Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 50
50 25. október 2019
SAKAMÁL
H
ún var tætingsleg unga
stúlkan sem bankaði upp á
hjá frú Carter í Linn -sýslu í
Missouri í Bandaríkjun-
um að morgni 11. maí árið 1894.
Við útidyrnar stóð Nellie Meeks,
sex ára dóttir nágrannanna, og frú
Carter leist ekki á blikuna. Klæði
Nellie voru í henglum, andlit
hennar þakið drullu og blóði og
stór skurður á enni hennar.
Nellie gat vart gert sig skilj-
anlega en frú Carter skildi þó að
foreldrar og yngri systur Nellie
höfðu verið myrt kvöldið áður.
Sjálf hafði Nellie sloppið á lífi því
morðingjarnir töldu sig hafa náð
að ljúka verkinu.
Grunn gröf undir galta
Frú Carter gat ekki hugsað sér að
fara frá Nellie en ekki var fleiri
fullorðnum til að dreifa á heim-
ilinu. Því sendi frú Carter níu
ára son sinn, Jimmy, til að kanna
málið. Jimmy gat ekki fundið lík
fjölskyldu Nellie og því varð úr að
Nellie fór með honum og leiddi
hann að galta. Undir galtanum
var grunn gröf og í henni lík föður
hennar og móður, Gus og Deloru,
og systra hennar, Hattie, fjögurra
ára, og Mary, átján mánaða.
Delora hafði verið barnshaf-
andi og misst fóstur sem einnig
var að finna í gröfinni.
Gus og Delora höfðu verið
skotin til bana og stúlkurnar
barðar til dauðs með grjóthnull-
ungi.
George Taylor stingur af
Þegar Jimmy og Nellie komu til
baka sendi frú Carter son sinn
umsvifalaust til að færa ná-
grönnunum tíðindin. Á leiðinni
rakst Jimmy á George Taylor þar
sem hann vann á kornakri sínum
og upplýsti hann um síðustu at-
burði.
George fór með Jimmy heim
til sín og sagði honum að bíða þar
á meðan George legði á klárana.
Síðan myndu þeir fara saman að
heimili Meeks-fjölskyldunnar.
Jimmy gerði sem George bauð,
en biðin varð æði löng því George
kom aldrei með klárana. George
kom yfirhöfuð ekki til baka.
Frásögn Nellie
Þegar þarna var komið sögu hafði
læknir verið sóttur til að huga
að Nellie heima hjá frú Carter. Á
meðan læknirinn gerði að áverk-
um Nellie sagði hún frá því sem
gerst hafði.
„Þegar við vorum að fara upp
hæðina sagði maðurinn með yfir-
skeggið að honum væri kalt á fót-
unum og fór af vagninum og gekk
með honum, hann skaut á pabba
og pabbi stökk af vagninum og
hljóp,“ sagði Nellie. Hún sagði að
þá hefði mamma hennar öskrað
og ætlað að stökkva af vagnin-
um og þá hefðu mennirnir skotið
hana og á aðra systur hennar.
„Þá börðu þeir mig í höfuðið
og ég missti meðvitund,“ sagði
Nellie. Þegar mennirnir hentu
henni úr vagninum kom hún til
meðvitundar og varð vitni að því
þegar þeir reyndu að kveikja í
galtanum.
Auðugir og óheiðarlegir
„Þau eru öll dauð, helvítis pakk-
ið,“ heyrði Nellie manninn með
yfirskeggið segja. „Þeir mokuðu
yfir mig, og ég átti erfitt með að
anda. Ég heyrði þá tala um að þeir
gætu ekki fengið eldinn til að taka
við sér.“
Þeir sem Nellie talaði um voru
George Taylor og bróðir hans,
William, sem voru á meðal auð-
ugustu manna í norðaustur-
hluta Missouri. Það var þó vitað
að bræðurnir höfðu ekki auðgast
með ærlegum hætti og höfðu ver-
ið ákærðir fyrir skjalafals, íkveikj-
ur og nautgripaþjófnað.
Gus Meeks hafði verið leigu-
liði á jörð bræðranna og hafði
blandast í mál er varðaði naut-
gripaþjófnað þeirra. Gus hafði
verið ákærður, játað sök sína og
stungið í grjótið. En mánuði fyrir
morðin hafði hann verið náðaður
gegn því að hann bæri vitni gegn
Taylor-bræðrunum.
Bræðurnir handteknir
Taylor-bræðurnir vildu ólmir
koma í veg fyrir að Gus bæri vitni
og buðu honum 1.000 dali fyrir að
yfirgefa svæðið. Gus virðist hafa
þekkst boðið en þegar bræðurn-
ir komu til að fylgja honum áleið-
is, að kvöldi 10. maí, fékk Delora
slæmt hugboð. Hún óttaðist um
líf eiginmanns síns og krafðist
þess að öll fjölskyldan færi, fannst
enda ólíklegt að bræðurnir væru
líklegir til að ráða þeim öllum
bana.
Í ljósi frásagnar Nellie var gefin
út kæra á hendur bræðrunum og í
júní þetta ár voru þeir handtekn-
ir í Batesville í Arkansas og fluttir
til Missouri. Þeir buðu 50.000 dali
í tryggingu, tilboðinu hafnað og
þeim gert að dúsa á bak við lás og
slá fram að réttarhöldum.
Reiður múgur
Því fór þó fjarri að málinu væri
lokið. Þá þegar var réttarkerf-
ið orðið það þróað að menn sem
greinilega voru þrælsekir gátu
sloppið við snöruna, og öfugt að
sjálfsögðu.
Réttarhöldin fóru fram í
Carollton en beina þurfti járn-
brautalestinni til St. Joe því lög-
reglustjórinn hafði hlerað að 250
manna hópur hygðist stöðva för
hennar til Carollton. Var hópur-
inn vel vopnum búinn og huldu
menn andlit sitt með hálsklútum
og var ætlunin að hengja bræð-
urna án þess að réttað væri yfir
þeim.
Vafasamur kviðdómur
Réttarhöldin hófust 18. mars,
1895, og bar þónokkur fjöldi vitni.
Sum vitnin höfðu heyrt Taylor-
bræðurna hóta Gus Meeks og
MORÐIN Á MEEKS-FJÖLSKYLDUNNI Í MISSOURI
n Gus var í vandræðum vegna Taylor-bræðranna n Bræðurnir voru í vandræðum vegna Gus„Þeir
mokuðu
yfir mig, og ég
átti erfitt með
að anda.
Nellie Meeks
Slapp við illan leik frá
morðingjunum.
„Þá börðu þeir mig
í höfuðið og ég
missti meðvitund