Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Blaðsíða 37
FÓKUS 3727. september 2019 bak við Gilligan‘s Island og The Brady Bunch, ráðlagði frændum sínum að kaupa réttinn að þátt­ unum af GTG, sem þeir gerðu fyrir tíu dollara. Þeir báðu Hasselhoff um að taka á sig fimmtíu pró­ senta launalækkun og fá hlutverk framleiðanda. Hann samþykkti það og tengsl hans í Þýskalandi tryggðu þeim þrjú hundruð þús­ und dollara fjármagn á þátt frá meginlandi Evrópu. 18. Leikur verður raunveruleiki Eleniak og Warlock, sem léku Shauni og Eddie, voru ástfangin bæði fyrir framan og aftan myndavélina. Sögusagnir fóru á kreik um að þau hafi beðið um of há laun og þess vegna hafi þau hætt eftir annan þátt í þriðju þáttaröð. Þau giftu sig síðan og fluttu til Ástralíu, en ástin slokkn­ aði að lokum. 19. „Þetta er fjölskylduþáttur“ Pamela Anderson sló síðar í gegn sem C.J. Parker en Hasselhoff vildi ekki ráða hana í fyrstu. „Ég vil ekki neinn úr Playboy. Þetta er fjölskylduþáttur,“ sagði hann í viðtali við New York Times. 20. Kynlífsmyndbandið Þegar kynlífsmyndbandi Ander­ son og þáverandi eiginmanns hennar, Tommy Lee, var lekið um miðjan tíunda áratug síð­ ustu aldar, fóru einhverjar sjón­ varpsstöðvar fram á að Baywatch yrði tekinn af dagskrá. Á sama tíma ruku áhorfstölur upp vegna myndbandsins alræmda. 21. Leo vildi hlutverkið Brandon Call lék son Mitch, Hobie, í fyrstu þáttaröð. Leikar­ inn Leonardo DiCaprio vildi hlut­ verkið en Hasselhoff vildi yngri leikara. Í framhaldinu fékk hinn tíu ára Jeremy Jackson hlutverkið. Það eyðilagði leiklistarferil hans. Hann féll í heim vímuefna og frægðin steig honum til höfuðs. 22. Dópdjöfullinn Jackson var ekki sá eini sem var í klípu því leikkonan Yasmine Bleeth hætti í þáttunum árið 1997 þegar vímuefnadjöfullinn hélt henni í heljargreipum. 23. Öll fjölskyldan með Leikkonan Mila Kunis kom tvisvar fram í þáttunum, í fyrsta sinn árið 1994 sem stúlka sem kallaði á hjálp þegar vinkona hennar var að drukkna og í seinna skiptið árið 1995. Þá lék hún blinda stúlku sem þurfti að bjarga úr eldsvoða. Öll fjölskylda hennar kom með á settið til að sjá Pamelu Anderson með berum augum. 24. Þrjár eiginkonur Önnur eiginkona Mitch Buchann­ on, Neely Capshaw, var leikin af þremur mismunandi leikkonum; Heather Campbell, Genu Lee Nolin og Jennifer Campbell. 25. Æ efnisminni Engir af rauðu sundbolunum sem kvenkyns lífverðirnir klædd­ ust voru eins heldur voru þeir sér­ saumaðir á hverja konu. Sund­ fatafyrirtækið TYR hjálpaði til við hönnun á upprunalegu sundbol­ unum. Sundbolirnir urðu efnis­ minni með tímanum. 26. Innrammaður Það var í raun partur af áheyrnarprufum að láta sjá sig í sundbol. Carmen Electra er með sinn sundbol í ramma heima hjá sér, en hún þurfti frá að hverfa eftir eina þáttaröð þegar móðir hennar varð veik. 27. Strangar kröfur Alexandra Paul fór upprunalega í prufu sem C.J. en endaði á að leika Stephanie Holden í 5 þáttar­ aðir. Hún sagði í viðtali árið 2014 að það hefði verið klausa í samn­ ingum leikara að þeir mættu ekki þyngjast um meira en tvö kíló á meðan þeir léku í þáttunum. 28. Enginn þrýstingur Nicole Eggert, sem lék Summer Quinn í 2 þáttaröðum, hefur talað opinskátt um að hún sjái eftir að hafa leikið í þáttunum. Mikið var slúðrað um að framleiðendur þáttanna hefðu þrýst á hana um að fara í brjóstastækkun en í við­ tali við Opruh Winfrey árið 2015 sagði Eggert að það hefði algjör­ lega verið hennar eigin ákvörðun. 29. Í hættu Anderson hætti í þáttunum árið 1997 og þátturinn Baywatch Nights var tekinn af dagskrá eftir tvær þáttaraðir. Hætt var við að Baywatch­þættirnir yrðu teknir úr umferð í nóvember árið 1998 en þá var framleiðslan flutt til Ástralíu til að spara peninga. 30. Endalok Mitch Buchannon Síðustu tvær þáttaraðirnar voru hins vegar teknar upp á Havaí og hétu þættirnir þá Baywatch Hawaii. Kvenkyns lífverðir skiptu rauðu sundbolunum út fyrir gula til að líkja eftir lífvarðafatnaði á Havaí. Hasselhoff hætti eftir fyrri af þessum tveimur þáttaröðum og var klipptur út í lokin og látinn deyja í sprengingu. Hasselhoff vissi það ekki fyrr en hann sá þátt­ inn í sjónvarpinu. n 1. Titillinn Nafnið Baywatch vísar í björg­ unarbáta sem hafa haft eftirlit með ströndum Suður­Kaliforníu áratugum saman. 2. Upphafið Það var lífvörðurinn Greg Bonann sem fékk hugmyndina að þáttun­ um þegar hann byrjaði að starfa við öryggisvörslu á ströndum í Los Angeles árið 1970. 3. Þrautaganga Bonann kynnti þáttinn fyrir öll­ um í sjónvarpsbransanum sem hann fékk fund hjá í heilan ára­ tug. 4. Örlögin Svo gripu örlögin í taumana og systir Bonann trúlofaðist hand­ ritshöfundinum Doug Schwartz sem hafði gert fjölmargar sjón­ varpsmyndir með frænda sínum og viðskiptafélaga, Michael Berk. Bonann bauð þeim Schwartz og Berk að koma með sér á árlegu líf­ varðaleikana og þeir sannfærðust um að hugmyndin væri góð. 5. Loksins kom tækifærið Brandon Tartikoff, fyrrverandi forstjóri NBC, var sá fyrsti sem kveikti á hugmyndinni og pant­ aði sjónvarpsmynd árið 1988 sem myndi verða fyrsti þátturinn (e. Pilot) af Baywatch. Handritið var skrifað á þremur mánuðum. 6. Hasselhoff ekki fyrsta val Meðal leikaranna sem komu til greina í hlutverk lífvarðar­ ins Mitch Buchannon voru hjartaknúsarinn Lorenzo Lamas úr Falcon Crest, The Dukes of Hazzard­stjarnan Tom Wopat og breski leikarinn Adrian Paul, sem átti síðar eftir að slá í gegn í sjón­ varpsþáttunum Highlander. 7. Óviss í fyrstu Hasselhoff var á þessum tíma mjög vinsæll söngvari í Þýska­ landi og Austurríki og vildi ekki leika í Baywatch í fyrstu. Hann kallaði þáttinn „Knight Rider í sundfötum“. 8. Tók óvænta stefnu Framleiðendur þáttanna vildu fyrst gera þætti um hversdagsleg ævintýri lífvarða en NBC vildi tvinna það saman við morðgátur og dularfull sakamál. 9. Playboy-hneykslið Erika Eleniak, sem lék Shauni McClain, var næstum því rekin þegar að forsvarsmenn NBC komust að því að hún hefði setið fyrir nakin fyrir Playboy. Fram­ leiðendur börðust fyrir henni, en þeir töldu hana betri í hlutverkið en til að mynda Teri Hatcher, Neve Campbell og Alicia Silver­ stone, sem allar komu til greina. 10. Hrædd við vatnið Shawn Weatherly var ráðin til að leika Jill Riley á síðustu stundu og kom í staðinn fyrir Pamelu Bowen eftir að hún fríkaði út á settinu. Þá kom í ljós að Bowen var logandi hrædd við vatn. 11. Hákarlahasar Þó að fyrsti þátturinn hafi verið tekinn upp í Los Angeles í þægi­ legum hita þá var samt ekki nógu heitt þannig að framleiðslan var flutt til Havaí. Þar var hitastigið fullkomið en hins vegar svam­ landi hákarlar í hafinu. Því þurftu menn með deyfibyssur að passa upp á „strandverðina“. 12. Öðruvísi markaðir Það var tekinn upp annar fyrsti þáttur fyrir evrópskan markað en helsti munurinn á bandaríska og evrópska þættinum var að það var nekt í þeim síðarnefnda. 13. Bjargaði lífi drengs Bonann ákvað að fara með fram­ leiðendum og handritshöfund­ um þáttanna á Venice Beach til að skoða tökustaði eftir að þeir fengu þær fréttir að þeir þyrftu að gera tólf þætti til viðbótar af Bay­ watch. Skyndilega hljóp drengur að Bonann og sagði honum að bróðir sinn væri að drukkna. Bon­ ann stakk sér til sunds og bjargaði lífi hans. 14. Grimm endalok Shawn Weatherly fékk fljótt leiða á hlutverki Jill þannig að hún ákvað að yfirgefa þáttinn eftir eina þáttaröð. Hún var skrifuð út með því að hákarl réðst á hana. 15. Sótthreinsaðir líkamar Á þessum tíma var sjórinn fullur af rusli og öðrum vafasömum efnum þannig að sjúkraliðar þurftu að sótthreinsa leikarana um leið og þeir komu úr vatninu. Þá voru öll líkamsop úðuð með sótthreinsi. 16. Hætt við allt saman Þó að Baywatch hafi verið vinsæl­ asti þáttur NBC á föstudagskvöld­ um þá voru viðtökurnar ekki í samræmi við það. Þess vegna var framleiðslu á þáttunum hætt eftir 22 þætti. Enn fremur var verið að loka kvikmyndaverinu á bak við framleiðsluna, GTG. 17. Tíu dollarar margfölduðust Frændi Berk og Schwartz, Sherwood Schwartz, maðurinn á Þættirnir Baywatch fóru upprunalega í sýningar á sjónvarpsstöðinni NBC í september árið 1989, eða fyrir 30 árum. Þótt upphafið hafi gengið brösulega urðu þeir fljótt vinsælustu þættir í heim. DV leit á 30 staðreyndir um þættina á 30 ára afmælinu. 30 brjálaðar staðreyndir um
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.