Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 28
ELDHESTAR: Jólahlaðborð í sveitakyrrð Sveitahótelið Eldhestar er staðsett á fögrum stað að Völlum í Ölfusi, í um 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Þar er hægt að njóta gistingar í hlýlegu herbergi með fallegu útsýni, fara á hestbak og snæða krásir á jólahlaðborði. „Þetta er jólahlaðborð í sveitinni, við leggjum mikið upp úr kyrrðinni og að gestir okkar eigi notalega stund saman. Þetta hentar afskaplega vel fyrir smærri hópa, lítil fyrirtæki eða vinahópa,“ segir Hróðmar Bjarnason framkvæmdastjóri Eldhesta. Jólahlaðborðið verður í boði síðustu tvær helgarnar í nóvember og fyrstu helgina í desember. Hægt er að kaupa jólahlaðborðið eitt og sér en flestir kjósa að gista líka og gera dálítið meira úr dvölinni en bara borðhaldið. „Það eru fínar gönguleiðir hér í kring og þar sem við erum á flatlendi er fallegt útsýni í allar áttir. Staðsetning hótelsins er einnig góð til að upplifa norðurljósin ef þau láta sjá sig. Dyr liggja frá herbergjum út í garð, það eru tveir heitir pottar á staðnum og svo eru margar áhugaverðar hestaferðir í boði. Það er því tilvalið að koma um miðjan dag, fara á hestbak, fara síðan í heita pottinn og því næst klæða sig upp í rólegheitum fyrir hlaðborðið,“ segir Hróðmar. Matseðillinn fyrir jólahlaðborðið er klár og meðal kaldra rétta verður reyktur og grafinn lax, síldartríó, hangikjöt og sjávarréttasalat. Heitir réttir eru hamborgarhryggur, heilsteikt lambalæri, grísapurusteik og kalkúnabringa. Einnig er úrval af brauði, heitar og kaldar sósur, sykurbrúnaðar kartöflur, rósmarín- kartöflur, kartöflusalat, heimalagað rauðkál, maís, grænar baunir, eplasalat og fleira. Í eftirrétt er ávaxtasalat, heimagert Tiramisu, bökuð epli með karamellu, jólaostakaka og fleira. Það borgar sig að panta snemma til að komast á þetta margrómaða jólahlaðborð í notalegu umhverfi. Hægt er að senda fyrirspurn á info@eldhestar.is eða hringja í síma 480-4800. Frekari upplýsingar um Eldhesta eru síðan á vefsíðunni hoteleldhestar.is og um Eldhesta á www.eldhestar.is. Jóla- og villibráðahlaðborð 27. september 2019KYNNINGARBLAÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.