Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 35
Rafiðnaðarblaðið27. september 2019 KYNNINGARBLAÐ
RAFMAGNSVERKSTÆÐI JENS OG RÓBERTS:
Fagmenn á sviði raftækni
Rafmagnsverkstæði Jens og Róberts er fyrirtæki sem leggur ríka áherslu á að
veita viðskiptavinum sínum alhliða
þjónustu. Hvort sem þú þarft að fara
í smá lagfæringar eða meiriháttar
breytingar þá eru þeir með lausnina.
Víðtæk þjónusta
Rafmagnsverkstæði Jens og
Róberts var upphaflega stofnað
árið 1987 af Jens Pétri, en árið
2006 sameinuðu hann og sonur
hans, Róbert Einar, krafta sína og
stofnuðu þá Rafmagnsverkstæði
Jens og Róberts.
Rafmagnsverkstæði þeirra veitir
mikla þjónustu á sviði raftækni. „Við
erum í flestu sem tengist rafmagni,
allt frá nýbyggingum, þjónustu
við fyrirtæki og einstaklinga,
brunavarnarkerfi, aðgangskerfi og
margt fleira,“ segir Róbert Einar.
Stærsti hluti verkefna þeirra
varðar þjónustu við einstaklinga og
fyrirtæki, þó svo að inni á milli sé líka
vinna við nýbyggingar.
Þeir feðgar hafa víðtæka reynslu á
sviði raftækni og veita ráðgjöf í flestu
sem spurt er um. Þeir vinna mikið við
að að finna lausnir á vandamálum
og veita ráðgjöf varðandi breytingar
á húsnæði, til dæmis lýsingu,
lagnaleiðum og fleira í þeim dúr.
Fá fagmann í verkið
Rafmagnsverkstæði Jens og
Róberts leggur mikla áherslu á
að tryggja ánægju viðskiptavina
með vönduðum vinnubrögðum,
trausti og áreiðanleika í viðskiptum.
Kostirnir við að láta fagmenn vinna
verkið eru ótvíræðir. Oft á tíðum er
það ekki alltaf ódýrast til að byrja
með, en þegar upp er staðið þá má
spara háar fjárhæðir með því að fá
fagmenn í verkin.
Hægt er að hafa samband við
Rafmagnsverkstæði Jens og
Róberts í síma 899-9554 (Róbert)
eða senda tölvupóst á
robbiraf@simnet.is