Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 2
2 27. september 2019FRÉTTIR
atriði sem þú vissir ekki um ríkislögreglustjóra
Mikill styr hefur staðið um störf
og embætti Haraldar Johannes
sen ríkislögreglustjóra undan
farnar vikur. Haraldur steig fram
í umdeildu viðtali í Morgunblað
inu sem leiddi til þess að í dag
hafa átta af níu lögreglustjórum
landsins lýst yfir vantrausti á
hann sem og Landssamband
lögreglumanna. Haraldur hefur
þó neitað að stíga til hliðar
af sjálfsdáðum. DV tók af því
tilefni saman fimm lítið þekkt
atriði úr ferli Haraldar áður en
hann varð einn umdeildasti
embættismaður landsins.
Haraldur lauk stúd-
entsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
22 ára gamall (1976)
og lögfræðinámi frá
Háskóla Íslands 29 ára
(1983).
Hann útskrifaðist með
II. einkunn í lögfræði,
eða 7,16.
Þegar Haraldur kom
heim frá Flórída var
hann atvinnulaus en
komst í starfsnám hjá
ÍSAL í gegnum Versl-
unarráð Íslands, og var
þar eini starfsneminn
sem hafði þegar
lokið háskólaprófi.
Að starfsnámi loknu
var hann ráðinn inn
sem ráðunautur fram-
kvæmdastjórnar.
Hann nam afbrota-
fræði við Florida
State-háskólann í
Tallahassee, Flórída, í
sömu borg og Hilmar
Skagfield, góðvinur
föður hans, var með
ræðismannsskrifstofu
sína. Engum sögum fer
af hvort Haraldur hafi
lokið náminu.
Árið 1986 stofnaði
Haraldur fyrirtækið
Íslensk listmiðlun með
Ólafi Kvaran, Gunnari
B. Kvaran, þá titlaður
sem lögfræðingur, en
ekki lögmaður Ári síðar
þegar Haraldur var
skipaður varamaður
í Barnaverndarráð
Íslands var hann þó
titlaður lögmaður og
starfaði svo sem slíkur
hjá nýstofnuðu emb-
ætti ríkislögmanns til
1988.
Þann 27. september, 1590,
andaðist Urban VII páfi aðeins
þrettán dögum eftir að hafa
verið tilnefndur. Honum entist
ekki aldur
til að verða
krýndur.
Urban VII
hét Giovanni
Battista
Castagna og
fæddist 4.
ágúst árið 1521 í Róm. For-
eldrar hans tilheyrðu aðlin-
um og státaði Giovanni af
ágætlega farsælum ferli hvort
tveggja innan stjórnsýslunnar
og kirkjunnar.
Þrátt fyrir stutta viðveru í
embætti páfa afrekaði hann
að koma á reykingabanni, því
fyrsta opinbera í heimi. Bann-
aði hann alla notkun tóbaks „í
fordyri kirkju eða inni í kirkju,
hvort sem það væri tuggið,
reykt í pípu eða tekið í nefið.“
Urban VII hugðist ekki taka
þá vettlingatökum sem bannið
brytu því refsingin var hvorki
meira né minna en bannfær-
ing; útskúfun úr kirkjulegu
samfélagi, sem í þá daga var
eitthvað sem taldist ekki létt-
vægt.
Urban VII var þekktur fyrir
gæsku sína og velgjörðir í þágu
fátækra. Hann styrkti bakara í
Róm svo þeir gætu selt brauð
undir kostnaðarverði. Slíkt
hið sama gerði hann varðandi
ýmsar framkvæmdir innan
Páfaríkjanna, sem þá voru.
Eftir því var tekið að Urban
VII var fullkomlega mótfall-
inn frænddrægni og lagði blátt
bann við slíku innan stjórn-
sýslu páfadóms.
Það var ekki elli sem gerði
Urban VII jafn skammlífan
í embætti og raun bar vitni
heldur dró malaría hann til
dauða. Þetta vafasama met
hans hefur ekki enn verið
slegið. Fyrra met átti Celestine
IV páfi, en hann andaðist 10.
nóvember, 1241, 16 dögum
eftir tilnefningu og missti, líkt
og Urban VII, af eigin krýn-
ingu.
Á þessum degi,
27. september
Celestine IV
Urban VII
Friðar-
teikningar
barna prýða
hringleika-
húsið fræga
n Friðarhlaupið flutti teikn-
ingarnar frá Íslandi til Ítalíu
n Tilgangur að efla frið, vin-
áttu og skilning
U
m síðustu helgi voru til sýningar yfir fimm þús-
und friðarteikningar barna frá um 128 lönd-
um í hinu víðfræga hringleikahúsi Colosseum
í Róm. Þar á meðal voru teikningar barna frá Ís-
landi. Tilefni sýningarinnar var alþjóðlegur friðardag-
ur Sameinuðu þjóðanna þann 21. september. Verk-
efnið nefndist Litir friðar og er um að ræða heimsins
stærstu og fjölþjóðlegustu sýningu á slíkum teikning-
um.
Það voru fulltrúar frá Friðarhlaupinu, Sri Chinmoy
Oneness Home Peace Run, sem tóku á móti teikning-
um íslenskra barna og sendu áfram til Ítalíu. Friðar-
hlaupið er alþjóðlegt kyndilboðhlaup sem fer fram um
allan heim. Tilgangur hlaupsins er að efla frið, vináttu
og skilning milli manna og menningarheima. Yfir 100
lönd taka þátt í hlaupinu í öllum heimsálfum.
Friðarhlaupið er nú að taka saman teikningar fyrir
sýninguna á næsta ári og heimsótti því grunnskólann
í Þorlákshöfn síðastliðinn mánudag þar sem nemend-
ur 6. bekkjar afhentu teikningar sínar í íþróttahúsinu.
Litir friðar
Mynd/Scry Chinmoy
Oneness-Hime
Peace Run.
Krýsuvíkurleiðin Friðarhlaupið hófst um
síðustu helgi til að fagna alþjóðlegum friðardegi
Sameinuðu þjóðanna.
Stór stund Nemendur 6. bekkjar grunnskólans
í Þorlákshöfn afhenda myndir fyrir sýninguna á
næsta ári. Mynd: Nirbhasa Magee