Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Qupperneq 70
Veikindi hjá Birgittu
Í heimi rithöfunda er flest samt við
sig. Það leiðist völvunni. „Það er aldrei
neitt fútt í þessum rithöfundum,“ segir
hún og glottir.
„Arnaldur og Yrsa tróna á toppn-
um með sínar glæpasögur. Arnaldur
gerir stóran samning við erlent út-
gáfufyrirtæki, þar eru miklir peningar
og frægð í spilinu. Bjarni Fritzson er á
óstöðvandi siglingu með barnabæk-
ur sínar um hann Orra Óstöðvandi.
Þar er ekkert lát á vinsældum. Gunni
Helga gefur út nýja unglingabók sem
er ekki síður fyrir fullorðna og verður
tilnefnd til verðlauna. Birgitta Hauk-
dal skrifar minna, en sinnir tón-
listinni á nýjan leik á árinu. Það örl-
ar á erfiðleikum í einkalífi hennar,
jafnvel peningavandræðum. Birgitta
þarf að taka stóra ákvörðun á árinu
og opnar sig um veikindi sem
hafa hrjáð fjölskyldu henn-
ar. Ævar Þór Benediktsson
heldur áfram á svipuð-
um nótum. Hann held-
ur vinsældum sínum
hjá ungu kynslóðinni
áfram. Ragnar Jónasson
skrifar eina glæpa-
söguna enn, sú verður
hans besta að margra
mati. Guðrún Mínervu-
dóttir heldur áfram að
semja velheppnaða sögu.
Margir fleiri rithöfund-
ar, íslenskir, skrifa mik-
ið, einn slíkur fær eftir-
sótt verðlaun, norræn.
Það kemur nafni hans enn
frekar á kortið.“
Erfitt hjá Baltasar
„Stjarna Steinunnar Ólínu leikkonu rís
hátt á árinu. Hún er að koma upp úr öldu-
dalnum og fer mikinn. Verk eftir hana hitt-
ir í mark. Ég sé hana ekki verða útvarps-
stjóri, efast um að hún kæri sig nokkuð
um það embætti. Ólafur Darri fær
stórt hlutverk í kvikmynd erlend-
is ásamt hlutverki hér heima
líka. Hann er enn á uppleið.
Hera Hilmars þarf að gæta
heilsunnar á árinu og ekki
taka að sér of mörg verkefni.
Aníta Briem heldur áfram
á sínum frægðarferli en
tekst á við nýtt verkefni á
árinu sem heppnast ljóm-
andi vel. Katrín Halldóra
(Ellý) fær nýtt hlut-
verk í kvikmynd
sem á eftir að
fara víða um kvikmyndaheiminn. Hún er
rétt að byrja. Jóhannes Haukur Jóhannes-
son þarf að passa að festast ekki í neinu
sérstöku hjólfari. Hann þarf að hyggja að
mörgu á árinu en margt gengur honum í
haginn. Bergur Þór Ingólfsson
er á fljúgandi ferð í átt að
frægð og frama, hon-
um gengur vel í öllu
því sem hann tek-
ur sér fyrir hend-
ur árið 2020.
Þorvaldur Dav-
íð Kristjánsson
hefur mörg
járn í eldinum
á árinu en flest
gengur vel hjá
honum. Nína
Dögg Filippusdóttir á enn miklum vin-
sældum að fagna, tekur að sér mörg stór
hlutverk á árinu og slær í gegn með flest
sem hún gerir,“ segir hún og lofar Pabba-
helgar eins og enginn sé morgundagur-
inn.
„Þátturinn Pabbahelgar halda
áfram við mikinn almennan fögn-
uð landsmanna. Það er helst að
eldri menn séu hneykslaðir og alls
ekki ánægðir með „svona þætti“.
Nönnu Kristínu er klapp-
að lof í lófa. Þetta er
bara byrjunin á
hennar frægð og
frama. Við eigum
eftir að fylgjast með henni lengi enn.“
Völvan telur víst að við Magnúsi Geir
Þórðarsyni taki erfitt verkefni í Þjóðleik-
húsinu.
„Nýr þjóðleikhússtjóri reynir að taka
til og hreinsa andrúmsloftið. Það er mikið
verk en tekst bærilega. Magnús Geir er
mikill og góður bisnessmaður en kannski
verður þetta verkefni honum ofviða. Það
þarf mikla hreinsun í Þjóðleikhúsinu og
hún verður sársaukafull.“
Völvan sér Baltasar ganga ágætlega
„þótt oft hafi honum gengið betur en nú.
Baltasar byrjar að byggja í Gufunesi, það
er kvikmyndaver sem á eftir að takast vel
með, en ég sé annan taka fljótlega við
stjórninni þar. Baltasar þarf að passa vel
upp á einkalífið. Eftir skilnaðinn missti
hann smá stjórn en þarf að ná henni aft-
ur. Hann verður að passa hverja hann
elskar og hverjum hann treystir því það eru
margir sem myndu glaðir vilja fella hann.
Frægðarsól hans hnígur en það er lognið á
undan storminum því Baltasar gefst aldrei
upp.“
70 27. desember 2019Völvuspá 2020
„Birgitta
þarf
að taka stóra
ákvörðun á árinu
Unnur Ösp Stefánsdóttir og Nína Dögg Filippusdóttir
Baltasar Kormákur Magnús Geir Þórðarson
Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir
Birgitta
HaukdalÆvar Þór Benediktsson