Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 17
27. september 2019 FRÉTTIR 17 Hér búa barnaníðingarnir Tómas Ingi Árnason - 600 Akureyri Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 1 Í janúar 2013 var Tómas Ingi Árnason dæmdur í átta mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna, fyrir kynferðislega áreitni gegn barni og brot gegn blygðunar­ semi. Í ákæru kemur fram að hann hafi í mars 2012 káfað innanklæða á kynfærum stúlku í gufubaðsklefa sundlaugar, berað á sér getnaðarliminn og beðið stúlkuna að snerta hann og kysst stúlkuna einum kossi á munninn. Í dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra kemur fram að „óhjá kvæmilegt sé að líta til þess að hann braut gegn trúnaði sem stúlk­ an og aðstandendur hennar sýndu hon­ um. Til þess verður á hinn bóginn litið að ákærði var aðeins 18 ára gamall er hann framdi brotið.“ Með tilliti til ungs aldurs og sakaferils var refsingin að mestu leyti skil­ orðsbundin. Hilmir Freyr Sigurðsson - 800 Selfoss Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 1 Hilmir Freyr Sigurðsson var dæmdur í eins árs fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands árið 2010 fyrir kynferðisbrot gagnvart 17 stúlku. Hæstiréttur stað­ festi síðar dóminn. Hilmir Freyr var 33 ára þegar hann braut á stúlkunni en stúlkan dvaldi á með­ ferðarheimili úti á landi á þeim tíma. Hilmir Freyr setti sig í samband við hana í gegnum einkamal. is, undir nafninu „Gutti“ og lofaði henni meðal annars áfengi og fíkniefnum ef hún kæmi til hans. Hann greiddi síðan fyrir hana flugfar til Reykja­ víkur og ók þaðan með hana í sumarbústað, með fulla ferðatösku af áfengi, fíkniefnum og kynlífs­ tólum. Hilmir Freyr var sakfelldur fyrir að hafa tælt stúlkuna til samræðis og fyrir að hafa nýtt sér yfir burði sína gagnvart henni sökum aldurs­ og þroskamunar. Hilmir Freyr er með skráð lögheimili á Selfossi. Böðvar Jens Ragnarsson - 800 Sel- foss Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 1 Böðvar Jens Ragnarsson var árið 2017 dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita pilt kynferðislega í gegnum Facebook og Skype. Pilturinn var 13–14 ára þegar brotin áttu sér stað. Böðvar átti ítrekuð samskipti af kynferðislegum toga við piltinn, með því að ræða við hann á kyn­ ferðislegan hátt, meðal annars um munnmök og endaþarmsmök og falast eftir því að þeir myndu hittast í kynferðislegum tilgangi. Þá átti hann í samskiptum við piltinn í gegnum vefmyndavél þar sem þeir afklæddust og voru allsnaktir í allt að 10 skipti og sýndu hvor öðrum kynfæri sín. Böðvar er skráður til heimilis á Selfossi.Daði Freyr Kristjánsson (Eldjárn Freyr Kristjánsson) - Grafarholt, 113 Reykjavík Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 2 Daði Freyr Kristjánsson var dæmdur í þriggja ára fangelsi þann 8. maí árið 2014 fyrir að nema tvær sjö ára stúlkur á brott í bíl sínum, keyra með þær á afvik­ inn stað, þar sem hann kyssti þær og þuklaði á þeim. Brot Daða Freys áttu sér stað 9. janúar árið 2013 en hann hafði verið, ásamt stúlkunum tveimur, í Krónunni við Rofabæ. Stúlkurnar höfðu verið að hnupla sælgæti í versluninni og Daði sá til þeirra. Þegar út var komið nýtti hann sér það og lagði bif­ reið sinni við strætóbiðskýli þar sem stúlkurnar stóðu skömmu síðar. Sagðist Daði hafa séð til þeirra og skipaði þeim að setjast upp í bílinn ellegar myndi hann hringja á lögregluna. Í dómnum segir að hann hafi kysst aðra stúlkuna á kinnina og snert maga og læri þeirra beggja utan klæða. Þegar þær fóru að gráta fór Daði með þær aftur þangað sem hann hafði þvingað þær upp í bíl­ inn og skildi þær eftir. Daði gaf sig síðan sjálfviljugur fram við lögreglu eftir að lýst hafði verið eftir honum. Daði Freyr fékk þriggja ára fangelsisdóm í héraði sem Hæstiréttur Íslands staðfesti síðan. Hann lauk afplánun árið 2017. Hann heitir í dag Eldjárn Freyr. Anthony Lee Bellere - Laugarnes- hverfi, 105 Reykjavík Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 3 Anthony Lee Bellere var árið 2008 dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir alvarleg kynferðisbrot gegn þremur stúlkum á árunum 2005 til 2006. Þá voru stúlkurnar tólf til sextán ára. Hæstiréttur Íslands þyngdi dóm­ inn í fimm ár. Brotin eiga það öll sameiginlegt að hafa byrjað á netinu. Anthony Lee Bellere er síbrota­ maður og samkvæmt dómi Hæstaréttar sýndi hann einbeittan brotavilja. Steinþór Þráinsson - 600 Akureyri Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 2 Steinþór Þráinsson var um miðjan tíunda áratuginn dæmdur fyrir að níðast kynferð­ islega á stjúpdætrum sínum. Brotin voru stórfelld og talin alvarlegs eðlis. Þau stóðu yfir í á fimmta ár, frá árinu 1982 til ársins 1987. Steinþór býr í dag á Akureyri þar sem hann starfar sem ökukennari. Þrátt fyrir að hafa hlotið dóm fyrir kynferðisbrot hefur hann aldrei verið sviptur kennsluréttind­ um. Ragnar Björnsson Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 1 Í janúar 2010 var Ragnar Björnsson dæmdur í 360 daga fangelsi í New York­fylki fyrir tilraun til kynferðisbrots og fyrir að eiga í kynferðislegum samskiptum við stúlku undir 11 ára aldri. Fellur hann undir svokallað annað áhættustig (level 2) en samkvæmt þeirri flokkun eru hóflegar líkur á því að hann muni brjóta af sér á ný. Til hliðsjónar má nefna að skráðir kynferðisbrotamenn sem falla undir þriðja áhættustig (level 3) eru taldir hættulegir umhverfi sínu og afar líklegir til að brjóta af sér aftur. Þeir sem falla undir fyrsta áhættustig (level 1) eru taldir ólíklegastir til að að brjóta af sér á ný, og þurfa ekki að vera skráð­ ir lengur en í 20 ár. Þeir sem falla undir annað og þriðja stig eru hins vegar skráðir kynferðisbrotamenn út ævina. Samkvæmt opinberum gögnum var Ragnari vísað út úr Bandaríkjunum árið 2010. Hann er í dag skráður til heimilis í Grafarholti. Atli Jakob Hlöðversson Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 1 Árið 2016 var Atli Jakob Hlöðvers­ son dæmdur í 25 ára fangelsi, í Virginíu í Bandaríkjunum, fyrir að nauðga stúlku undir 13 ára aldri, en 20 ár af dómnum eru bundin skilorði. Atli Jakob afplán­ ar dóminn um þessar mundir í Haynesville Correctional Center í Virginíu og verður látinn laus í september 2020. Johnson Halldór Gunnar Hooks Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 1 Í mars 2006 hlaut Johnson Halldór Gunnar Hooks dóm í Nýju­Mexíkó í Bandaríkjunum fyrir kynferðis­ brot gegn stúlku undir 18 ára aldri (Criminal Sexual Penetration). Hann er skráður til heimilis í borginni Al­ buquerque. Bandaríkin DV hefur vitneskju um þrjá Íslendinga sem eru skráðir kynferðisbrotamenn í Bandaríkjunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.