrek.“
Um Jóhannes Stefánsson, uppljóstrar-
ann, hefur völvan þetta að segja:
„Jóhannes er ótrúlega sterkur karakter.
Samherjamenn hafa reynt að skíta hann
út eins mikið og þeir geta. Það hefur
sprungið í andlitið á þeim, eins og svo oft
þegar fólk reynir að grafa undan öðrum til
að upphefja sjálft sig. Þú kannast við það,
er það ekki?“ segir völvan og glottir og vís-
ar í rimmu ritstjórans við þekkta, íslenska
rappara.
„Jóhannes spjarar sig. Hann bugast
ekki. Ég sé hann flytja af landi brott um
leið og hann getur og hann mun aldrei
snúa aftur. Hann skapar sér gott líf annars
staðar og fær þann frið sem hann þráir í
sálina.“
„Hans líf eins og hann þekkti það er
búið. Veikindi sem hrjáðu hann á árum
áður blossa upp aftur og heilsu hans
hrakar. Hann mun ekki snúa aftur í Sam-
herja. Farið verður ofan í saumana á öll-
um hans félögum og það mun taka langan
tíma, mörg ár. Að lokum mun sannleik-
urinn koma í ljós og hann er ekki fallegur.
Þetta er langur ferill og margir sem tvinn-
ast þar inn.“
Almennt um sjávarútveg segir völvan
þetta:
„Gerðar verða breytingar í sjávarút-
veginum sem breyta talsverðu fyrir hinn
almenna sjómann, mér sýnist að litlu
bátarnir fái að veiða meira og þar með
skapast meiri vinna á litlum stöðum víða
um land.“
Hrun af öðrum toga
„Atvinnuleysi eykst jafnt og þétt á árinu
og margir huga að búferlaflutningum til
annarra landa. Við missum þar margt vel
menntað fólk, sem kemur ekki til vinnu á
landinu aftur. Þar á meðal eru vel mennt-
aðir læknar og annað fagfólk og erfitt
verður að fylla stöður þess,“ segir völvan
og sýpur af sykruðum gosdrykk – raun-
ar klárar dósina í einum rykk. Það fær-
ist þungi yfir andlit hennar er hún held-
ur áfram.
„Bilið milli fátækra og ríkra eykst enn á
árinu – því miður,“ segir völvan. „Viss þjóð-
félagshópur og yfirvöld vilja ekki horfast í
augu við þennan vanda sem fer sístækk-
andi með hverju árinu. Við stefnum í
óefni ef við grípum ekki í taumana. Ekkert
er gert fyrir fátækasta fólkið og fleiri neyð-
ast til að grípa til vafasamra úrræða til að
sjá fyrir sér og sínum. Fleiri lenda á göt-
unni og úrræðum fjölgar ekki, nema síður
sé,“ bætir hún við. Ritstjóri sver að völvan
klökknar er hún talar um fátæka og ríka
fólkið, þótt hún myndi aldrei viðurkenna
það. Heimili hennar er fábrotið og hús-
gögnin gömul. Það þarf engan snilling til
að sjá hvorum hópnum hún tilheyrir.
„Heilbrigðiskerfið ræður ekki við þann
straum veiks fólks sem við höfum ekki
hjálpað. Hér verður hrun – en af allt öðr-
um toga en fyrr.“
56 27. desember 2019Völvuspá 2020
„Að lokum mun
sannleikurinn
koma í ljós og hann er
ekki fallegur
MYND: EYÞÓR ÁRNASON
Jóhannes Stefánsson
Þorsteinn Már Baldvinsson