Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 22
Jóla- og villibráðahlaðborð 27. september 2019KYNNINGARBLAÐ Notaleg jólastund á Reykjavík Meat Reykjavík Meat er einstakt steikhús í hjarta Reykjavíkur og fagnaði eins árs afmæli 6. september síðastliðinn. Kokkarnir sérhæfa sig í sérvöldum gæðasteikum sem eru grillaðar á viðargrillinu á staðnum. „Þetta gefur kjötinu þetta extra bragð sem fólk sækist eftir þegar það langar í virkilega góða steik. Við erum einnig með úrval af fisk- og veganréttum, frábæra forrétti og gómsæta eftirrétti til að enda kvöldið. Reykjavík Meat er með eitthvað fyrir alla,“ segir Hanna Kristín Eyjólfsdóttir, einn af eigendum staðarins. Reykjavík Meat hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir fallega og hönnun og einstaklega notalegt andrúmsloft. „Við viljum að fólki líði vel þegar það kemur inn til okkar. Ljósin höfum við frekar dempuð sem skapar munúðarfulla og notalega stemningu. Staðurinn er einnig settur upp þannig að það sé ekki of mikill hávaði og fólk geti notið þess að tala saman og notið kvöldsins. Við leggjum líka mikla áhersu á þjónustuna á staðnum og höfum fengið til liðs við okkur frábæra þjóna sem ráðleggja gestum okkar þegar kemur að því að velja af matseðlinum. Einnig eru þeir fróðir um vínið okkar og hjálpa gestum að sérvelja vín úr vínherberginu okkar sem passar sérstaklega fyrir gestinn og það sem hann er að fara að borða.“ Jólin á Reykjavík Meat Frá og með 21. nóvember er um að gera að skella sér í girnilegan jólamatseðil hjá Reykjavík Meat. „Við verðum með fimm rétta jólaseðil sem kemur á borðið „family style“. Maturinn kemur þá á borð matargesta sem deila honum. Jólaseðillinn var með svipuðu móti í fyrra. Fólk tók svakalega vel í þetta og vildum við því halda í þetta form áfram í ár.“ Það minnir svo ótal margt á jólin Á boðstólum er mikið um girnilega rétti sem minna óneitanlega á jólin. „Við verðum með tvíreykt hangilæri, heitreyktan lax og hreyndýr. Í aðalrétt verður svínasíða og nautalund með gómsætu meðlæti. Svo endar máltíðin á ris à l’amande í desert og smákökum með kaffinu til að kalla inn jólin endanlega. Við bjóðum upp á flotta vínpörun með jólamatseðlinum. Þá pörum við sérvalið vín úr vínherberginu okkar, sem við köllum hjarta staðarins. Einnig verða nokkrir vel valdir jólakokteilar sem og ilmandi og hlýtt jólaglögg.“ Borðapantanir eru í síma 557-7665 og á netfanginu rvkmeat@rvkmeat. is. Sjá nánar á Facebooksíðunni: RVK Meat og vefsíðunni rvkmeat.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.