Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 64
64 27. desember 2019Völvuspá 2020
Morð á miðju ári
Völvan þagnar. Augun stækka og hún sýpur hveljur. Henni reynist
erfitt að koma upp orði, í fyrsta sinn á fundi okkar.
„Á miðju ári verður framið morð sem er einstakt á Íslandi.
Verður sami einstaklingur handtekinn fyrir morð á tveimur
einstaklingum. Verða morðin einstaklega hrottaleg og vel undir-
búin. Málið mun skekja samfélagið og fylla alla landsmenn óhug.
Í framhaldi af því verður löggæslan tekin til gagngerrar endur-
skoðunar, fjölgað í lögreglunni bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti
á landi. Þetta verður nefnilega þannig glæpur að það hefði verið
hægt að koma í veg fyrir hann. Netið og samfélagsmiðlar spila þar
rullu og loksins verður tekið á netglæpum innan lögreglunnar, því
miður aðeins of seint,“ segir hún.
„Fíkniefnamál verða fyrirferðarmikil á árinu mörg dauðsföll
verða sem rekja má til neyslu og ofneyslu alls konar fíkniefna. Þar
er þróunin hröð og að minnsta kosti tvö ný stórhættuleg efni verða
mjög afdrifarík á þessu ári. Eldsvoðar verða tíðir og mikið eigna-
tjón í mörgum tilvikum. Manntjón í því sambandi sé ég aðeins
útskýrir margt í framúrkeyrslu borgarinn-
ar. Degi er ekki stætt að vera borgarstjóri
áfram. Hann víkur, mörgum til mikillar
gleði.“
Í bankageiranum sér völvan ýmislegt.
„Nýi seðlabankastjórinn, Ásgeir Jóns-
son, hefur sig lítið í frammi, virðist ráða
illa við sitt starf. Ég sé veikindi hjá honum
síðsumars, en hann mun ná bata. Hann er
klár maður en fortíðin flækist fyrir honum
með öllum þeim samböndum. Hugsan-
lega var ekki viturlegt af honum að taka við
þessu embætti,“ segir völvan, hóstar reyk-
ingahósta og drepur í sígarettunni sem
askan hefur gleypt. „Tal um að selja bank-
ana heldur áfram. Mér sýnist einn af bönk-
unum verða seldur á haustdögum. Það
verður gert eins hægt og hljótt og auðið
er og erfitt reynist fyrir fjölmiðlafólk að fá
upplýsingar um söluna.“
MYND: EYÞÓR ÁRNASON „Verða morðin einstaklega
hrottaleg og vel undirbúin
MYND: DV/EYÞÓR ÁRNASON Ásgeir Jónsson seðlabankastjóriVigdís Hauksdóttir
STÓRA
BÍLASALAN
586 1414
KLETTHÁLSI 2 - 110 REYKJAVÍK
Við óskum landsmönnum öllum gleðilegra
jóla og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin