Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 68
Þessi stétt er dauð
Nú vill völvan fara að einbeita sér að dæg-
urmálunum. Áhrifavaldar eru henni efst í
huga.
„Nýja stéttin okkar, áhrifavaldar, nær
ekki flugi og heyrist lítið frá þeim á árinu
og framvegis,“ segir hún. „Þeir reka sig á
að ekki er endalaust hægt að ginna fólk
og hvetja til alls kyns vitleysu. Þessi stétt
er dauð og skilur ekkert eftir sig nema
athyglissjúkt fólk og manneskjur sem háð-
ar eru fegrunaraðgerðum,“ bætir hún við
og verður heitt í hamsi.
„Ég veit ekki hvað þið DV-liðar gerið við
fasta liðinn Vikan á Instagram því úr litlu
verður að moða,“ segir hún og rekur rit-
stjórann í rogastans að völvan fylgist með
slíku.
„Ég þekki þetta fólk. Sunneva
Einars er ein af fáum sem spjar-
ar sig því hún er komin
inn í Engeyjarættina. Hún
klárar sitt nám og geng-
ur í lið með fjármála-
öflum. Hún heldur
áfram að bæta sig
í ræktinni og aug-
lýsa hitt og þetta.
Varðandi annan
klókan áhrifa-
vald, Manuelu
Ósk, sé ég hana
fara í enn frek-
ari bisness
og umsvif á
fasteigna-
markaði.
Hún er ansi klár og spjarar sig vel,“ segir
völvan. „Svo eru það hinir; Þórunn Ívars,
Ernuland, Aron Mola og hvað þetta lið
allt heitir. Það verður gleymt þegar árið er
liðið.“
Tónlistin er hins vegar völvunni hug-
leikin.
„Hildur Guðnadóttir kemst ansi langt
með tónlistina í Jókernum en fær ekki
Óskarinn – því miður. Ég sé íslenskan
tónlistarmann hljóta
heimsfrægð á er-
lendri grundu á
árinu og það er ekki Hildur. Mikil gróska
verður í tónlistarlífi Íslendinga á árinu.
Bríeti gengur mun betur seinni hluta
ársins en margt sem hún er að fást við
nær ekki hæðum fyrr en 2021. Sigga Bein-
teins á erfitt ár í vændum, það er eins og
ekkert gangi nógu vel sem hún byrjar á,
en hennar tími mun koma. Hún þarf að
gæta að heilsunni, er orðin langþreytt.
Raggi Bjarna er hættur sýnist mér. Hann
er sáttur við ævistarfið. Bubbi Morthens
verður mikilvirkur á árinu, er hamhleypa
til sinna verka og gengur almennt vel
bæði í einkalífi og tónlistinni. Mér finnst
að hann komi einnig fram á ritvöllinn og
tekst vel. Stefán Hilmarsson verður meira
áberandi á þessu ári en undanfarið. Hann
er þó ekki að gera neitt nýtt en tekst vel að
dusta rykið af gömlum smellum. Almennt
má svo segja að margir nýir efnilegir tón-
listarmenn komi fram á völlinn ekki síst í
klassískri tónlist, einnig er djassinn á upp-
leið sem aldrei fyrr. Ung söngkona í klass-
ískum söng mun vinna sigur í keppni
erlendis og fá verðskuldaða
athygli. Hljómsveitin Sigur
Rós á samúð þjóðarinnar
í skattamálunum. Hrint
verður af stað söfnun
svo Sigur Rós takist að
bjarga málum,“ segir
völvan og snýr sér að
leikurunum í beinu
framhaldi.
Flett ofan af stóru máli
Nú þarf völvan að taka sér smá pásu. Hún
röltir inn í gamaldags eldhúsið og hell-
ir sér upp á kaffi. Malar baunirnar sjálf.
Smekkmanneskja á kaffi þótt vistarverurn-
ar séu dapurlegar. Hún forvitnast um fjöl-
miðlaheiminn í stuttu spjalli við ritstjór-
ann. Hún segist enga þekkingu hafa úr
þeim heimi en sér ýmsar væringar á nýja
árinu. „Er ekki búið að kaupa þig?“ spyr
hún hátt og snjallt, með vísan í kaup
Torgs á DV. „Jú, mikið rétt,“ seg-
ir ritstjórinn og bíður í of-
væni eftir kaffinu.
„Þau kaup ganga eftir,“
segir hún. „En það eru
ekki einu vendingarnar.
Á fjölmiðlamarkaðnum
verða miklar sviptingar,
fréttastofa Stöðvar 2
verður lögð niður en að
öðru leyti eru ekki mikl-
ar breytingar þar á bæ.
Háværar raddir um að
taka RÚV af auglýsinga-
markaði heyrast og unnið
verður í þeim málum og
einhverjar slíkar breytingar sjáanlegar á
árinu. Tilhneiging til að gera fjölmiðla al-
mennt að málgagni auðjöfra vex fiskur um
hrygg með dyggum stuðningi stjórnmála-
manna, sem flestir eru úr röðum Sjálf-
stæðismanna. Kristjón Kormákur verður
nýr ritstjóri Fréttablaðsins ásamt öðrum
umdeildum blaðamanni, en fyrrverandi
ritstjórar hverfa til annarra starfa. Á öðr-
um fjölmiðli á eftir að hefja mikla rann-
sóknarvinnu bak við tjöldin og fletta
ofan af máli sem kemur sér illa fyr-
ir stóran hóp fólks,“ segir
hún. „Varðandi minni
fjölmiðlana þá ná
þeir ekki langt
og flestir hverfa.
Róðurinn er
þungur og
auðmenn tíma
ekki enda-
lausu fjármagni
í þessi batterí.
Eignarhald Stundar-
innar verður loksins fylli-
lega afhjúpað og það kemur
á óvart.
Bogi Ágústsson mun
hverfa til annarra
starfa en
samt inn-
an fjölmiðla-
geirans, hann er
ætíð farsæll í sínum
störfum. Helgi Seljan þarf að gæta þess
vandlega að gefa ekki á sér höggstað, það
er eins og hann eigi marga óvildarmenn
sem eru fljótir að grípa, ef hann kastar
boltanum til þeirra. Logi Bergmann siglir
lygnan sjó fram eftir ári en þá sé ég miklar
breytingar á hans högum.
Varðandi Davíð Oddsson þá er hann við
sama heygarðshornið; skrifar rætna pistla
og úthúðar hverjum sem hann vill. Hann
er öruggur í sínum stóli en verður fyrir
áfalli á árinu sem lætur hann endurhugsa
lífið.“
68 27. desember 2019Völvuspá 2020
„Hann er
öruggur
í sínum stóli
en verður fyrir
áfalli á árinu
Helgi Seljan
Bogi Ágústsson
Sunneva Einarsdóttir. Mynd: Skjá-
skot/Instagram @sunnevaeinarss
Manuela ÓskStefán Hilmarsson
Hildur Guðnadóttir
Sigríður Bein-
teinsdóttir
Davíð Oddsson