Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 31
Rafiðnaðarblaðið27. september 2019 KYNNINGARBLAÐ RAFMENN: Fyrirmyndarfyrirtæki með fjölbreytt verkefni Rafmenn ehf. er rótgróið fyrirtæki sem hefur aðsetur á Akureyri. Eftir rúmlega 20 ár í rekstri hefur það rækilega fest sig í sessi, og telur nú um 40 starfsmenn sem sinna ýmsum störfum. Rafmenn leggja höfuðáherslu á skjóta og góða þjónustu, heiðarleg vinnubrögð, sanngjarnt verð og snyrtimennsku. Kirkjur, jarðgöng og allt þar á milli Verkefni Rafmanna eru jafnt stór sem smá. Samheldinn hópur karla og kvenna vinnur glaður að hvaða verkefni sem er. Hjúkrunarheimili, íþróttamannvirki, skrifstofuhúsnæði, veitingahús, íbúðabyggingar, menningarhús, virkjanir, kirkjur, skólar og hótel eru allt verkefni sem fyrirtækið hefur unnið að og skilað vel af sér. Þá hefur fyrirtækið komið að eða séð alfarið um raflagnir í stórum hluta jarðganga á Íslandi til þessa, en það eru Múla-, Almannaskarðs-, Héðinsfjarðar-, Norðfjarðar- og Vaðlaheiðargöng. Meðal annarra stórframkvæmda sem fyrirtækið hefur komið að eru Kárahnjúkavirkjun, Alcoa Fjarðaál, Þeistareykir, Krafla og Bakki. Þá sinnir fyrirtækið einnig öllum rafstöðvum fyrir Mílu, Neyðarlínuna, Sýn og RÚV um allt land. Fyrirmyndar fyrirtæki og lof í Hofi Árið 2012 hlutu Rafmenn viðurkenningu fyrir vinnu sína við Menningarhúsið Hof á Akureyri. Starfsmönnum fyrirtækisins þykir að sögn sérlega vænt um þá viðurkenningu. Nýverið komust Rafmenn síðan á lista yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri, sem árlega er tekinn saman af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Einungis 2,7,% fyrirtækja á Íslandi eru fyrirmyndarfyrirtæki samkvæmt skilyrðum listans. Ekkert verkefni of stórt eða of lítið Rafmenn taka að sér alhliða þjónustu í heimilis- og fyrirtækjalögnum, öryggis-, síma- og tölvulögnum. Einnig þjónustar fyrirtækið rafbúnað í hinum ýmsu tækjum og tólum fyrir fjöldann allan af fyrirtækjum. Hvort sem um er að ræða stór verkefni eða smá eru starfsmenn fyrirtækisins tilbúnir að finna leið til að leysa þau. Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu fyrirtækisins, rafmenn.is eða í síma 460- 6000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.