Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Qupperneq 12
12 20. september 2019FRÉTTIR
Þeir flúðu land
Þórður Juhasz (áður Þórður
Jósteinsson) – Alicante, Spánn
Dómur: Fjögurra ára fangelsi. Dómur styttur um
hálft ár í Landsrétti.
Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 2.
Þórður Juhasz hét áður Þórður Jósteinsson. Í
mars á seinasta ári hlaut hann fjögurra fangelsi í
Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa nauðgað 14
ára stúlku á afviknum stað í Heiðmörk. Brotið átti
sér stað í ágúst 2016. Landsréttur mildaði síðar
dóm héraðsdóm og stytti hann um hálft ár.
Við rannsókn lögreglu fannst excel-skjal í
tölvu Þórðar þar sem búið var að skrá niður nöfn
stúlkna og kvenna og hvaða ár þær væru fæddar.
Þá voru kynferðislegar athafnir færðar inn í skjalið
við hvern og einn einstakling. Þar á meðal var nafn
brotaþolans.
Þórður hafði áður hlotið dóm fyrir kynferðisbrot
því árið 2009 var hann dæmdur í þriggja mánaða
fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart tólf ára stúlku.
Þórður Juhasz er skráður til heimilis á Selfossi.
Hann hefur undanfarin ár búið í Kópavogi en
samkvæmt heimildum DV hefur hann haldið til á
Alicante á Spáni undanfarin misseri.
Ómar Traustason – Loz Alcarares, Spánn
Dómur: 10 mánaða fangelsi.
Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 4
Árið 1993 var Ómar Traustason dæmdur í tíu mánaða
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum drengjum á aldrinum
9–12 ára. Brotin áttu sér stað í Vestmannaeyjum. Ómar var
sakfelldur fyrir að hafa sýnt drengjunum klámefni í fjögur
aðskilin skipti, ýmist heima hjá sér eða í bíl, og fyrir að hafa
fróað sér fyrir framan þá. Þá fitlaði hann við tvo þeirra og tók
getnaðarlim eins þeirra í munn sér.
Rúmlega tuttugu árum síðar, í apríl 2013, var Ómar síðan
dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness, fyrir
kynferðisbrot gegn unglingspilti á ellefu mánaða tímabili
árið 2001. Pilturinn var fjórtán til fimmtán ára meðan
á brotunum stóð. Pilturinn hafði leitað til Ómars þegar
fjölskylda hans varð húsnæðislaus. Pilturinn fékk húsaskjól
hjá Ómari, bæði í Breiðholti og í Kópavogi, og mat og pening
fyrir nesti í skólann, auk þess sem Ómar hélt að honum
fíkniefnum. Ómar var ákærður fyrir að hafa neytt drenginn til
munnmaka, fyrir að fá drenginn til að fróa sér og reyna í eitt
skipti að hafa endaþarmsmök við hann.
Í október 2013 sneri Hæstiréttur dómi héraðsdóms við og
var Ómar sýknaður af þessari ákæru.
Ómar var áður búsettur í Danmörku en samkvæmt
heimildum DV er hann nú búsettur í Loz Alcarares á Spáni.
Gunnar Jakobsson (áður Roy
Svanur Shannon) – Svíþjóð
Dómur: Fjögurra ára fangelsi. 18 mánaða
skilorðsbundið fangelsi.
Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 6
Gunnar Jakobsson gekk áður undir
nafninu Roy Svanur Shannon en var skírður
Erlendur Sveinn Hermannsson. Árið 1997
var hann dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir
kynferðisbrot gegn sex barnungum stúlkum
og var það þyngsti dómur sem hafði fallið í
barnaníðingsmáli hérlendis á þeim tíma. Tók
hann sum brotin upp á myndbandsupptökuvél.
Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa
framleitt barnaklám og að dreifa því á netinu
og fyrir vörslu á gífurlega miklu magni af
barnaklámi.
Á meðan hann beið dóms og var vistaður í
gæsluvarðhaldi á Akureyri varð hann uppvís að
því að vera með barnaklám í tölvu sinni. Eftir að
hann hafði afplánað fangelsisdóminn skipti Roy
Svanur um nafn og heitir hann í dag Gunnar
Jakobsson. Hann bjó um nokkurra ára skeið í
Danmörku en flutti aftur til Íslands árið 2010.
Í mars á seinasta ári var hann síðan dæmd-
ur í 18 mánaða skil orðsbundið fang elsi fyr ir
að hafa í vörslu sinni 48.212 ljós mynd ir og 484
hreyfi mynd ir sem sýna börn á kyn ferðis leg an
og klám feng inn hátt. Héraðsdómur Suðurlands
ákvað að skilorðsbinda dóminn, meðal annars
vegna verulegs dráttar á rannsókn málsins.
Það vakti mikla athygli þegar blaðamað-
ur og ljósmyndari DV fóru heim til Gunnars, í
apríl 2017, og lýstu þar viðbjóðslegum aðstæð-
um sem við blöstu. Gunnar var þá búsettur í
gömlu niðurníddu húsi á Stokkseyri. Fram kom
að honum væri meinað að fara í sund á Selfossi
og á Stokkseyri og færi því í sund í Reykjavík.
Einnig kom fram að Gunnar hefði um árabil lif-
að tvöföldu lífi í netheimum undir dulnefni sem
ráðagóð eldri kona á spjallborðum Barnalands
sem síðar varð er.is og nú Bland.
Samkvæmt heimildum DV er Gunnar í dag
búsettur í Svíþjóð.
Ingvar Dór Birgisson – Malasía
Dómur: Þriggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Staðfest í
Hæstarétti. Tveggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi. Dómur styttur um eitt
ár í Hæstarétti.
Brotaþolar (sem vitar er um): 2
Í mars 2015 var Ingvar Dór Birgisson dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi
fyrir að nauðga fjórtán ára gamalli stúlku vorið 2010. Nauðgunin átti sér stað á
heimili Ingvars í miðborginni.
Í október 2016 var Ingvar Dór síðan dæmdur í tveggja og hálfs árs fang-
elsi fyrir að nauðga annarri 14 ára gamalli stúlku, en það brot átti sér stað árið
2014. Þetta var í því í annað skiptið á þremur árum sem Ingvar Dór hlaut fang-
elsisdóm fyrir nauðgun á unglingsstúlku. Ingvar hafði samskipti við seinni
brotaþolann í gegnum samfélagsmiðla, fékk hana til að senda sér nektar-
myndir og hótaði að birta myndirnar á netinu ef hún kæmi ekki í heimsókn til
hans.
Hæstiréttur Íslands mildaði dóminn yfir Ingvari Dór í seinna málinu niður í
eins og hálfs árs fangelsi.
Samkvæmt heimildum DV er Ingvar Dór í dag búsettur í Malasíu, en hann
mun hafa flúið land stuttu eftir að hann lauk samfélagsþjónustu hjá Rauða
krossinum.