Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Side 66

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Side 66
Útlendingar gleypa Ísland Völvan sér miklar sviptingar í ferðaþjónustunni sem hún er „fyrir löngu komin með leiða á. Við þurfum ekki alla þessa ferðamenn. Við þurfum ekki fleiri lundabúðir,“ segir hún er hún kveikir sér í annarri sígarettu. Það tekst rétt svo. Kveikj- arinn er að syngja sitt síðasta. „Ferðaþjónustan tengir sig við samnorrænt kerfi þannig að allt bókunarferlið gerbreytist og á eftir að hafa mikil áhrif á ferðamannastraum- inn til lengri tíma litið. Það sýnist mér vera hið besta mál,“ segir hún. „ Ferðamannastraumurinn minnkar þó heldur, en ég sé marga koma frá löndum eins og Kína og Japan. Þetta er auðugt fólk sem eyðir miklum fjármunum hérlendis. Stórt fyrirtæki mun hasla sér völl hér og útrýma litlu aðilunum. Það er vont mál og stjórnvöld neyðast til að grípa inn í.“ Þá segir hún erlenda auðjöfra svífast einskis í viðskiptum. „Erlendir laxveiðimenn skjóta aftur upp koll- inum, enda meiri veiði í ám en verið hefur, er það helst vegna þess að þurrkar verða ekki miklir, allt sumarið verður nokkuð mátuleg úrkoma fyrir alla,“ segir hún. „Erlendir auðjöfrar sýna bújörð- um á Íslandi mikinn áhuga og fá valda Íslendinga í lið með sér til kaupanna. Ég sé þónokkrar jarð- ir komast þannig í eigu útlendinga. Athygli vekur að eftirsóttastar eru þær sem hafa nóg af köldu rennandi vatni og uppsprettur á landareigninni. Ekki endilega laxveiðiár.“ Í tengslum við erlend umsvif hér á landi sér hún þó einnig örla á jákvæðum hliðum þess. „Ný búgrein skýtur upp kollinum, tengist jarð- hita, á eftir að vaxa hratt og örugglega. Mér finnst þetta vera eitthvað heilsutengt, að þessu koma margir karlar og konur. Þetta fyrirtæki er staðsett á landsbyggðinni og kemur sem vítamínsprauta inn í byggðarlagið.“ 66 27. desember 2019Völvuspá 2020 „Stórt fyrirtæki mun hasla sér völl hér og útrýma litlu aðilunum Bæ, Skúli „Það verður einnig erlendur auðmaður sem festir kaup á glæsihýsi Skúla Mog- ensen, fyrrverandi forstjóra WOW. Skúli lætur lítið fyrir sér fara í íslensku þjóðlífi. Mér sýnist hann flytja af landi brott fljót- lega á nýju ári. Hann verður einn á ferð og ætlar að einbeita sér að því að koma hausnum og sálinni í lag. Hann hefur ekki tíma fyrir neitt nema sig og börn- in framan af ári. Seinnipart árs fáum við stórar fréttir af honum utan úr heimi. Erfið fæðing verður hjá nýja flugfé- laginu Play. Ég sé ekki að greiðist úr því fyrr en á vordögum en ekki er bjart yfir því félagi. Einhverjir maðkar í mysunni. Ég veit ekki nákvæmlega hve stórir og skítugir þessir maðkar eru. Íslandspóstur í sinni mynd verður lagður niður en nýtt fyrirtæki á rústum þess gamla verður stofnað með dyggum stuðningi ríkisins við sitt fólk.“ „Einhverjir maðkar í mysunni MYND: DV/EYÞÓR ÁRNASON Skúli Mogensen MYND: DV/EYÞÓR ÁRNASON OnePortal er vefgátt sem gerir fyrirtækjum og sveitar- félögum kleift að veita íbúum þjónustu allan sólahringinn, allt árið um kring. Rafrænir innri ferlar eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa eða viðskiptavini, þar sem þeir Gæða- stjórnun á stóran þátt í góðum árangri fyrirtækja. OneQuality er lausn sem OneSystems bjóða heildarlausn í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra Hagkvæmar lausnir með áherslu á rekjanleika, auðveldan aðgang og gagnsæi. OneRecords er öug lausn sem auðveldar fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan um mál sem eru í gangi á hverjum tíma. Stjór endur hafa yrsýn yr gang mála innan fyrirtækisins og notendur geta á einfaldan máta sótt lista yr þau mál sem þeir bera ábyrgð á. Vilt þú ko a skjalam lu m í l g? VELJUM ÍSLENST - VELJUM ÍS LE NS KT -V EL JUM ÍSLENSKT - Records Mála- og skjalakerfi Self-Service www.one.is OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is www.o e.is . one@one.is sími: 660 8551 . fax: 588 1057

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.