Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 53
FÓKUS 5327. september 2019
Uppruni áhrifavaldanna Fylgjendur á Instagram: 43.000S unneva Einarsdóttir hefur átt mikilli velgengni að fagna á Instagram. Hún birti fyrstu myndina á miðlinum árið 2012 og var þá eins og meðal Jóninn, með nokkur læk á hverri mynd. Það var svo árið
2017 sem fylgjendafjöldinn fór að aukast
fyrir alvöru, ári eftir að hún útskrifaðist sem
stúdent frá Menntaskólanum við Sund. Eftir
útskrift ákvað hún að taka sér ársfrí frá námi
og réð sig sem samfélagsmiðlastjóri hjá um-
boðsskrifstofunni Eylenda. Um mitt ár 2017
var hún komin með hátt í sextán þúsund
fylgjendur á Instagram.
„Ég hef alltaf verið mjög virk á Instagram
frá því að ég byrjaði árið 2012 og hef síðan þá
verið dugleg að pósta myndum úr daglega
lífinu. Instagramið mitt hefur stækkað mikið
á sama tíma og þessi miðill hefur orðið vin-
sælli. Ég byrjaði að taka eftir að fylgjendum
fjölgaði frekar hratt í fyrra og flæðið á síð-
unni er búið að verða meira og meira sein-
asta árið,“ sagði hún í viðtali við Smartland
árið 2017.
Þeir sem hafa áhuga á snyrtivörum hafa
stutt dyggilega við bakið á Sunnevu og árið
2018 bauð snyrtivörufyrirtækið Inglot henni
út til Las Vegas þar sem hún hitti sjálfa Jenni-
fer Lopez.
„Það er í raun draumur allra áhrifavalda
að fá að fara í svona brandtrip eins og þetta
er kallað, og fá líka að hitta J-Lo í leiðinni
er frábært. Ég var ekki að trúa þessu allan
tímann. Við töluðum um nýju línuna og ég
hrósaði henni fyrir hana. Henni fannst mjög
magnað að vera frá Íslandi. Hún vissi af mér,
teymið hennar þurfti að samþykkja mig til
að ég mætti fara út. Við vorum mjög fá sem
Fylgjendur á Instagram: 16.400
V eiðimaðurinn Snorri Rafnsson, bet-ur þekktur sem Vargurinn, byrjaði á Instagram árið 2016 en fylgjenda-
fjöldinn margfaldaðist árið 2017, sérstaklega
þegar hann birti myndband af sér að hoppa af
jeppa á trampólín og þaðan út í sjó. Áður en
Vargurinn byrjaði á Instagram var hann vinsæll
á Snapchat og vakti athygli fyrir að sýna frá lífi
sínu sem veiðimaður. Hann veiðir að mestu leyti
mink, en einnig önnur dýr og hefur oft komist í
fréttirnar fyrir að bjarga dýrum í neyð.
Snorri er Ólsari í húð og hár og búsettur í
Ólafsvík á Snæfellsnesi. Hann er mjög hrifinn af
Ólafsvík og er veiðieðlið í blóð borið.
„Allir mínir forfeður eru veiðimenn og ég var ungur byrjaður að veiða fisk með
pabba. Við áttum svo hund sem segja má að hafi ýtt okkur í minkaveiðina. Hann
var mikill veiðihundur án þess að vera þjálfaður sérstaklega í það eða það hafi
verið ætlunin. Þegar við fórum með hann í fjöruferðir var hann alltaf strax farinn
að leita að minkum. Það má einnig segja að hann hafi kveikt áhuga minn á veiði-
hundum. Þegar hann drapst vildu mamma og pabbi ekki fá nýjan og ég var alveg
veikur í að eignast hund og keypti mér sjálfur hund um leið og ég gat,“ sagði Snorri
í viðtali við Skessuhorn árið 2017. Snorri hefur gert það gott sem áhrifavaldur og
var tekjuhæstur í greininni árið 2018 með tæplega eina og hálfa milljón á mánuði.
Fylgjendur á Instagram: 27.300
C amilla Rut, eða Camy Klikk, byrjaði á Snapchat þegar hún var að koma sér upp úr
fæðingarþunglyndi eftir að hafa eign-
ast sitt fyrsta barn árið 2015. „Ég fékk
rosalegt fæðingarþunglyndi og átti mjög
erfitt fyrstu mánuðina. Í orlofinu hafði
ég gaman af því að fylgjast með öðrum
á samfélagsmiðlum og fljótlega kvikn-
aði sú hugmynd að kannski hefði fólk
áhuga á því sem ég hefði að segja,“ sagði
Camilla í forsíðuviðtali við Vikuna í
fyrra. Camilla fetaði í fótspor vinkonu
sinnar, Sólrúnar Diego, í byrjun þessa
árs – hætti á Snapchat og lagði þungann
í Instagram. Camilla er mikil söngkona
og má rekja gospeláhuga hennar til tíma
hennar í trúarsöfnuðinum Krossinum,
en Gunnar Þorsteinsson í Krossinum
er afi hennar. „Það að vera í Krossinum
átti mikinn hlut í mínu þroskaferli. Á
ákveðnu tímabili var ég frekar þunglynd
og fannst sambandið við pabba minn til
dæmis mjög erfitt. En ástæðan fyrir því
að það var svo þægilegt að fara í Kross-
inn eftir þetta uppreisnartímabil var
það að ég gat alltaf mætt á samkomur
og ef mér leið illa þá bara sat ég og grét
og allir sýndu því fullan skilning,“ sagði
Camilla í viðtali við Monitor árið 2014. Í
dag starfar Camilla við tónlist samhliða
áhrifavaldaframanum og hefur komið
fram í ýmsum sýningum.
Fylgjendur á
Instagram: 33.200
T anja Ýr vakti fyrst athygli árið 2013 þegar
hún var krýnd Ungfrú
Ísland. Í kjölfarið varð
hún dugleg á sam-
félagsmiðlum. Hún
byrjaði á Snapchat
árið 2014, eftir að hafa
haldið bloggsíðunni
tanjayr.com úti um
nokkurt skeið. Hún
opnaði Instagram-síðu
árið 2012 sem varð
ekki vinsæl fyrir alvöru
fyrr en árið 2017.
Tanja Ýr tók síðan
samfélagsmiðlaveldið
sitt skrefinu lengra
árið 2016 þegar hún
stofnaði umboðsskrif-
stofu fyrir áhrifavalda,
Eylenda, árið 2016
ásamt Maríu Hólm-
grímsdóttur. Lítið hef-
ur farið fyrir Eylenda
undanfarið ár en til-
gangur þess var að
tengja saman fyrirtæki
og fólk sem var áber-
andi á samfélagsmiðl-
um. Meðal áhrifavalda
sem voru á mála hjá
Eylenda voru Sólrún
Diego, Lína Birgitta,
Binni Glee og Tinna
Alavis.
Tanja Ýr er mikil
bisnesskona og er með
sína eigin snyrtivöru-
línu og vasast í alls
kyns öðrum viðskipta-
tækifærum.
Fylgjendur á Instagram: 9.366
F anney Dóra er talin vera einn af þeim áhrifavöldum sem eru hvað mest upp-rennandi og eiga nóg inni. Hún byrj-
aði með bloggsíðu fyrir fjórum árum. Í kjöl-
farið stundaði hún förðunarnám í Reykjavík
Makeup School og byrjaði með Snapchat og
Instagram sem gekk nær eingöngu út á förðun.
Árið 2017 byrjaði hún að kenna í skólanum og
varð „Brand Ambassador“ fyrir snyrtivörufyrir-
tækið Maybelline. Hún hefur ekki aðeins vakið
athygli fyrir förðunarráð og -myndir á samfélags-
miðlum heldur hefur einnig opnað umræðu um
líkamsvirðingu. „Ég áttaði mig á því að það skipti
engu máli þó ég grennist um þessi tuttugu kíló,
ég þarf að elska manneskjuna sem ég er, því ég
verð alltaf ég. Hvort sem ég breytist í framtíðinni
eða ekki. Þannig varð sjálfstraust mitt svo miklu
betra og ég er allt önnur manneskja í dag. Fólk
getur núna leitað uppi fólk eins og mig á samfé-
lagsmiðlum. Það getur auðvitað leitað uppi þetta
fullkomna fólk en það getur líka skoðað mig sem
vil bara vera ég sjálf,“ sagði hún í viðtali við Ísland
í dag í fyrra.
Sunneva Eir Einarsdóttir
Sunneva í
dag. Mynd:
Skjáskot
Instagram
@sunneva-
einars
Snorri Rafnsson (Vargurinn)
Nýleg mynd af Varginum á
hreindýraveiðum. Mynd: Skjáskot
Instagram @vargurinn
Fanney Dóra Veigarsdóttir
Fanney Dóra í dag. Mynd: Skjá-
skot Instagram @fanneydora
Camilla Rut Rúnarsdóttir
Camilla Rut
hefur látið
að sér kveða
í tónlistinni.
Mynd: Skjá-
skot/YouTube Tanja Ýr Ástþórsdóttir
Tanja Ýr árið
2012. Mynd:
Skjáskot
Instagram @
tanjayr
Tanja Ýr árið 2015.
Mynd: Skjáskot
Instagram @tanjayr
Tanja Ýr í dag. Mynd:
Skjáskot Instagram
@tanjayr
Mynd af Sunnevu árið
2013. Mynd: Skjáskot
Instagram @sunneva-
einars
Svona leit Sunneva
út árið 2016. Mynd:
Skjáskot Instagram
@sunnevaeinars
fengum að fara í eftirpartý inni í bún-
ingsherbergi hennar,“ sagði Sunneva í
viðtali við Brennsluna í apríl árið 2018.