Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Side 23
Jóla- og villibráðahlaðborð27. september 2019 KYNNINGARBLAÐ Borðið hjá Mathúsi Garðabæjar verður hlaðið girnilegum og gómsætum mat með hátíðlegu ívafi Mathús Garðabæjar hefur verið starfandi í þrjú farsæl ár. „Það er óhætt að segja að við eigum stóran og góðan kúnnahóp sem virðist fara stækkandi með hverju árinu sem líður. Það sem dregur gesti að er fyrirtaks þjónusta og góður matur, matreiddur úr fyrsta flokks hráefni og á sanngjörnu verði. Matseðillinn er fjölbreyttur og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Ekki skemmir svo fyrir gott aðgengi og frábær aðstaða fyrir börnin. Þá er staðurinn afar vel heppnaður hvað varðar hönnun og útlit,“ segir Garðar Guðbrandsson hjá Mathúsi Garðabæjar. Hlaðborð af gómsætum réttum Jólahlaðborðið hjá Mathúsi Garðabæjar verður með hefðbundnu sniði þar sem kaldir og heitir réttir verða í boði í hlaðborðinu, en forréttur og eftirréttur er borinn fram á diskum fyrir hvern og einn matargest. „Í boði verður hvort tveggja eitthvað sem Íslendingar tengja sterkt við jólahátíðina, og réttir sem er einfaldlega gaman að bjóða upp á, án tillits til árstíðar. Þá verða til dæmis á boðstólum soja-maríneraðar nautalundir og andasalat með asísku „tvisti“. Jólahlaðborðið stendur til boða á kvöldin og Jólabrunchinn verður í hádeginu frá kvöldinu 14. nóvember fram á Þorláksmessu.“ Mál að skrá sig „Stemningin er svo það sem setur punktinn yfir i-ið. Í ár ætlum við að hafa nettan djass-fíling í bland við landsþekkta tónlistarmenn, sem verða kynntir síðar. Endilega fylgist vel með á Facebook-síðunni okkar: Mathús Garðabæjar til að sjá hvað verður um að vera. Það er um að gera að bóka sig sem fyrst á jólahlaðborðin hjá okkur, enda eru hópar byrjaðir að bóka sig á kvöldin og sömuleiðis eru bókanir farnar að hrannast inn í Jólabrunchinn.“ Nánari upplýsingar um Mathús Garðabæjar má nálgast á vefsíðunni mathus210.com Instagram: Mathús210 Sími: 571-3775 Vefpóstur: mathus@mathus.is Garðar Guðbrandsson, yfirkokkur hjá Mathúsi Garð abæjar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.