Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 23
Jóla- og villibráðahlaðborð27. september 2019 KYNNINGARBLAÐ
Borðið hjá Mathúsi
Garðabæjar verður hlaðið
girnilegum og gómsætum mat
með hátíðlegu ívafi
Mathús Garðabæjar hefur verið starfandi í þrjú farsæl ár. „Það er óhætt að segja
að við eigum stóran og góðan
kúnnahóp sem virðist fara stækkandi
með hverju árinu sem líður. Það sem
dregur gesti að er fyrirtaks þjónusta
og góður matur, matreiddur úr
fyrsta flokks hráefni og á sanngjörnu
verði. Matseðillinn er fjölbreyttur og
ættu allir að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi. Ekki skemmir svo fyrir
gott aðgengi og frábær aðstaða
fyrir börnin. Þá er staðurinn afar vel
heppnaður hvað varðar hönnun og
útlit,“ segir Garðar Guðbrandsson
hjá Mathúsi Garðabæjar.
Hlaðborð af gómsætum réttum
Jólahlaðborðið hjá Mathúsi
Garðabæjar verður með
hefðbundnu sniði þar sem kaldir og
heitir réttir verða í boði í hlaðborðinu,
en forréttur og eftirréttur er borinn
fram á diskum fyrir hvern og einn
matargest. „Í boði verður hvort
tveggja eitthvað sem Íslendingar
tengja sterkt við jólahátíðina, og
réttir sem er einfaldlega gaman að
bjóða upp á, án tillits til árstíðar.
Þá verða til dæmis á boðstólum
soja-maríneraðar nautalundir
og andasalat með asísku „tvisti“.
Jólahlaðborðið stendur til boða á
kvöldin og Jólabrunchinn verður í
hádeginu frá kvöldinu 14. nóvember
fram á Þorláksmessu.“
Mál að skrá sig
„Stemningin er svo það sem setur
punktinn yfir i-ið. Í ár ætlum við
að hafa nettan djass-fíling í bland
við landsþekkta tónlistarmenn,
sem verða kynntir síðar. Endilega
fylgist vel með á Facebook-síðunni
okkar: Mathús Garðabæjar til að
sjá hvað verður um að vera. Það er
um að gera að bóka sig sem fyrst á
jólahlaðborðin hjá okkur, enda eru
hópar byrjaðir að bóka sig á kvöldin
og sömuleiðis eru bókanir farnar að
hrannast inn í Jólabrunchinn.“
Nánari upplýsingar um Mathús
Garðabæjar má nálgast á
vefsíðunni mathus210.com
Instagram: Mathús210
Sími: 571-3775
Vefpóstur: mathus@mathus.is
Garðar Guðbrandsson, yfirkokkur
hjá Mathúsi Garð abæjar.