Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 26
Jóla- og villibráðahlaðborð 27. september 2019KYNNINGARBLAÐ Krydduð jól og rífandi stemning á KRYDD Veitingahúsi KRYDD Veitingahús er einn nafntogaðasti veitingastaður í Hafnarfirði og ekki að ástæðulausu. „Hugmyndin að staðnum er sprottin upp úr orðaleiknum „fun dining“ í stað „fine dining“. Maturinn er samt sem áður auðvitað „fine dining“ en þetta ekki bara veitingastaður, heldur upplifa gestir skemmtilega kvöldstund ásamt því að snæða gómsætan mat,“ segir Hilmar Þór Harðarson, einn af eigendum staðarins. Jólin á KRYDD Jólamatseðillinn á KRYDD er vægast sagt girnilegur í ár. „Jólin byrja hjá okkur fimmtudaginn 14. nóvember og standa til 14. desember. Við erum strax byrjuð að taka niður pantanir, en jólamatseðillinn verður í boði á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum. Við höfum ákveðið að vera ekki með hefðbundið jólahlaðborð heldur hafa formið svipað og í fyrra, enda sló þetta rækilega í gegn hjá okkur þá. Jólamatseðillinn í ár er tólf rétta og er hver réttur gómsætari en sá á undan. Þetta byrjar allt á sex litlum forréttum sem hver og einn fær á borðið fyrir framan sig. Á listanum er confitkalkúnn, andabringa, grafið hreindýr og margt fleira sem kemur bragðlaukunum í rétta stuðið fyrir næsta þátt. Þá er val á milli tveggja aðalrétta, annaðhvort saltfiskur með sultuðum lauk, ólífum og öðru ljúffengu meðlæti eða nautalund með gráfíkjum og framandi sveppum. Í lokin eru bornir fram fimm syndsamlegir og gómsætir eftirréttir fyrir hvern og einn, sem hitta mann bent í jólahjartað. Stemningin sem myndast við hvert borð er ótrúlega skemmtileg þar sem allir borða sama matinn og geta talað saman um hann, pælt í bragði og fleira. Okkur finnst þetta form sniðugra en hefðbundið hlaðborð. Hér úir og grúir ekki á sama diskinum fínlegir forréttir, löðrandi sósur, aðalréttir, eplasalat, laxapaté og fleira sem passar engan veginn saman.“ Jólakokteilar Hjá KRYDD Veitingahúsi starfa svo einhverjir bestu barþjónar landsins. „Barþjónarnir hafa varið löngum stundum í að setja saman vínpörun með jólamatseðlinum þar sem hvert vín passar sérstaklega vel með matnum sem er á borðinu. Einnig verðum við með sérhannaða jólakokteila sem barþjónarnir okkar töfra fram með hátíðlegu ívafi.“ Jólakvöldverðartónar Jólastemningin verður svo ekki fullkomnuð nema með skemmtiatriði í hæsta gæðaflokki. „Hún Guðrún Árný, sem hefur séð um hin sívinsælu „sing along“- kvöld hjá okkur, verður með okkur á föstudögum og laugardögum og skemmtir matargestum með þægilegum jólakvöldverðartónum. Þegar síga fer á kvöldið setur hún svo í fjörgírinn sem kemur öllum matargestum í rétta skapið. Eins og áður sagði erum við byrjuð að taka niður pantanir fyrir jólamatseðilinn og er ekki seinna vænna að panta sem fyrst áður en jólakvöldin verða öll upppöntuð.“ Jólaseðillinn er í boði frá fimmtudeginum 14. nóv–14. des. Guðrún Árný syngur og leikur á píanó á föstudögum og laugardögum, eftirfarandi daga: helgina 15. og 16. nóv. helgina 22. og 23. nóv. helgina 28. og 29. nóv. helgina 06. og 07. des. helgina 13. og 14. des. Pantaðu borð á vefsíðunni kryddveitingahus.is, í síma 558- 2222 eða í gegnum krydd@ kryddveitingahus.is. KRYDD Veitingahús er staðsett að Strandgötu 34, Hafnarfirði. Nánari upplýsingar má nálgast á kryddveitingahus.is Facebook: KRYDD Veitingahús Instagram: kryddveitingahus
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.