Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 58
Hvar er Sólveig Anna?
Völvan tekur sér stutta pásu, kveikir í
síga rettu – Lucky Strike. Kveikjarinn er
skreyttur kisum og framandi plánetum.
Gasið farið að dvína og sífellt erfiðara að
ná eldinum upp. Hún tekur tvo smóka,
trekk í trekk, og heldur áfram.
„Verkalýðshreyfingin er í mjög erfiðri
stöðu, óhæft fólk í brúnni, þannig að lítið
virðist gott gerast. Mér finnst ég skynja
upplausn þar á árinu sem ekki verður
séð fyrir endann á. Það er einhvers konar
klofningur, en því má hreyfingin síst við,“
segir völvan.
„Sólveig Anna Jónsdóttir kom eins og
stormsveipur inn í Eflingu og hverfur jafn
hratt aftur út í tómið. Það mun enginn
sakna hennar. Kannski meinti hún vel í
upphafi, en hún hefur ekkert gert nema
tala. Hún hefur komið fleirum í klandur en
hún hjálpar og hún gerir sér loksins grein
fyrir að verkefnið sem hún tók sér fyrir
hendur er alltof stórt. Við heyrum aldrei
um hana meir. Það er líkt og hún hafi
aldrei verið til,“ segir völvan og bætir við að
málefni Rúmenanna leysist, þótt það verði
ekki Eflingu að þakka. „Rúmensk yfirvöld
eiga þar hrós skilið. Þau stíga fast til jarðar
og ná fram réttlæti fyrir sitt fólk.
Ragnar Þór Ingólfsson slítur á tengslin
við Sólveigu Önnu, enda afburðagreindur
maður. Hann heldur sínu striki og nær
fram tveimur stórum málefnum fyrir sína
félagsmenn. Varðandi stjórnmálaaflið
sem hann hefur talað um sé ég það ekki
gerast fyrr en um miðbik árs. Þá verður
þetta afl til, en eins og með flest þá skap-
ast um það miklar deilur. Þar verður Ragn-
ar Þór í hringiðunni og þarf að taka stóra
ákvörðun – hvort hann viji vera verkalýðs-
foringi eða fara á þing. Hann velur hið síð-
arnefnda.“
Í þessum ólgusjó sér hún Drífu Snædal,
forseta ASÍ, rísa upp.
„Hún er hörkukvendi og ekkert lamb að
leika sér við. Hún hefur margt til síns máls
og á sviðið þegar Sólveig Anna og Ragnar
Þór halda sig til hlés. Kemur í ljós að Drífa
er hinn eini, sanni verkalýðsforingi og
Sólveig Anna Jónsdóttir,
formaður Eflingar
Ragnar Þór, formaður VR
Drífa Snædal, forseti ASÍ
Grátandi Rúmeninn
MYND: HANNA ANDRÉSDÓTTIR
MYND: SKJÁSKOT STÖÐ 2
58 27. desember 2019Völvuspá 2020 „Sólveig
Anna Jóns-
dóttir kom eins
og stormsveipur
inn í Eflingu og
hverfur jafn hratt
aftur út í tómið.
Það mun enginn
sakna hennar.
Kjöreign ehf - Ármúla 21 - 108 Reykjavík
Sími: 533-4040 - www.kjoreign.is
Dan Wiium Hdl, lögg.
fasteignasali, Sími 896-4013
Ólafur Guðmundsson
Sölustjóri, sími 896-4090
Þórarinn Friðriksson Lögg.
fasteignasali, sími 844-6353
Rakel Salóme Eydal
Skjalagerð
Sigurbjörn Skarphéðinsson
Lögg. fasteignasali, skjalagerð
Kjöreign fasteignasala – traust og örugg þjónusta í 40 ár
Ásta María Benónýsdóttir
Lögg. fasteignasali, Sími 897-8061