Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Page 70

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Page 70
Veikindi hjá Birgittu Í heimi rithöfunda er flest samt við sig. Það leiðist völvunni. „Það er aldrei neitt fútt í þessum rithöfundum,“ segir hún og glottir. „Arnaldur og Yrsa tróna á toppn- um með sínar glæpasögur. Arnaldur gerir stóran samning við erlent út- gáfufyrirtæki, þar eru miklir peningar og frægð í spilinu. Bjarni Fritzson er á óstöðvandi siglingu með barnabæk- ur sínar um hann Orra Óstöðvandi. Þar er ekkert lát á vinsældum. Gunni Helga gefur út nýja unglingabók sem er ekki síður fyrir fullorðna og verður tilnefnd til verðlauna. Birgitta Hauk- dal skrifar minna, en sinnir tón- listinni á nýjan leik á árinu. Það örl- ar á erfiðleikum í einkalífi hennar, jafnvel peningavandræðum. Birgitta þarf að taka stóra ákvörðun á árinu og opnar sig um veikindi sem hafa hrjáð fjölskyldu henn- ar. Ævar Þór Benediktsson heldur áfram á svipuð- um nótum. Hann held- ur vinsældum sínum hjá ungu kynslóðinni áfram. Ragnar Jónasson skrifar eina glæpa- söguna enn, sú verður hans besta að margra mati. Guðrún Mínervu- dóttir heldur áfram að semja velheppnaða sögu. Margir fleiri rithöfund- ar, íslenskir, skrifa mik- ið, einn slíkur fær eftir- sótt verðlaun, norræn. Það kemur nafni hans enn frekar á kortið.“ Erfitt hjá Baltasar „Stjarna Steinunnar Ólínu leikkonu rís hátt á árinu. Hún er að koma upp úr öldu- dalnum og fer mikinn. Verk eftir hana hitt- ir í mark. Ég sé hana ekki verða útvarps- stjóri, efast um að hún kæri sig nokkuð um það embætti. Ólafur Darri fær stórt hlutverk í kvikmynd erlend- is ásamt hlutverki hér heima líka. Hann er enn á uppleið. Hera Hilmars þarf að gæta heilsunnar á árinu og ekki taka að sér of mörg verkefni. Aníta Briem heldur áfram á sínum frægðarferli en tekst á við nýtt verkefni á árinu sem heppnast ljóm- andi vel. Katrín Halldóra (Ellý) fær nýtt hlut- verk í kvikmynd sem á eftir að fara víða um kvikmyndaheiminn. Hún er rétt að byrja. Jóhannes Haukur Jóhannes- son þarf að passa að festast ekki í neinu sérstöku hjólfari. Hann þarf að hyggja að mörgu á árinu en margt gengur honum í haginn. Bergur Þór Ingólfsson er á fljúgandi ferð í átt að frægð og frama, hon- um gengur vel í öllu því sem hann tek- ur sér fyrir hend- ur árið 2020. Þorvaldur Dav- íð Kristjánsson hefur mörg járn í eldinum á árinu en flest gengur vel hjá honum. Nína Dögg Filippusdóttir á enn miklum vin- sældum að fagna, tekur að sér mörg stór hlutverk á árinu og slær í gegn með flest sem hún gerir,“ segir hún og lofar Pabba- helgar eins og enginn sé morgundagur- inn. „Þátturinn Pabbahelgar halda áfram við mikinn almennan fögn- uð landsmanna. Það er helst að eldri menn séu hneykslaðir og alls ekki ánægðir með „svona þætti“. Nönnu Kristínu er klapp- að lof í lófa. Þetta er bara byrjunin á hennar frægð og frama. Við eigum eftir að fylgjast með henni lengi enn.“ Völvan telur víst að við Magnúsi Geir Þórðarsyni taki erfitt verkefni í Þjóðleik- húsinu. „Nýr þjóðleikhússtjóri reynir að taka til og hreinsa andrúmsloftið. Það er mikið verk en tekst bærilega. Magnús Geir er mikill og góður bisnessmaður en kannski verður þetta verkefni honum ofviða. Það þarf mikla hreinsun í Þjóðleikhúsinu og hún verður sársaukafull.“ Völvan sér Baltasar ganga ágætlega „þótt oft hafi honum gengið betur en nú. Baltasar byrjar að byggja í Gufunesi, það er kvikmyndaver sem á eftir að takast vel með, en ég sé annan taka fljótlega við stjórninni þar. Baltasar þarf að passa vel upp á einkalífið. Eftir skilnaðinn missti hann smá stjórn en þarf að ná henni aft- ur. Hann verður að passa hverja hann elskar og hverjum hann treystir því það eru margir sem myndu glaðir vilja fella hann. Frægðarsól hans hnígur en það er lognið á undan storminum því Baltasar gefst aldrei upp.“ 70 27. desember 2019Völvuspá 2020 „Birgitta þarf að taka stóra ákvörðun á árinu Unnur Ösp Stefánsdóttir og Nína Dögg Filippusdóttir Baltasar Kormákur Magnús Geir Þórðarson Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Birgitta HaukdalÆvar Þór Benediktsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.