Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Side 24
Sjávarútvegsblaðið 20. september 2019KYNNINGARBLAÐ
Kynslóðaskipti og fjölbreyttari
þjónusta hjá MD vélum
Kári Jónsson keypti nýverið hlut í fyrirtækinu MD vélum ehf. og mun gegna stöðu rekstrar-
stjóra og stýra þjónustuverkstæði
og viðgerðum ásamt sölu. Fyrirtækið
á að baki áratuga sögu í sölu og
viðhaldsþjónustu á dísilvélum og
túrbínum bæði á sjó og landi. Hjalti
Sigfússon, stofnandi og aðaleigandi
MD véla, verður áfram hluthafi og
framkvæmdastjóri fyrirtækisins og
annast ráðgjöf og fleiri verkþætti í
daglegum rekstri. „Við fögnum
því að fá Kára aftur til
liðs við okkur því
hann gjörþekkir
fyrirtækið og
þjónustu MD véla
frá því að hann
starfað hér frá
2013 til 2018. Það
er ánægjulegt að
geta stuðlað að
kynslóðaskiptum
og tryggt að sú
mikilvæga þjón-
usta sem MD vélar veitir haldi
áfram að þróast og byggjast
upp,“ segir Laila Hjaltadóttir, við-
skiptastjóri MD véla.
Sjávarútvegur 2019
MD vélar verður með bás á sýn-
ingunni Sjávarútvegur 2019 í
Laugardalshöll. „Þar verða full-
trúar okkar helstu erlendu birgja
með okkur. Þá koma sérfræðingar
frá Mitsubishi, Solé Diesel og VM
kompensator. Einnig verður með
okkur maður frá GS Hydro, fyrirtæki
sem margir þekkja hér á landi. Því
er kjörið fyrir viðskiptavini að heim-
sækja okkur í bás MD véla og fræð-
ast enn meira um möguleikana sem
þeim standa til boða,“ segir Laila.
MD vélar er með umboð fyrir
Mitsubishi á Íslandi. Einnig spænska
fyrirtækið Solé Diesel sem býður
mikið úrval skrúfu-
og ljósavéla fyrir
smærri báta
auk mik-
ils úrvals
aukahluta.
Þá er MD
vélar einnig
umboðs-
aðili fyrir
PJ Diesel í
Kaupmanna-
höfn sem
sérhæfir sig í endurbyggingum
á túrbínum fyrir skip og annast MD
vélar viðhaldsþjónustu og endur-
byggingu á túrbínum hérlendis, auk
þess að selja varahluti í túrbínur.
Loks er að nefna umboð MD véla
fyrir PJ Woodward sem er sérhæft
fyrirtæki í varahluta- og viðgerðar-
þjónustu á gangráðum.
Farsælt samstarf með Mitsubishi
Fyrirtækið var stofnað árið 1990
um sölu, ráðgjöf og þjónustu fyrir
Mitsubishi dísilvélar og tilheyrandi
búnað á Íslandi og hefur sá þáttur
allar götur síðan verið leiðandi
þáttur í starfseminni. Í byrjun þessa
árs varð sú breyting á þeirri þjón-
ustu að umboðið hér á landi heyrir
nú undir öfluga deild Mitsubishi
í Noregi sem hefur
sérhæft sig
í samsetningu
vélapakka með
öllum þeim auka-
hlutum sem hver og
einn viðskiptavinur óskar
eftir. „Við erum mjög ánægð
með þá reynslu sem komin er á
þessa þjónustu, sem er afar vönd-
uð og fagleg. Með samstarfinu við
Mitsubishi í Noregi hafa okkur líka
opnast tækifæri til að bjóða öflugar
og góðar landrafstöðvar hér á landi
en á mörgum sviðum atvinnulífsins
er þörf fyrir slíkt. Líkt og í aðalvél-
unum og ljósavélunum getum við
fengið landrafstöðvarnar uppsettar
og frágengnar nákvæmlega eins og
viðskiptavinurinn þarf á að halda,“
segir Laila.
Þensla í þjónustu MD véla í
þenslutengjum
Annað og vaxandi þjónustusvið MD
véla er umboð fyrir danska fyrirtækið
VM kompensator sem framleiðir
þenslutengi fyrir hvers konar lagnir,
stórar sem smáar.
„Með nýjum samningi við
fyrirtækið Metraflex í
Chicago aukum við
svo enn við úrvalið
og þjónustuna í
þenslutengjum.
Metraflex er í fremstu röð
þegar kemur að þenslu–
tengjum fyrir vatns-
úðakerfi fyrir byggingar-
iðnaðinn. Tengin eru
auðveld í uppsetningu
og það fer afar lítið fyrir
þeim. Einnig taka tengin á
sig mikla hreyfingu sem gerir það
að verkum að þau henta til dæmis
sérlega vel á jarðskjálftasvæðum,“
segir Laila.
Metraflex tengin taka á sig mikla
hreyfingu.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.mdvelar.is
Vagnhöfða 12, 110 Reykjavík
Opnunartími skrifstofu: Mán–fös
8.00–16.00
Sími: 567-2800
Netfang: mdvelar@mdvelar.is