Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Page 28
ELDHESTAR:
Jólahlaðborð í sveitakyrrð
Sveitahótelið Eldhestar er staðsett á fögrum stað að Völlum í Ölfusi, í um
45 mínútna akstursfjarlægð frá
Reykjavík. Þar er hægt að njóta
gistingar í hlýlegu herbergi með
fallegu útsýni, fara á hestbak og
snæða krásir á jólahlaðborði.
„Þetta er jólahlaðborð í sveitinni, við
leggjum mikið upp úr kyrrðinni og
að gestir okkar eigi notalega stund
saman. Þetta hentar afskaplega vel
fyrir smærri hópa, lítil fyrirtæki eða
vinahópa,“ segir Hróðmar Bjarnason
framkvæmdastjóri Eldhesta.
Jólahlaðborðið verður í boði
síðustu tvær helgarnar í nóvember
og fyrstu helgina í desember. Hægt
er að kaupa jólahlaðborðið eitt og
sér en flestir kjósa að gista líka og
gera dálítið meira úr dvölinni en
bara borðhaldið. „Það eru fínar
gönguleiðir hér í kring og þar sem
við erum á flatlendi er fallegt útsýni
í allar áttir. Staðsetning hótelsins er
einnig góð til að upplifa norðurljósin
ef þau láta sjá sig. Dyr liggja frá
herbergjum út í garð, það eru tveir
heitir pottar á staðnum og svo eru
margar áhugaverðar hestaferðir í
boði. Það er því tilvalið að koma um
miðjan dag, fara á hestbak, fara
síðan í heita pottinn og því næst
klæða sig upp í rólegheitum fyrir
hlaðborðið,“ segir Hróðmar.
Matseðillinn fyrir jólahlaðborðið
er klár og meðal kaldra rétta verður
reyktur og grafinn lax, síldartríó,
hangikjöt og sjávarréttasalat.
Heitir réttir eru hamborgarhryggur,
heilsteikt lambalæri, grísapurusteik
og kalkúnabringa. Einnig er úrval
af brauði, heitar og kaldar sósur,
sykurbrúnaðar kartöflur, rósmarín-
kartöflur, kartöflusalat, heimalagað
rauðkál, maís, grænar baunir,
eplasalat og fleira. Í eftirrétt er
ávaxtasalat, heimagert Tiramisu,
bökuð epli með karamellu,
jólaostakaka og fleira.
Það borgar sig að panta snemma
til að komast á þetta margrómaða
jólahlaðborð í notalegu umhverfi.
Hægt er að senda fyrirspurn á
info@eldhestar.is eða hringja í síma
480-4800. Frekari upplýsingar
um Eldhesta eru síðan á vefsíðunni
hoteleldhestar.is og um Eldhesta á
www.eldhestar.is.
Jóla- og villibráðahlaðborð 27. september 2019KYNNINGARBLAÐ