Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 66
Útlendingar gleypa Ísland
Völvan sér miklar sviptingar í ferðaþjónustunni
sem hún er „fyrir löngu komin með leiða á. Við
þurfum ekki alla þessa ferðamenn. Við þurfum
ekki fleiri lundabúðir,“ segir hún er hún kveikir
sér í annarri sígarettu. Það tekst rétt svo. Kveikj-
arinn er að syngja sitt síðasta.
„Ferðaþjónustan tengir sig við samnorrænt
kerfi þannig að allt bókunarferlið gerbreytist og
á eftir að hafa mikil áhrif á ferðamannastraum-
inn til lengri tíma litið. Það sýnist mér vera hið
besta mál,“ segir hún. „ Ferðamannastraumurinn
minnkar þó heldur, en ég sé marga koma frá
löndum eins og Kína og Japan. Þetta er auðugt
fólk sem eyðir miklum fjármunum hérlendis.
Stórt fyrirtæki mun hasla sér völl hér og útrýma
litlu aðilunum. Það er vont mál og stjórnvöld
neyðast til að grípa inn í.“
Þá segir hún erlenda auðjöfra svífast einskis í
viðskiptum.
„Erlendir laxveiðimenn skjóta aftur upp koll-
inum, enda meiri veiði í ám en verið hefur, er það
helst vegna þess að þurrkar verða ekki miklir, allt
sumarið verður nokkuð mátuleg úrkoma fyrir
alla,“ segir hún. „Erlendir auðjöfrar sýna bújörð-
um á Íslandi mikinn áhuga og fá valda Íslendinga
í lið með sér til kaupanna. Ég sé þónokkrar jarð-
ir komast þannig í eigu útlendinga. Athygli vekur
að eftirsóttastar eru þær sem hafa nóg af köldu
rennandi vatni og uppsprettur á landareigninni.
Ekki endilega laxveiðiár.“
Í tengslum við erlend umsvif hér á landi sér
hún þó einnig örla á jákvæðum hliðum þess.
„Ný búgrein skýtur upp kollinum, tengist jarð-
hita, á eftir að vaxa hratt og örugglega. Mér finnst
þetta vera eitthvað heilsutengt, að þessu koma
margir karlar og konur. Þetta fyrirtæki er staðsett
á landsbyggðinni og kemur sem vítamínsprauta
inn í byggðarlagið.“
66 27. desember 2019Völvuspá 2020
„Stórt fyrirtæki mun
hasla sér völl hér og
útrýma litlu aðilunum
Bæ, Skúli
„Það verður einnig erlendur auðmaður
sem festir kaup á glæsihýsi Skúla Mog-
ensen, fyrrverandi forstjóra WOW. Skúli
lætur lítið fyrir sér fara í íslensku þjóðlífi.
Mér sýnist hann flytja af landi brott fljót-
lega á nýju ári. Hann verður einn á ferð
og ætlar að einbeita sér að því að koma
hausnum og sálinni í lag. Hann hefur
ekki tíma fyrir neitt nema sig og börn-
in framan af ári. Seinnipart árs fáum við
stórar fréttir af honum utan úr heimi.
Erfið fæðing verður hjá nýja flugfé-
laginu Play. Ég sé ekki að greiðist úr því
fyrr en á vordögum en ekki er bjart yfir
því félagi. Einhverjir maðkar í mysunni.
Ég veit ekki nákvæmlega hve stórir og
skítugir þessir maðkar eru.
Íslandspóstur í sinni mynd verður
lagður niður en nýtt fyrirtæki á rústum
þess gamla verður stofnað með dyggum
stuðningi ríkisins við sitt fólk.“
„Einhverjir maðkar
í mysunni
MYND: DV/EYÞÓR ÁRNASON
Skúli Mogensen
MYND: DV/EYÞÓR ÁRNASON
OnePortal er
vefgátt sem gerir
fyrirtækjum og sveitar-
félögum kleift að veita íbúum
þjónustu allan sólahringinn, allt
árið um kring. Rafrænir innri ferlar
eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa
eða viðskiptavini, þar sem þeir
Gæða-
stjórnun á
stóran þátt í góðum
árangri fyrirtækja.
OneQuality er lausn sem
OneSystems bjóða heildarlausn
í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga
og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra
Hagkvæmar lausnir
með áherslu á rekjanleika,
auðveldan aðgang og gagnsæi.
OneRecords er öug lausn sem auðveldar
fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan
um mál sem eru í gangi á hverjum tíma.
Stjór endur hafa yrsýn yr gang mála
innan fyrirtækisins og notendur
geta á einfaldan máta sótt
lista yr þau mál sem þeir
bera ábyrgð á.
Vilt þú ko a
skjalam lu m
í l g?
VELJUM
ÍSLENST - VELJUM
ÍS
LE
NS
KT
-V
EL
JUM
ÍSLENSKT -
Records
Mála- og skjalakerfi
Self-Service
www.one.is
OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is
www.o e.is . one@one.is
sími: 660 8551 . fax: 588 1057