Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Page 38
38 20. september 2019
SAKAMÁL
FLÁRÆÐI Í FÍLADELFÍU
n Í einkalífi Jimmys Logue var mikil óreiða n Í vinnunni var allt meira eða minna á hreinu n Eiginkona hans var myrt og hann grunaður um verknaðinn
A
tvinna getur verið af
ýmsu tagi og sum störf
eru talin virðingarverðari
en önnur. Starf Jimmys
Logue, sem fæddist í Fíladelfíu
árið 1835, verður sennilega seint
talið ærlegt, en Logue lagði fyrir
sig þjófnað og spannaði ferill
hans í þeim geira yfir fjörutíu ár.
Aðeins tíu ára var Logue
handtekinn fyrir þjófnað og sat
inni á einhvers konar stofnun fyrir
vikið. Þegar hann losnaði gerðist
hann lærlingur hjá manni að nafni
Joe Keyser, vel þekktum vasaþjófi
í Baltimore. Logue sóttist námið
greinilega vel því hann haslaði sér
völl í bankaránum og varð bara
þónokkuð snjall á þeim vettvangi.
Tilvera Logue var tvískipt;
öðrum hluta hennar varði hann
við ágæt efni og velsæld og hinum
hlutanum á bak við lás og slá.
Skammlífur hjúskapur
Það væri vægt til orða tekið að
segja að óreiða hafi ríkt í einkalífi
Logue. Þar var nánast allt í einum
graut. Þegar Logue var 23 ára
kvæntist hann Mary Jane Andres.
Hjúskapur þeirra entist í tvö ár
og þá gekk Logue í hjónaband
með Mary Gahan. Hann lét þó
undir höfuð leggjast að skilja
formlega við Mary Jane, fannst
það sennilega óþarfa vesen.
Mary Gahan átti óskilgetinn
son, Alphonse, sem nánar verður
vikið að síðar. Logue fór illa með
Mary og flúði hún á náðir föður
síns og dó árið 1869.
Johanna bíður eiginmannsins
En áður en Mary yfirgaf
Logue hafði hann tekið upp
ástarsamband með systur
hennar, Johönnu. Þau gengu í
hjónaband tveimur árum eftir að
Mary dó, árið 1871, en um það
leyti var Logue að búa sig undir
afplánun sjö ára dóms í Cherry
Hill-fangelsinu fyrir innbrot.
Johanna beið þess að Logue
fengi frelsi að nýju og þegar það
gerðist hreiðruðu þau um sig á
Occidental-hótelinu í New York-
borg.
Logue var loðinn um lófana,
enda hafði hann komið illa
fengnu fé sínu fyrir á reikningum
í hinum ýmsu bönkum í borginni.
Hann tók upp fyrri iðju með
félaga sínum, Peter Burns, með
áherslu á almenna þjófnaði og
innbrot.
Hjálpar stjúpsyninum
Hinn óskilgetni stjúpsonur Logue,
Alphonse, sem notaði eftirnafn
föður síns, Cutaiar, var enn inni
í myndinni hjá Logue. Alphonse
naut góðs af hagsæld Logue sem
samþykkti að hjálpa honum að
koma undir sig fótunum sem
rakari. Logue keypti hús að North
Eleventh Street 1250 í Fíladelfíu
og rakarastofa Alphonse var til
húsa þar, á jarðhæð.
Um skeið bjuggu Logue og
Johanna í húsinu, auk tveggja
starfsmanna rakarastofunnar.
Logue og Johanna yfirgáfu
Fíladelfíu árið 1879 og fluttu til
New York. Logue ákvað að fara í
„þjófnaðarleiðangur“ til Boston
með kollega sínum, George
Mason, en Johanna varð eftir í
New York.
Johanna hverfur
Þegar Logue kom aftur til New
York var Johönnu hvergi að finna
og hann hafði samband við
Alphonse og leitaði tíðinda. Jú,
Alphonse sagði Logue að Johanna
hefði komið til Fíladelfíu, hellt
ótæpilega í sig og síðan rokið á
dyr. „Ég er farin,“ sagði hún þegar
hún yfirgaf húsið og kom aldrei til
baka, að sögn Alphonse.
Margir voru þeirrar skoðunar
að hún hefði fengið sig fullsadda
af barsmíðum Logue, sem voru á
allra vitorði.
Logue hóf leit að Johönnu og
auglýsti meira að segja eftir henni
í dagblöðum í Fíladelfíu og bauð
500 dali í verðlaun, hverjum þeim
sem gætu veitt upplýsingar um
hana.
Logue taldi reyndar ekki loku
fyrir það skotið að Johanna hefði
„Ég er far-
in,“ sagði
hún þegar hún
yfirgaf húsið og
kom aldrei til
baka, að sögn
Alphonse.
James „Jimmy“ Logue Lagði fyrir sig
bankarán og innbrot með góðum árangri.